Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Side 41

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Side 41
30.6. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41 tískuverslanirnar ásamt ilmvatns- og antíkbúðum og listaverkasölum. Dover Street Market, 17-18 Dover Street Innanhússmarkaður sem var stofnaður af hönnuði Comme des Garçon, Rei Kawakubo. Selur framúrstefnulega hönnun og merki á borð við Comme des Garçon, Givency og Lanvin. Design Museum, 28 Shad Thames Hönnunarsafn staðsett í miðri London, safnið sýnir það helsta sem er að gerast í vöruhönnun, innanhússhönnun, fatahönnun, grafískri hönnun og arkitektúr. Victoria and Albert Museum Cromwell Road Victoria og Albert-safnið var stofnað árið 1852. Safnið er stærst sinnar tegundar en það sýnir eingöngu fatnað og skraut- muni. Einstaklega merkilegt safn og nánast nauðsynlegt fyrir tískuáhugafólk að kíkja þangað ef leiðin liggur til London. Oxford Street Oxford Street er þekktasta verslunargata í Evrópu. Þar er endalaust úrval af búðum og heimsþekktum verslunarkeðjum eins og Selfridge & Co, Topshop, Primark og H&M. Greenwich Market, Greenwich High Street Á Greenwich-markaðnum geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi enda fjölbreytt úrval og einstakt andrúmsloft. Markaðurinn sam- anstendur af tískufatnaði, skart- gripum, listaverkum, leikföngum, antíkvörum en þar er einnig stór matvæla- og grænmet- ismarkaður. Portobello Road Market Einn þekktasti markaður borgarinnar. Á hverjum laug- ardegi fyllist Portobello Road af fallegum antíkfatnaði og not- uðum munum. Staðurinn er einnig þekktur fyrir skemmtilegt og afslappað andrúmsloft, bari og veitngastaði. One of a Kind, 259 Portobello Road, Notting Hill Verslun sem selur notaðan hátískufatnað. Sjarmerandi „vin- tage“-búð en hún er meðal ann- ars í uppáhaldi hjá ofurfyrirsæt- unum Kate Moss og Naomi Campbell. King’s Road, Chelsea Skemmtilegt hverfi sem býður upp á úrval af mismunandi verslunum, allt frá þekktum verslunarkeðjum upp í sjálfstætt starfandi hönnuði. Camden Market Markaður sem selur „vin- tage“-fatnað allt frá 1940, bækur og ýmsa notaða muni. Í Cam- den er um að gera að gefa sér tíma til þess að skoða og gramsa. Hönnuður Comme des Garcons, Rei Kawakubo, stofnaði innanhúsmarkaðinn á Dover Street en þar er seld framúrstefnuleg hönnun. NORÐURKRILL Fæst flestum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna. P R E N T U N .IS Betri einbeiting og betri líðan Þegar maður rekur sitt eigið fyrirtæki, er í fullu fjarnámi og á auk þess tvö ung börn, þá skiptir öllu máli að heilinn virki rétt og vel. Ég byrjaði að nota Norðurkrill fyrir fjórum mánuðum og fann nánast strax mun á mér. Einbeitingin varð betri auk þess sem ég varð vör við mjög jákvæð áhrif á lesblinduna hjá mér. Fyrir utan skarpari einbeitingu líður mér allri betur líkamlega og andlega. Það skiptir mig miklu máli að Omega 3 í Norðurkrill sé hreint og ómengað og eftir að hafa prufað þó nokkuð margar tegundir af Omega 3 olíum get ég fullyrt að Norðurkrill er besta Omgea 3 olía sem ég hef notað. Ég hvet alla þá sem vilja skerpa á minni og einbeitingu að taka inn Norðurkrill. Heilinn í okkur verðskuldar aðeins það besta. Jóhanna S. Hannesdóttir, þjóðfræðinemi og eigandi Sunnlenska.is NORÐURKRILL er eitt hreinasta og öflugasta form af OMEGA 3-fitusýrum. Unnið úr botnsjávardýrinu krill sem er veitt við ómengað Suðurskautið. Aðeins þarf 1-2 hylki á dag til að mæta dagsþörfinni og það er ekkert eftirbragð, uppþemba eða magaólga sem oft fylgir inntöku á fiski- og jurtaolíum. Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is Bandaríska leikkonan Allison Jann- ey er þekkt fyrir leik sinn í West Wing, American Beauty og Juno. Allison hefur mjög fágaðan stíl og var glæsileg á frumsýningu mynd- arinnar „The way back“ í New York í vikunni. Janney klæddist þar klassískum þröngum svörtum kjól, sem má segja að sé nokkurs konar skyldueign hverrar konu. Hún var í húðlituðum hælum við svarta kjólinn sem lífguðu upp á heildarklæðnaðinn. sigselma@gmail.com STELDU STÍLNUM Allison Janney AFP Zara – 6.995 „Nude“-litaðir ballerínu- skór eru klassísk eign. Next – 8.990 Einfaldur klassískur kjóll með fallegri áferð í efni. Karen Millen – 38.990 Þröngur hnésíður kjóll með graf- ískum áherslum og blúndu, sem eru skemmtilegar andstæður. Karen Millen – 32.990 Fallegir rúskinnshælaskór með opinni tá. Topshop – 3.990 Áberandi hálsmen fullkomnar „litla svarta kjólinn“. Topshop – 9.990 Látlaus og falleg leð- urtaska passar við allt. Svartur kjóll við húðlitaða skó Tískuhúsið Balenciaga hefur kært fyrrverandi yfirhönnuð fyrirtæk- isins, Nicolas Ghesquiére, fyrir nei- kvæð ummæli gegn fyrirtækinu í tímaritinu System. Í viðtali við tímaritið sagði Ghes- quiére tískuhúsið nánast hafa mergsogið sig og að vinnu- umhverfið hefði verið hver von- brigðin á fætur öðrum. Þetta var fyrsta viðtal Nicolas Ghesquiéres eftir að honum var óvænt vikið frá störfum í nóv- ember á síðasta ári en við starfi hans hjá Balenciaga tók fatahönn- uðurinn Alexander Wang. ÓSÆTTI HJÁ TÍSKURISA Balenciaga kærir fyrrverandi yfirhönnuð Nicolas Ghesquiere sendir Balenciaga kaldar kveðjur.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.