Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Page 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.6. 2013 Græjur og tækni Ef marka má spár sérfræðinga er einkatölva á fallanda fæti, eðakannski réttara að segja að hún sé að ganga í gegnum miklarbreytingar, breytast úr borðtölvu í spjaldtölvu. Það er nefnilega svo að margt, jafnvel flest eða allt það sem fólk stússar við í borðtölvu heimilisins er hægt að gera í spjaldtölvu. Í ljósi þess að spjaldtölvur eru ódýrari og einfaldari og þægilegri í notk- un en borðtölvur ætti því sú spá ekki að koma á óvart að spjaldtölvur fari framúr borðtölv- unni á næstu tveimur árum. Obbinn af þeim spjald- tölvum verða af ódýrari gerðinni og af þeim er nóg. Stórir framleiðendur, sem hafa kannski verið þekktir fyrir borð- eða fartölvur hingað til, hafa líka spreytt sig á spjald- tölvum, með misjöfnum árangri enda hafa þeir oft verðlagt sig útaf kortinu. Það kemur því þægilega á óvart að HP kynnti á dögunum nýja spjaldtölvu, Slate 7, sem kostar 34.990 kr. Slate 7 er með 7" skjá, eins og heiti hennar ber með sér. Hún er 19,7 sm á hæð, 11,6 á hæð og rétt rúmur sentimetri á þykkt. Bakið á henni er úr stömu plasti, rauðu eða ljósgráu, en kanturinn úr áli sem gerir hana þyngri en á vélum með plastboddíi, en fyrir vikið er hún miklu traustbyggðari og þolir því væntanlega meira hnoð og hnjask. Skjárinn prýðilega bjartur en upp- lausnin ekki nema 1024 x 600. Hlutföll á honum eru sérkennileg; þegar skjárinn er láréttur er allt aðeins breiðara en það ætti að vera en ef hann er lóðréttur er það aðeins hærra. Þegar allir eru að keyra sama stýrikerfið er erfitt að skera sig úr. Ýmsir sem framleiða Android-farsíma skella á þá sérstökum notenda- skilum, en það eina sem HP býður upp á sér- stakt á Slate 7 er prentforrit, sem er þeirrar náttúru að hægt er að prenta beint úr símanum í þartilgerða HP-prentara. Sú viðbót er reyndar smáforrit, app, sem svosem er hægt að sækja í öll Android-tæki og iOS-tæki líka. Á bakinu á sjá Beats Audio-merki enda samdi HP um að Beats myndi sjá um heyrnartólshlut- ann. Hljómur í heyrnartólum er líka fínn, hugs- anlega vegna samstarfsins, en hljómur í vélinni almennt, í hátölurunum, er ekki beysinn, en tvær hátalararaufir eru neðan á henni. HP Slate 7 er prýðileg spjaldtölva fyrir þenn- an pening, en skjárinn er helsti mínusinn. PRÝÐILEG SPJALDTÖLVA TÖLVURISUNUM HEFUR GENGIÐ ILLA AÐ FÓTA SIG Á SPJALDTÖLVUMARKAÐI. HP, STÆRSTA TÖLVUFYRIRTÆKI HEIMS, KYNNTI Á DÖGUNUM NÝJA 7" SPJALDTÖLVU, SLATE 7. * Næstnýjasta útgáfa Android,4.1.1, er á vélinni, Jelly Bean, og þá með það sem Google-bændur kalla Project Butter sem gerir snertiskjáinn betri, eða réttara sagt svörun tölvunnar við hreyf- ingum skilvirkari. 4.1.1 kom út fyrir rétt tæpu ári, en engum sög- um fer af því hvenær hægt verður að uppfæra hana í 4.2. * Í vélinni er ARM A9 DualCore örgjörvi með tiftíðnina 1,6 Ghz. Minni í vélinni sem ég próf- aði er 8 GB, en vinnsluminni 1 GB. HP selur líka 16 GB útgáfu. Svo er rauf fyrir minniskort sem getur verið allt að 32 GB. * Þetta er ekki fyrsta tilraunHP með spjaldtölvu, HP Touch- Pad kom á markað 1. júlí 2011 og var tekin af markaði 18. ágúst sama ár. Hún notaði stýrikerfi úr smiðju HP sem kallaðist WebOS. Einnig selur HP spjaldtölvur sem keyra Windows 8 en þær eru stærri og talsvert dýrari. ÁRNI MATTHÍASSON Græja vikunnar Þ vert á það sem sem áður var talið hafa vísindamenn við Harvard-háskóla nú fært sönnur á að stærðin skiptir máli. Að vísu er ekki átt við líkamlega stærð í þessu tilfelli, en líkamlegt atgervi hefur þó sitt að segja. Það sem skiptir máli virðist hins vegar fyrst og fremst vera á hve stórum skjá þú svarar tölvu- póstinum þínum (eða vinnur önnur hversdagsverk) og hér gildir mjög einföld regla: Stærra er betra. Þetta hljómar sérkennilega, en við rannsókn á 75 þátttakendum í könnun við Harvard-skóla kom í ljós að þeir sem notuðu stærri tæki sýndu af sér meiri ákveðni og valdatilburði í félagslegum sam- skiptum en þeir sem notuðu minni tæki. Og munar þar talsvert á. Við framkvæmd rannsóknarinnar fengu viðfangsefnin í hendur ákveðin verkefni sem átti að leysa. Til þess voru notuð 4 tæki, ólík að stærð. Minnst var notað iPod to- uch (sama stærði og iPhone), því næst iPad. Næststærst var svo Macbook Pro fartölva, en stærst var iMac-borðtölva. Eftir að hafa notað tækin í nokkra stund við að leysa verkefni var viðfangsefnum sagt að rannsakandi þyrfti að sækja eyðublöð til að fylla út, en ef hann væri ekki kominn til baka eftir fimm mínútur, þá skyldi hann sóttur í afgreiðsluna. Rannsakandi beið hins vegar í öllum tilfellum í 10 mínútur í afgreiðslunni áður en hann sneri til baka, en fylgst var með hve stór hluti fór til að sækja rannsakandann og hve lengi við- föngin biðu áður en þau lögðu af stað til að sækja hann. Fóru alltaf og biðu skemur Niðurstöðurnar eru ansi sláandi. Það reyndist vera mjög sterkt samband á milli þess hve lítið eða stórt tækið var og þess hvort við- föng fóru að sækja rannsakanda annars vegar, og hins vegar hve lengi þau biðu áður en þau fóru til að sækja hann. Notendur iPod to- uch sóttu rannsakanda einungis í 50% tilfella, iPad í 71% tilfella, Macbook Pro í 88% tilfella og iMac í 94% tilfella. Sama línulega aukning á biðtíma var augljós í niðurstöðum rann- sóknarinnar, nema að hún gekk í hina áttina. Það er að segja, not- endur iMac biðu einungis í 341 sekúndu áður en þau sóttu rann- sakanda, en biðtíminn stighækkaði, 419 sekúndur hjá Macbook Pro, 437 hjá iPad og 493 hjá iPod to- uch. Vísbendingarnar gætu því vart verið sterkari. „Stöðug aukning biðtíma er í fullkomnu samræmi við stærð tæk- isins. Ég hef aldrei á ævi minni séð svo fallegt samhengi,“ sagði Maarten Bos, annar af höfundum rannsóknarinnar, í viðtali við Working Knowledge, eitt af vef- tímaritum Harvard-háskóla í síð- ustu viku. Stærð er óbeinn áhrifaþáttur Þrátt fyrir að sterk fylgni hafi ver- ið á milli tækja og hegðunar í þessari rannsókn, telja rannsak- endur ekki að tækið sjálft sé or- sakavaldur í þessu tilfelli, heldur vilja þeir frekar tengja þetta við niðurstöður fyrri rannsókna hins höfundarins, Amy Cuddy, sem er félagssálfræðingur við Harvard Business School. Rannsókn sem fór fram við Columbia- og Har- vard-háskóla árið 2010 undir stjórn Cuddy sýndi sterka fylgni á milli þess að taka líkamsstöðu sem mætti kalla valdastöðu (power pose) og valdsmannlegrar hegð- unar, en fyrirlestur hennar á Ted- .com um þær niðurstöður hefur fengið meira en 6 milljón áhorf. Líkamsstöður eru dæmi um orð- laus tjáskipiti og samkvæmt rann- sóknum Cuddy hafa þau áhrif á líkamsstarfsemi okkar, einkum framleiðslu hormónanna te- stósterón og cortisol. Valdastöður eru opnar, gleiðar líkamsstöður, líkt og að standa gleiður með hendur á mjöðmum, eða halla sér aftur með fætur uppi á borði og hendur fyrir aftan haus. Þegar þessi staða er tekin eykst fram- leiðsla testósteróns og dregur úr framleiðslu cortisols í líkamanum, sem skapar aukna valdatilfinningu. Valdleysisstöður eru aftur á móti lokaðar og samandregnar, líkt og að sitja boginn í baki með hendur í kjöltu, eða standa með hendur meðfram síðum eða krosslagðar. Í slíkum stöðum framleiðir líkaminn aftur á móti meira af cortisol og minna af testósteróni. Það má auðveldlega sjá hvernig slíkar líkamsstöður birtast við tækjanotkun. Þegar við sitjum og vinnum með snjallsíma þurfum við jafnan að vera bogin í baki til að sjá almennilega á lítinn skjáinn, með hendurnar meðfram síðunum til að hafa betri stjórn á litlu lykla- borði. Eftir því sem tækið stækk- ar, og skjárinn og lyklaborðið gera okkur kleift að sitja og starfa í gleiðari stöðum, eykst valdatilfinn- ing okkar. Síminn betur skilinn eftir á fundum Sterkt samband á milli tækjanotk- unar og hegðunar ætti þó að vera mörgum umhugsunarefni. Það virðist til dæmis vera afbragðs- hugmynd að sleppa því að skoða tölvupóstinn í símanum á fundum eða við aðrar aðstæður sem krefj- STÆRRI SKJÁR FÆRIR AUKNA VALDATILFINNINGU Stærðin skiptir máli * Sterkt sambandmilli tækj-anotkunar og hegð- unar ætti að vera umhugsunarefni. NÝ RANNSÓKN SEM FRAMKVÆMD VAR VIÐ HARVARD BUSINESS SCHOOL BENDIR TIL AÐ STÆRÐ FJARSKIPTATÆKJA SEM MAÐUR VINNUR MEÐ HAFI MIKIL ÁHRIF Á SJÁLFSTRAUST OG HEGÐUN. Sveinn Birkir Björnsson sveinnbirkir@gmail.com Það skapar minnsta valdatilfinningu að nota snjallsíma. Einungis 50% þeirra sem notuðu síma sóttu rannsakand- ann og biðu að meðaltali í 493 áður en til þess kom. Notkun spjaldtölvu skapar minni valdatilfinningu en að nota tölvu. Spjaldtölvunotendur sóttu rannsakandann í 71% tilfella og biðu í 437 sekúndu áður en hann var sóttur.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.