Morgunblaðið - 27.06.2013, Side 40
FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 178. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Linda Pé gerir 450 millj. samning
2. Stúlkurnar yfirheyrðar…
3. Afburðanemi í tveimur störfum
4. Róbert Spanó selur íbúðina
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Lokatónleikar Bjarkar Guðmunds-
dóttur í Biophiliu-tónleikaför hennar
um Evrópu verða haldnir í Alexandra
Palace í Lundúnum, 3. september nk.
Verða það jafnframt fyrstu Biophiliu-
tónleikar Bjarkar í Lundúnum. Á vef-
síðu Bjarkar segir hún að tónleikarnir
muni hafa mikið tilfinningalegt gildi
fyrir hana þar sem hún bjó í borginni
í nokkur ár.
Lokatónleikar Bio-
philiu í Lundúnum
Hríseyjarhátíðin verður haldin
dagana 12. til 14. júlí. „Mitt hlutverk
er að þjóna eyjunni, nýta náttúruna
og fegurðina. Það er gott að byggja
á góðum grunni og það mun ég
gera í kringum þessa hátíð. Þessi
veisla verður hugguleg fjöl-
skylduhátíð, við bjóðum upp á mat
á bryggjunni og á leiðinni út í eyju
um borð í ferjunni Sævari verður
lúðrasveit líkt og í mynd eftir Emir
Kusturica,“ segir skipuleggjandi há-
tíðarinnar, Jón Gunnar Thordarson.
Hátíðin verði með öðru sniði í ár en
hin fyrri ár að því leyti að áhersla
verði lögð á tónlist. „Hvert sem fólk
leggur leið sína um eyjuna verða
trúbadorar að spila. Við bjóðum líka
upp á varðeld og brekkusöng á
laugardagskvöldinu. Nú þegar hafa
margir tónlistarmenn staðfest komu
sín, m.a. tónlistarmað-
urinn KK,“ segir Jón
en aðrir trúbadorar
sem leika munu
á hátíðinni
verða kynntir
til sögunnar er
nær dregur.
Aðgangur
að hátíðinni
er ókeypis.
Trúbadorar á Hrís-
eyjarhátíð í júlí
Á föstudag Vestan 5-15 m/s, hvassast við suðurströndina. Rign-
ing eða skúrir, en úrkomulítið suðaustanlands. Hiti 7 til 15 stig,
hlýjast suðaustantil.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg átt, víða 5-10 m/s en 10-15 norð-
vestan- og vestanlands fram eftir degi. Fer að rigna syðra og einnig
nyrðra síðdegis. Hiti 8-17 stig, hlýjast norðaustanlands.
VEÐUR
Landsliðskonurnar Rakel
Hönnudóttir úr Breiðabliki
og Katrín Ásbjörnsdóttir úr
Þór/KA reikna báðar með
því að missa af leikjum
sinna liða í 8-liða úrslitum
bikarkeppni KSÍ á föstu-
dagskvöld vegna meiðsla
sem þær urðu fyrir í fyrra-
kvöld. Þær reikna hins veg-
ar báðar með að meiðslin
hafi ekki áhrif á þátttöku
þeirra í Evrópumótinu sem
hefst eftir tvær vikur. »1
Tveir EM-farar úr
leik næstu daga
Lið HSK/Selfoss kom, sá og sigraði á
Meistaramóti Íslands í frjálsum íþrótt-
um í flokki 11-14 ára sem haldið var á
Kaplakrikavelli í Hafnarfirði um síð-
ustu helgi. Efnilegt frjálsíþróttafólk
landsins sýndi flott tilþrif sem gaman
verður að
fylgjast með í
framtíðinni.
»4
HSK/Selfoss varð
Íslandsmeistari
Íslandsmet Anítu Hinriksdóttur í 800
metra hlaupi kvenna, 2.01,17, er ann-
ar besti tíminn sem náðst hefur í
greininni í ár í flokki stúlkna fæddra
1996 eða síðar. Aðeins Mary Cain frá
Bandaríkjunum, sem fædd er 1996
eins og Aníta, hefur náð betri tíma en
hún hefur hlaupið á 1.59,51 mínútu.
Aníta er í 5. sæti í flokki þeirra sem
fæddar eru 1994 og síðar. »3
Aníta á annan besta
tíma í heiminum í dag
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Þegar Pétur Elísson, trésmíða-
meistari á Akranesi, hætti að vinna
vegna aldurs fyrir um sjö árum
sneri hann sér að tréskurði. „Ég er
enginn útskurðarmeistari, bara
smiður og í besta falli handlaginn
maður, en leik mér að þessu þegar
ég nenni því,“ segir hann. Bætir
við að hann hafi líka unnið með eig-
inkonunni, Guðríði Jónsdóttur, við
það að búa til listmuni úr gleri.
„Hún er mikil hagleikskona,“ segir
hann.
Morgunblaðið ákvað að taka hús
á Pétri og Guðríði í gær og þar var
ekki í kot vísað. Handverk hjón-
anna út um allt og rósirnar í bak-
garðinum að bíða eftir því að
blómstra. „Það gerist sennilega
ekki fyrr en í ágúst, því sumarið
kom seint,“ segir Guðríður og bæt-
ir við að Pétur hafi smíðað sérstaka
kassa til þess að skýla þeim á vet-
urna. Það fer enda vel um þær.
Klukkur og knattspyrna
Pétur smíðar fyrst og fremst
klukkur en sker líka út loftvogir og
fleira. „Ég er ekki í neinni fram-
leiðslu heldur dunda við þetta, bý
til tækifærisgjafir og á því engan
lager,“ segir hann og er lítillátur
þegar kemur að listinni. „Ég er
bara handverksmaður. Alvöru-
útskurðarmeistarar viðurkenna
þetta ekki því þeir mega ekki nota
annað en útskurðarjárnin, hvorki
sandpappír né annað, en ég notfæri
mér tæknina, gref allt með fræs-
ara.“ Hlær reyndar að því sögðu.
„Við erum eins og Amish-fólk,
tökum ekki myndir, eigum ekki
tölvu og ég er með svo gamaldags
farsíma að rafhlaða í hann er dýr-
ari en síminn. En fyrir um tíu árum
fór ég á námskeið og lærði þá
grunninn í útskurðinum. Sigmund-
ur Hansson, sem kenndi eldri
borgurum í Reykjavík fyrir nokkr-
um árum og býr til Íslandsklukkur
sem ferðamenn eru sérlega hrifnir
af, sagði mér síðan til og hefur sag-
að ytra byrðið svolítið út fyrir
mig.“
Glerið bíður
Alls konar glerlampa,
tiffany’s-lampa og fleiri
glerlistaverk ber
fyrir augu. Spurð
um glervinnuna
segja hjónin að hún hafi legið
niðri að undanförnu en Guðríður
vonast til þess að taka aftur upp
þráðinn í haust. „Þangað til
held ég bara áfram að prjóna
og hekla á barnabörnin.“
Hagleikur og hugvit hjóna
Margt leikur í
höndunum á
Pétri og Guðríði
Morgunblaðið/Eggert
Listahjón Guðríður Jónsdóttir og Pétur Elísson með sýnishorn af klukkum sem verða til í bílskúrnum.
Pétur heitir Guðlaugur Pétur Brekkan fullu nafni og fram-
leiðslan ber nafnið Brekkan handverk, en langafi hans
og langamma bjuggu á Brekku undir Vogastapa.
Hann segist hafa tekið upp Brekkan-nafnið, sem
hann hafi annars aldrei notað, þegar Tara, dóttir
Péturs yngri, hafi eignast dreng. Þar sem drengurinn
hafi átt að heita Pétur hafi hann viljað koma Brekkan-nafninu að.
„Ég á ekki tölvu og gat því ekki sent Töru skilaboðin en sendi
hugskeyti og það komst til skila,“ rifjar hann upp. Bætir samt
við að þetta hafi ekki gengið vandræðalaust fyrir sig. „Nafn-
inu var hafnað vegna þess að afi barnsins hét ekki Brekkan
heldur langafinn. Það varð til þess að afinn tók upp Brekkan-
nafnið.“
HUGSKEYTI PÉTURS KOMST TIL SKILA
MDýrgripirnir verða til »14
Brekkan leikur að nafni