Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Síða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Síða 20
*Heilsa og hreyfingAð fá sér prótein eftir æfingu er ekki endilega betra en kolvetni samkvæmt nýrri rannsókn »22 S vefnleysi og svefntruflanir eru mjög algeng vanda- mál hér á landi, segir Erla Gerður Sveinsdóttir, læknir á Heilsuborg. Hún segir að það sé ekki hættulegt að missa stöku sinnum svefn en verði svefntruflun langvarandi getur það verið heilsuspillandi. „Svefnvandamál hefur margþættar afleiðingar í för með sér. Fólk velur sér óheppilegri lífsstíl, er líklegra til að borða ruslfæði, líklegra til að sleppa líkamsræktinni og ræktar síður fjölskylduna vegna þreytu. Þetta hreinlega dregur úr lífsgæðunum,“ segir Erla Gerður. Hún segir að í allri heilsuumræðunni undanfarið hafi stór þáttur eins og mikilvægi svefnsins ekki verið eins áberandi. „Það er alltaf verið að tala um mataræði og hreyfingu. Í boði eru endalausir matarkúrar og margir misgáfulegir en það er lítil áhersla lögð á svefninn og vil ég vekja at- hygli á því.“ Erla hefur verið öflug í að halda fyrirlestra um svefn og svefnleysi þar sem hún gefur meðal annars ráð um heppilegar svefnvenjur. „Þessu er gríðarlega vel tekið, þarna leiðbeini ég fólki hvernig er hægt að laga svefnvanda og leiðrétti ýmsar mýtur. Svo finnst mér svo gaman að sumir fara beinlínis eftir þessu,“ segir hún og hlær. „Annars er ég er mjög hlynnt því að reyna að taka á vandamálunum sjálf án þess að nota lyf en ef við notum lyf, vil ég skoða leiðir til að lágmarka notkun þeirra.“ Á dögunum skrifaði Erla Gerður pistil á heilsusíðuna Heilsutorg.com og gaf hún þar tíu ráð við svefnvanda sem koma að góðum notum. Það er mikilvægt fyrir líkamann að fá góðan svefn enda fer fram mikil starfsemi í líkamanum þegar við sofum. SVEFNINN ER MIKILVÆGUR ÖLLUM Svefntruflanir draga úr lífsgæðunum LANGTÍMASVEFNLEYSI HEFUR MARGÞÆTTAR AFLEIÐINGAR FYRIR HEILSUNA EN VANDAMÁLIÐ HEFUR EKKI VERIÐ MIKIÐ Í UMRÆÐUNNI AÐ MATI ERLU GERÐAR SVEINS- DÓTTUR LÆKNIS. HÉR GEFUR HÚN NOKKUR GÓÐ RÁÐ VIÐ ÞESSU ALGENGA VANDAMÁLI. Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Læknirinn Erla Gerður hefur verið að hjálpa fólki að vinna bug á svefnleysi. Morgunblaðið/Ernir 1.Regla á svefntíma. Mikilvægter að fara að sofa á svipuðum tíma og vakna á svipuðum tíma. Líka á frídögum og um helgar. 2.Forðumst daglúra, sér-staklega seinnipart daga. Þeir sem sofa ekki vel um næt- ur þurfa að gæta þess að falla ekki í þá algengu gryfju að dotta yfir sjónvarpinu á kvöldin. 3.Rólegheit í aðdraganda svefns.Mikilvægt er að aðdragandi svefnsins sé rólegur og ávallt með svipuðum hætti. Hver og einn þarf að finna hvaða venjur henta best. Mikið áreiti frá ljósi svo sem tölvu og sjónvarpi er ekki hentugt stuttu fyrir svefninn. Heitt bað fyrir svefninn hjálpar mörgum að sofna. 4.Svefnvænt umhverfi.Svefnherbergið þarf að vera hæfilega dimmt, hæfilega svalt og rúmið þægilegt. Stemma þarf stigu við hávaða eða annarri truflun úr umhverf- inu. Sjónvarp, tölvur eða handa- vinna í svefnherbergi er ekki til þess fallið að bæta svefn. 5.Förum framúr ef við getum ekkisofið. Forðumst mikið ljós- áreiti, höldum umhverfi rólegu, lesum, leggjum kapal, ráðum krossgátu eða annað sem dreifir huganum og förum aft- ur upp í rúm þegar okkur syfj- ar. 6.Lærum slökun. Slökun afýmsum toga getur bæði hjálpað okkur að sofna á kvöldin og auðveldað okkur að sofna aftur ef við vöknum um nætur. Streituhormónin eru fljót að trufla getu okkar til að sofna ef við látum pirringinn yfir svefnleysinu ná tökum á okkur. 7.Regluleg hreyfing á daginn. Dag-leg hreyfing eykur gæði svefns auk þess að efla heilusna al- mennt. Hreyfing vinnur gegn áhrifum streitu á mið- taugakerfið. 8.Forðumst kaffi og aðrakoffíndrykki. Koffín er örvandi efni og er lengi að brotna niður. Þeir sem eru við- kvæmir fyrir svefntruflun af völdum koffíns verða því að gæta þess að innbyrða það ekki síðla dags. 9.Áfengi og reykingar trufla svefn.Áfengi er deyfilyf og því finna margir slökunaráhrif þegar þeir nota áfengi og telja það geta hjálpað til við að sofna. Nið- urbrotsefni áfengis valda hins- vegar streituáhrifum í lík- amanum og trufla svefn. Heildaráhrifin eru því svefn- truflandi og forðast ætti notk- un þess. Fráhvarf vegna reyk- inga truflar svefn. 10.Reglulegar máltíðir. Förumhæfilega södd að sofa og forðumst þunga máltíð fyrir svefn. Létt næring svo sem flóuð mjólk getur hjálpað til við að sofna. Tíu góð svefnráð

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.