Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Page 38

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Page 38
*Föt og fylgihlutir Í tískuborginni London má finna fjölda verslana þar sem hægt er að fjárfesta í fallegum flíkum »40 Hvernig myndir þú lýsa þínum fatastíl? Hann er þokkalega einfaldur, ekkert vesen og ekkert ýkt. Hælar og strigaskór eru alveg jafn fínir – leðurjakki og gallabuxur eru líka (næstum) alltaf við hæfi. Hver eru bestu fatakaupin þín? Það eru án efa allar svartar þröngar gallabuxur sem ég hef átt í gegnum tíðina. Þær eru óteljandi margar en ég hef notað þær allar þar til þær eru upplitaðar og götóttar, kaupi mér þá nýjar en held samt alltaf áfram að nota þær gömlu. Manstu eftir einhverjum tískuslysum sem þú tókst þátt í? Þau eru allavega nokkur, ekkert kannski sem ber af. Nema jú tíma- bilið þar sem ég þráði ekkert heitar en að vera alveg eins og Blair úr Gossip Girl. Ég gerði hvað sem ég gat til þess að stela hennar stíl. Blúndur, pils, nælonsokkabuxur og hárspangir voru ekki sjaldgæf sjón, og ég verð að segja að mér tókst bara frekar vel til. Hverju er mest af í fataskápnum? Einföldum bolum sem ég nota næstum aldrei. En ekki misskilja, ein- faldir bolir eru nauðsynlegir, ég á bara nokkra uppáhalds sem trompa næstum alltaf alla hina. Hvar kaupir þú fötin þín? Það er mjög misjafnt. Síðustu mánuði hef ég reglulega lagt leið mína til London þar sem ég kemst í búðir á borð við Cos, Topshop (þar sem er örlítið meira úrval en á Íslandi), American Apparel o.fl. sem hafa verið í einskonar uppáhaldi hjá mér síðstu mánuði. Ætli ég muni ekki líka nýta mér Asos vel á næstu mánuðum. Áttu þér einhvern uppáhaldsfatahönnuð? Það er nú enginn einn uppáhalds, samt eru þó nokkur tískuhús sem ég skoða með meiri áhuga en önnur: Alexander Wang, Balmain, Balenciaga og Helmut Lang eru svona þau fyrstu sem mér dettur í hug. Hvar færð þú innblástur fyrir fataval þitt? Það kemur ýmsum áttum. Bæði af internetinu og þá aðallega bloggum og síðum sem tímarit halda úti. Ég er líka tímaritasjúk og eru tímaritakaup einn af mínum stærstu veikleikum. En dagsdaglega er ég samt umkringd svo frábærlega flottu fólki að ég þarf varla að leita lengra en þangað til þess að finna minn innblástur. Hver er flottasta búð sem þú hefur komið í? Dover Street Market í London er ein sú allra flottasta. Fimm hæðir af unaðslegum hönnunarvörum. En fyrir námsmann eins og mig dugar þó að skoða vel og næla mér svo í einn kaffibolla á kaffihúsinu sem leynist á efstu hæð. Hver er veikleiki þinn: Föt, skór eða skart? Skór verð ég að segja. Það er fátt sem grípur athyglina jafn auðveldlega og fallegir skór. Hvert er þitt eftirlætis-tísku-tímabil og hvers vegna? Tíundi áratugurinn – því ég elska magaboli jafn mikið nú og þegar ég var 7 ára.Hönnunarbúðin Dover Street er í miklu uppáhaldi hjá Alexöndru. Alexandra er í starfsnámi hjá tímaritinu Dazed & Confused. ALEXANDRA ÓSK ER SKÓFÍKILL Sækir mest í svartar gallabuxur ALEXANDRA ÓSK STUNDAR NÁM Í GRAFÍSKRI HÖNN- UN VIÐ LISTAHÁSKÓLA ÍSLANDS. UM ÞESSAR MUNDIR ER HÚN Í STARFSNÁMI HJÁ TÍSKUTÍMARITINU DAZED & CONFUZED OG ER FLUTT TIL LONDON … Í BILI. Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Alexandra Ósk hefur einfaldan og fágaðan stíl. Balmain er virkilega smart tískuhús og er Alexandra hrif- in af merkinu. Á tímabili vildi Alex- andra klæða sig eins og Blair Waldorf úr þáttunum vinsælu Gossip Girl.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.