Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Side 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Side 16
*Náttúrufegurð Alaska er einstök og veitingastaði með ferskt sjávarfang er víða að finna »18Ferðalög og flakk Við vinkonurnar ákváðum að skella okkur í borgarferð og gistum á hóteli í hverfi sem heitir Kreuzberg og var áður þekkt sem hverfi fyrir tyrkneska innflytjendur en nú síðustu ár hafa fleiri og fleiri listamenn og ungt fólk sest að þar og nú iðar þar allt af mannlífi, góðum mat og mörkuðum. Vinur minn er fæddur og uppalinn í Berlín og hafði lítið fyrir að lóðsa okkur um borgina – þvílík forréttindi að fá Berlín beint í æð! Við kíktum á 48 klukkustunda menningarnótt í Neuköln, heimsóttum Helfarar-minnisvarðann og Berlínarmúrinn en síðan lá leiðin út fyrir Berl- ín á Open Air festival með vinum sem við höfðum kynnst um helgina. Berl- ín er dásamleg og hefur upp á svo margt að bjóða. Mig langaði alls ekkert heim enda hellingur af hlutum sem við náðum ekki að gera í þessari ferð … en það er þá bara góð ástæða til að fara fljótt aftur! Telma Kristín Emilsdóttir Telma Kristín var sátt við Berlín og góða veðrið. Allt í boði í Berlín Sólin skein á minnisvarðann. PÓSTKORT F RÁ BERLÍN J esús Kristur var maður sátta og samlyndis. Mótmælin og ólgan sem gengið hafa yfir Brasilíu undanfarna daga hefðu því eflaust ekki verið honum að skapi. Og svo þarf hann að horfa upp á ófriðinn af stalli sínum á Carcovado-fjalli yfir Ríó de Janeiró, þar sem hann hefur staðið án þess að haggast í meira en átta áratugi – með opinn faðminn. Styttan „Frelsarinn“ hefur um langt skeið verið helsta kennileiti Ríó og landsins alls, ef út í það er farið. Hún var reist á árunum 1926 til 1931. Styttan var gerð á há- punkti deco-listarinnar og er, að því er næst verður komist, umfangsmesta listaverk þeirrar gerðar í heim- inum. Styttan er þrjátíu metra há og þá er stallurinn, átta metrar, ekki talinn með, og faðmurinn er hvorki meira né minna en 28 metrar. „Frelsarinn“ vegur 635 tonn. Styttan er í senn tákn fyrir kristindóm og frið en fram- kvæmdin var að mestu fjármögnuð af kaþólikkum í Brasilíu. Kostnaður var tæpar 400 milljónir króna á núvirði. Verkfræð- ingurinn Heitor da Silva Costa hannaði styttuna en hún var höggvin af fransk/pólska myndhöggvaranum Paul Landowski. Innra lagið er styrkt steypa og tálgusteinn hið ytra. Var það efni valið vegna góðrar endingar. Fyrir sjö árum helgaði erkibiskupinn af Ríó kapellu undir styttunni sem þýðir að nú geta kaþólikkar efnt þar til skírna og hjónavígslna. Njóta slíkar athafnir að vonum vinsælda. Á ýmsu hefur gengið gegnum tíðina. Fyrir fimm árum varð „Frels- arinn“ fyrir eldingu og laskaðist lítillega á höfði og fingrum. Gert var að sárum hans. Mikil reiði braust síðan út fyrir þremur árum þegar húsamálari nokkur krotaði á Krist í nafni graffítílistar. Honum var stungið í steininn. Enda þótt „Frelsarinn“ í Ríó sé án efa frægasta Jesústytta í heimi er hún aðeins sú þriðja stærsta. Cristo de la Concordia í Cochabamba í Bólivíu var lengi sú stærsta, 44 metrar, en fyrir þremur árum var vígð ný stytta af Kristi í bænum Swiebodzin í Póllandi sem er hvorki meira né minna en 52 metrar með kórónu og stalli. AFP FRÆGASTA JESÚSTYTTA Í HEIMI Frelsi en ekki helsi „FRELSARINN“ VAKIR YFIR LIFENDUM OG DAUÐUM Í RÍÓ DE JANEIRÓ Í BRASILÍU OG LÆTUR EKKERT KOMA SÉR ÚR JAFNVÆGI – EKKI EINU SINNI ELDINGAR. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.