Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Page 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Page 15
frægðinni, ef það er þekkt. Sem betur fer koma nýjar kynslóðir og taka upp kyndilinn. En það blund- ar alltaf í manni að gera eitthvað.“ Leiðinlegt að koma sér á framfæri Víkjum aðeins að þjóðfélagsmálum, þú ert vinstrimaður, er það ekki rétt? „Ég hef heillast af einstaka áherslumálum en aldrei verið sér- lega flokkspólitískur. Árið 1974 var ég í framboði fyrir Samtök frjáls- lyndra og vinstri manna og stýrði kosningabaráttunni úti í Eyjum ásamt skipstjóra sem kallaður var Villi Fischer. Villi sagði að við þyrftum að tryggja allnokkur vafa- atkvæði á kjördag og þyrftum því að vera vel nestaðir. Við blönd- uðum vodka út í pilsner og rúnt- uðum um bæinn og í ljós kom að einstaka maður þurfti á hvatningu að halda, þar á meðal norskur maður. Ég sagði við hann: Jæja vinur, þú manst að þú átt að kjósa F! Jú, hann var með það á hreinu. Þú færð verðlaun þegar þú ert bú- inn, sagði ég. Við keyrðum hann á kjörstað og eftir að hafa kosið sagði hann við mig: „Ég kjosar al- tid F fordi jeg hober at Framsokn vinnur.“ Við töpuðum þessum kosningum með glæsibrag. Ég er félagshyggjumaður, frem- ur til vinstri en hægri. Mér finnst einkennilegt að horfa upp á það hvernig sumir miðjuflokkar hafa látið knýja sig til að skerða hlut þeirra sem eiga erfitt. Þar á ég til dæmis við velferðarkerfið en reynt hefur verið að höggva að rótum þess. Nýjasta útspilið var að auka kostnaðarhlutdeild sjúklinga sem þurfa að taka nauðsynleg lyf. Mín skoðun er sú að þjóðfélagið eigi frekar að létta undir með þeim sem þurfa nauðsynlega á lyfjum að halda fremur en að gera þeim erf- itt fyrir.“ Á löngum ferli hefurðu verið í ýmsum hljómsveitum, eins og Hálft í hvoru og Islandica. Er ein- hver hljómsveit sem hefur verið þér meira virði en önnur? „Ég held að Islandica standi að mörgu leyti upp úr vegna þess að þar var svo mikil sköpun í gangi. Á ferlinum hef ég unnið með mjög góðum tónlistarmönnum og það hefur gefið mér gríðarlega mikið. Það er ógleymanlegt að hafa spilað með mönnum eins og Guðmundi Ingólfssyni píanóleikara, Þóri Bald- urssyni, Bítladrengjunum blíðu, vinum og félögum mínum úr Eyj- um. Allt eru þetta miklir öðlingar. Ólafur Þórarinsson, Labbi, er sá maður sem hefur hvatt mig mest seinni árin og honum finnst að ég eigi að vera duglegri við að koma mér á framfæri. Það leiðinlegasta sem ég geri er einmitt að koma mér á framfæri. En það neyðast tónlistarmenn víst til að gera.“ Morgunblaðið/Eggert 30.6. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 ÖRYGGISVÖRUR IÐNAÐARMANNSINS OG VERKTAKANS FULL BÚÐ AF ÖRYGGIS- OG REKSTRARVÖRUM. KÍKTU Í KEMI BÚÐINA OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ! Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 544 5466 Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.