Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Page 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Page 39
30.6. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 Lín Design Laugavegi 176 Sími 5332220 www.lindesign.is 3 áraábyrgð Gjöfin sem gleður ár eftir ár Framrúðuviðgerðir Gerum við og skiptum um bílrúður fyrir öll tryggingafélög Skeifan 2 • Sími 530 5900 • www.poulsen.is F lækjustigið í lífi konunnar eykst til muna þegar hún ákveður að fjölga sér. Í 10 mánuði er líkami konunnar uppfullur af hormónum sem má auðvitað kenna um ýmislegt sem miður fer á meðgöngu og jafnvel seinna í lífinu – ef nauðsyn krefur. Ójafnvægi á horm- ónabúskap kallar á ýmsar klikkaðar at- hafnir sem líklega allar vitibornar mæður geta staðfest eða hafa heyrt af. Hver hefur ekki heyrt sögur af kon- um sem borða mold á meðgöngunni og bryðja klaka eins og enginn sé morg- undagurinn. Undirrituð tók nokkur tryllingsköst á þessum tímapunkti í lífi sínu. GSM-símum var grýtt í veggi, mönnum og konum var hótað, keyrt var í næsta bæjarfélag til að kaupa Snöre (sem er sænskur saltlakkrís) og svo skúraði ég svalirnar á föstudags- kvöldi (sem rataði reyndar í gulu press- una). Þá var undirrituð við sturl- unarmörk vegna partístands á neðri hæðinni og þegar gleðin stóð sem hæst ákvað bugaða ólétta konan að skúra svalirnar þannig að vatnið lak niður á allt fína tískuliðið sem var að reykja og dansa á jarðhæðinni … eins og konur gera … á föstudags- kvöldum … Svalaþvotturinn ógurlegi rifjaðist upp fyrir mér þegar ég hitti vinkonu á dögunum sem er nýbúin að eignast sitt þriðja barn. Þegar ég spurði hana hvernig væri að eiga þrjú börn, en ekki tvö, horfði hún á mig kæruleysislega og sagði: „Æi, ég veit það ekki, það á bara eftir að koma í ljós. En ég er brjáluð út í nágranna minn sem er á níræðisaldri.“ Að vera brjáluð út í níræðan ellilífeyrisþega vakti skiljanlega athygli mína. Þegar ég spurði hana nánar út í samskipti henn- ar við nágrannann kom í ljós að sú gamla hafði haft orð á því (viku eftir barnsburð vinkonu minnar) hvað hún gengi ferlega hægt saman. „Ef ég hefði ekki verið svona hrikalega aum í grindinni hefði ég hoppað yfir helvítis girðinguna og kýlt hana,“ sagði þriggja barna móðirin og var ekki skemmt. Við horfðumst í augu um stund og varð það þegjandi samkomulag okkar á milli að ég myndi láta grind- arhlaupið eiga sig þótt mig dauðlangaði að hjóla í þá gömlu … en það gerði ég ekki því við vinkon- urnar erum vandaðar. Mæður lenda allar í því á ein- hverjum tímapunktum í lífi sínu að maginn á þeim er eins og lint pitsudeig (sem hægt er að hnoða). Þá skellum við okkur í aðhaldssokkabuxur frá Wol- ford eða Dim, í klæðilegan kjól, til dæmis frá ELLU eða Zöru, og drögum athyglina að andlit- inu. Við setjum á okkur stóra skartgripi og gætum þess að brosa hringinn. Það klæðir nefnilega alla alltaf best. Þegar konan brosir hringinn tekur enginn eftir öllu pitsudeiginu sem hlussast inni í sokkabuxunum … martamaria@mbl.is „Ég er brjáluð út í nágranna minn“ Sokkabuxur frá Wolford. Aðhalds- sokkabuxur frá DIM. Þessi er frá Zöru. Armband frá Prada. Eyrnalokkar frá Miu Miu. Þeir fást á net- a-porter.com Það er fínt að fela pitsudeig- ið í þessum kjól frá Zöru. „Litli svarti kjóllinn“ kemur eins og himna- sending þegar pitsudeigið er of fyrirferðar- mikið. Þessi er frá ELLU.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.