Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Síða 22
Gott er að taka
sprett upp
tröppur til að ná
upp púlsinum.
Morgunblaðið/Ómar
N
ýlega varði Atli Arnarson dokt-
orsritgerð sína frá Háskóla Ís-
lands um áhrif styrktarþjálfunar
og fæðu á heilsutengda þætti hjá
eldra fólki. Rannsóknin, sem framkvæmd var
af Rannsóknarstofu í Næringarfræði, hófst
haustið 2008 og lauk í desember 2009, en síð-
an þá hefur gagnaúrvinnsla og ritun vís-
indagreina farið fram.
Þetta er fyrsta rannsókn á Íslandi sem
skoðar þessi mál og er ein stærsta sinnar teg-
undar í heiminum.
Atli fékk til liðs við sig 236 karla og konur
á aldrinum 65-91 árs og skipti hópnum í tvo
jafna hluta. Báðir hóparnir stunduðu styrkt-
arþjálfun þrisvar í viku í tólf vikur. Annar
hópurinn fékk mysupróteindrykk strax að æf-
ingu lokinni en hinn kolvetnadrykk. Báðir
drykkir innihéldu sama magn af hitaeiningum.
Enginn munur á hópunum
Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að enginn
marktækur munur var á aukningu í vöðva-
massa og vöðvastyrk og líkamlegri færni hjá
hópunum tveimur. „Niðurstöðurnar komu mér
svo sem ekki á óvart, en ef ég á að vera
hreinskilinn hefði verið gaman að fá mun af
því að við vitum að prótein skipta máli,“ segir
Atli. Hópurinn sem tók þátt í rannsókninni
hafði svarað auglýsingu og segir Atli að í hana
hafi valist fólk sem hafði áhuga á heilsu og
hreyfingu. „Fólkið var því frekar hraust og
með hátt hlutfall próteina í mataræðinu,“ seg-
ir Atli, en það gæti hafa skýrt að hluta hvers
vegna enginn munur kom fram. „Það gæti
hafa þynnt út áhrifin af drykknum að fólkið
fékk nóg af próteinum í fæðinu,“ segir hann.
Vöðvamassi rýrnar
Atli segir að það sé mjög mikilvægt fyrir
eldra fólk að stunda styrktarþjálfun þar sem
vöðvamassi rýrni með aldrinum. „Við vildum
sjá hvort próteingjöf gæti aukið áhrif þjálf-
unar á vöðvamassa og vöðvastyrk,“segir Atli.
Aldurstengd vöðvarýrnun getur leitt til veru-
legrar skerðingar á lífsgæðum fólks. Hann
segir ekki hægt að yfirfæra þessar nið-
urstöður á yngra fólk og telur hann inntöku
próteina mikilvæga eftir æfingar, sérstaklega
ef mataræði er ábótavant. „Tvímælalaust, pró-
tein eru mjög góð eftir æfingu,“ segir hann,
„þó að rannsóknin okkar bendi til þess að pró-
tein fæðubót sé óþörf meðal ákveðinna hópa
fólks,“ segir Atli.
Mysuprótein meinhollt
Nú þegar hafa birst sex vísindagreinar úr
rannsókninni í erlendum fagtímaritum en bú-
ast má við að þær verði yfir tíu talsins. Ein
ástæðan fyrir því að ákveðið var að skoða
áhrif mysupróteina er að þau voru áður van-
nýtt auðlind sem fór til spillis. „Mysa er ein
besta uppspretta hágæða próteina,“ segir Atli.
Aðrar niðurstöður úr rannsókninni sýndu að
blóðfita lækkaði marktækt á rannsókn-
artímabilinu. Atli segist hafa fullan hug á
áframhaldandi rannsóknum tengdum næring-
arfræði.
HEILSA Á EFRI ÁRUM
Próteinið breytti engu
MIKILVÆGT ER FYRIR ELDRA FÓLK
AÐ STUNDA STYRKTARÞJÁLFUN TIL
AÐ VIÐHALDA VÖÐVAMASSA SEGIR
ATLI ARNARSON SEM NÝVERIÐ
VARÐI DOKTORSRITGERÐ Í NÆR-
INGARFRÆÐI. ENGINN MARKTÆK-
UR MUNUR VAR Á HEILSU FÓLKS
SEM FÉKK PRÓTEINDRYKK OG
ÞEIRRA SEM FENGU KOLVETNI AÐ
LOKINNI ÆFINGU.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
„Niðurstöðurnar komu mér svo sem ekki á óvart,
en ef ég á að vera hreinskilinn hefði verið gaman
að fá mun af því að við vitum að prótein skipta
máli,“ segir Atli Arnarson doktor í næringarfræði.
Morgunblaðið/Rósa Braga
* Sex vísindagreinarúr doktorsrannsóknAtla hafa birst í erlendum
fagtímaritum.
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.6. 2013
Heilsa og hreyfing
* 236 Íslendingar á aldrinum 65-91tóku þátt í rannsókninni.
* Hópurinn var í styrktarþjálfunþrisvar í viku í tólf vikur og fékk
helmingur mysupróteindrykk að lok-
inni æfingu en hinn helmingur fékk
kolvetnadrykk.
* Neysla á 20 g af mysupróteinumstrax að loknum styrktaræfingum
bætir ekki árangur hjá eldra fólki ef
litið er til aukningar á vöðvamassa,
vöðvastyrk og líkamsfærni.
* Ekki hægt að yfirfæra niðurstöð-urnar á yngra fólk.
* Próteingjöf mikilvæg eftir æfing-ar, sérstaklega ef mataræði er ábóta-
vant.
* Mysa ein besta uppspretta há-gæða próteina.
* Styrkur IGF-1 (hormón í lík-amanum) og blóðfita lækkaði mark-
tækt á tímabilinu í heildina hjá öllum.
* Nýrnastarfsemi batnaði í heildinahjá öllum.
PRÓTEINGJÖF EFTIR ÆFINGU
Rannsóknin