Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Side 42
*Fjármál heimilannaHagfræðingurinn Andri Valur Ívarsson reynir að leggja fyrir í hverjum mánuði til að spara fyrir íbúð
Andri Valur Ívarsson, hagfræðingur
og starfsmaður umboðsmanns skuld-
ara, var að klára BA í lögfræði og
stefnir á meistaranám í haust.
Hvað eruð þið mörg í heimili?
Við erum tvö í heimili ég og kær-
astan.
Hvað áttu alltaf til í ísskápnum?
Ég reyni að eiga alltaf skyr og ban-
ana til að fá mér milli mála þegar ég
verð svangur. Annars er það mjög
misjafnt eftir tímabilum hvort ísskáp-
urinn er tómur dögum saman eða
fullur af allskonar góðgæti.
Hvað fer fjölskyldan með í mat og
hreinlætisvörur á viku?
Bókhaldskerfið Meniga segir að
þetta sé á bilinu 15-25 þúsund á viku,
að öllu meðtöldu, matvöruverslunum,
mötuneyti, skyndibita, bakaríum og
slíku. Ég trúi Menigu.
Hvar kaupirðu helst inn?
Ætli Víðir verði ekki oftast fyrir
valinu. Sýnist Meniga styðja þá full-
yrðingu.
Hvað freistar helst í matvörubúð-
inni?
Síðast var það Cocoa Puffs. Fyrsta
skiptið sem ég kaupi svoleiðis í líklega
3-4 ár. Nammi freistar mín ekki sér-
staklega en ég er mjög ginnkeyptur
fyrir allskonar kruðiríi úr bakaríum,
enda alinn upp í einu því besta á land-
inu, Heimabakarí á Húsavík.
Hvernig sparar þú í heimilishaldinu?
Ég nota Menigu og ber mig þannig
saman við aðra sem eru í svipaðri
stöðu og ég. Svo veiði ég töluvert
sjálfur í matinn. Fugl og fisk og
hreindýr. Það er samt ekki víst að
maður spari mikið á því þegar upp er
staðið. Þó er klárlega skemmtilegra
að veiða í matinn sjálfur og hann
bragðast betur. Einnig nota ég
strætó að einhverju leyti, þar sem við
erum tvö um einn bíl.
Hvað vantar helst á heimilið?
Heimilið vantar bæði mat-
vinnsluvél og almennilega hrærivél.
Einn góðan veðurdag fjárfestum við í
slíkum græjum. Þangað til verður
tengdamóðir mín fyrir áframhaldandi
ónæði þegar við þurfum slík verkfæri
að láni.
Eyðir þú í sparnað?
Við reynum að leggja fyrir í hverj-
um mánuði, enda dreymir okkur um
að kaupa okkur íbúð einn góðan veð-
urdag. Það verður vonandi að veru-
leika.
Skothelt sparnaðarráð?
Það er að fara aldrei svangur að
versla í matinn.
NEYTANDI VIKUNNAR
Ginnkeyptur fyrir
kruðiríi úr bakaríum
Andri Valur Ívarsson notar Meniga og veiðir sjálfur í matinn enda skytta góð.
* Aurapúkinn tók eftir því aðútsölur eru hafnar í sumum fata-
verslunum, eitthvað fyrr en venju-
lega. Drífðu þig og gerðu góð kaup,
a.m.k. skárri en áður. Nýjasta tísk-
an er e.t.v. ekki í boði en þessi er
varla mikið verri en sú í fyrra.
* Útvegaðu þér smá landskikaog settu niður þínar eigin kartöflur.
Það er miklu ódýrara en að kaupa
þær alltaf úti í búð, og svo þarf
heldur ekki að fara eins oft í rækt-
ina. Töluvert puð er að stinga upp
garðinn að vori og taka upp að
hausti.
* Ræktaðu líka þínar eiginkryddjurtir. Það er lítið sem ekkert
mál í eldhúsglugganum eða í litlum
kassa úti á lóð. Miklu ódýrara en að
kaupa þær í verslunum og töluvert
betra, auðvitað!
* Hjólaðu út í sjoppu eða íheimsókn, ef ekki er mjög langt að
fara. Það stælir líkamann og sparar
bensín. Safnast þegar saman kemur.
púkinn
Aura-
Ræktaðu
garðinn þinn
S
parnaðarleiðir við akstur
hefur verið landsmönnum
hugleiknari á síðustu árum
vegna hrikalegra hækkana
á bensínverði. En árið 2005 kost-
aði lítrinn um 100 krónur, en í
dag kostar hann um 246 krónur.
Í gegnum tíðina hefur maður
heyrt að hægt sé að spara mikið
með því að halda jöfnum hraða á
bifreiðinni og ekki hafa gluggana
opna og þessháttar. Í samtali við
Stefán Ásgrímsson, ritstjóra blaðs
FÍB, kemur fram að þetta sé
hvort tveggja rétt. „En að-
altrikkið er að reyna að nýta sem
best allar aðstæður í umhverfinu,“
segir Stefán. „Ef þú ert að keyra
niður brekku, láta hann þá renna.
Þá fer ekki bensíndropi í gegn á
meðan. Þegar menn láta hann
renna svona þá ættu menn að
hafa hann í eins háum gír og
mögulegt er. Það er líka mik-
ilvægt að láta vélina aldrei erfiða,
þá eyðirðu svo miklu minna. Vera
jafnan léttur á bensíngjöfinni, láta
vélina snúast rólega. Bensínvélum
líður vel á 1800 snúningum og
dísil á 1500 og alveg niður í 1200.
Það er skífa í mælaborðinu sem
sýnir hversu mikill snúningur er
á vélinni, yfirleitt stendur einn
fyrir eitt þúsund og menn ættu
því ekki að hafa örina í mælinum
neitt á milli annarra talna en eins
og tveggja.
Svo er aksturstölva í flestum
bílum nú orðið.
Það getur sparað fólki 20 –
25% að temja sér svona ökulag.“
Aðspurður hvort þessi jafni
hraði sé ekki mikilvægastur segir
hann að svo sé, en að það geti
einnig verið svolítið snúið í innan-
bæjarakstrinum.
„Best er að reyna að ná græna
ljósinu þannig að maður sé ekki
alltaf að stoppa og fara svo aftur
af stað. En þótt maður læri á
ljósin sem verða á leið manns þá
geta bílarnir í kringum mann haft
áhrif á þessa útreikninga. Það
eru alltaf einhverjir ökumenn að
koma inní svæðin fyrir framan
mann, einhverjir sprettfiskar sem
setja kerfi manns í uppnám.
En ef maður temur sér svona
ökulag þá er maður ekkert leng-
ur, það var áhugavert að sjá það
að svona skynsamlegt ökulag skil-
aði manni á mjög svipuðum tíma
í vinnuna.“
Best að hafa lokaða glugga
Spurður um þá kenningu að opnir
gluggar valdi líka meiri bensín-
eyðslu segir hann að hún sé rétt
en það sé kannski ekki svo mikið
þegar hraðinn sé lítill. „En menn
finna það alveg þegar menn eru á
hraðbrautum í Þýskalandi með
opna glugga að það verður sog
inní bílnum og þá eyðir þú meira.
Það er langbest að hafa gluggana
lokaða á meðan maður er í
akstri. Ég tamdi mér þetta akst-
urslag fyrir nokkru síðan. Maður
hugsar meira um aksturinn og ég
held að ofan á sparnaðinn þá geri
þetta mann að öruggari bílstjóra í
umferðinni. Aksturstölva er nú
orðin algeng í bílum og hún get-
ur sagt þér þetta nákvæmlega,“
segir Stefán.
SPARNAÐARLEIÐIR Í AKSTRI
Skynsamlegur akstur getur
sparað þér stórar upphæðir
HIÐ HÁA BENSÍNVERÐ HEFUR ORÐIÐ TIL ÞESS AÐ MARGIR LEITA LEIÐA TIL AÐ MINNKA BÍLNOTKUN SÍNA.
EN SKYNSAMLEGRA AKSTURSLAG GETUR EINNIG SPARAÐ FÓLKI VERULEGAR UPPHÆÐIR Í BENSÍNKOSTNAÐI.
Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
* Jafn akstur, ekki láta vél-ina snúast meira en 1.800
snúninga meðan á akstri
stendur.
* Nýta umhverfið; látahann renna niður brekkur
o.s.frv.
* Reyna að miða við aðkoma að ljósunum þegar þau
lýsa grænu.
* Hafa glugga lokaða ognota loftræstinguna í staðinn.
Bestu ráðin