Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Page 47

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Page 47
sem kann meira en ég.“ Af hverju eruð þið veðurfræðingar og er til einhver lýsing á erkitýpunni veðurfræð- ingnum? Einar: „Það var alger tilviljun. Ég held að Ólafur Rögnvaldsson beri ábyrgð á því. Hann og Haraldur stofnuðu fyrirtækið Reiknistofu í veðurfræði sem meðal annars keyrir veð- urlíkön og rekur vefsíðuna belgingur.is. Það var þessi tölvuvinkill sem vakti áhuga manns í byrjun. Ég bjó líka á vel veðruðum stöðum sem krakki, var í sveit í Mývatnssveit og bjó á Ísafirði svo að maður var vanur smá veð- urumræðu.“ Haraldur: „Einar ákveður þetta löngu áður en hann heldur sjálfur. Hjá mér gerðist þetta á barnaskólaárunum. Þegar veðurspáin var miklu meira spennandi en hún er nú því þá var hún svo oft vitlaus. Maður gat alveg lifað í voninni um að spáin myndi gjörsamlega fara í vaskinn.“ Einar: „Svolítið eins og að stunda veðmál.“ Haraldur: „Ég var eins og Trausti sem barn. Hlustaði á veðurfréttir klukkan 1 áður en ég fór að sofa. Árið 1978 man ég eftir veðurspá þar sem ekki var gert ráð fyrir að það myndi snjóa neitt að ráði. Daginn eftir var hálfur metri af snjó í Reykjavík svo þetta gat verið spennandi.“ Elín: „Ég fór í veðurfræði því ég var ekki nógu klár að spila á víólu og þegar ég ákvað að gefa hljóðfæraleikinn upp á bátinn fór ég að íhuga hvað ég ætti að leggja fyrir mig. Ég hafði alltaf verið góð í raungreinum en langaði ekki í læknisfræði því mér þótti efnafræði ekki skemmtileg. Svo rakst ég á bók hjá námsráðgjafanum með viðtölum við fólk sem vann hin og þessi störf, meðal annars veð- urfræðing. En ég er líka alin upp suður í Garði, og var mikið hjá afa mínum, réri stund- um með honum á sumrin. Hann talaði alltaf um að ég ætti að fá mér alvöru starf og hon- um þóttu veðurfræðingar vinna alvöru starf enda mikið undir veðri komið.“ Trausti: „Í aðalatriðum er þetta svipað hjá mér og Haraldi. Ég vissi þetta mjög snemma. Níu ára gamall gerði ég veðurspá sem mér hefur ekki enn tekist að toppa. Ég gekk út að morgni dags, leit til himins og sá vinda blása þar úr sitthvorri áttinni í mismunandi hæð. Ég hafði nýlega lesið að slíkt veður boðaði þrumur og eldingar. Svo að ég gaf út þá veð- urspá í Borgarnesi að það myndi gera þrumu- veður síðdegis. Ég fékk aðallega skammir fyr- ir því frænka mín og jafnaldra varð svo hrædd. Allir biðu í ofvæni eftir því hverju ég myndi spá næst. Heimsendi? Á þessum tíma voru líka mjög skemmtileg og upplýsandi veð- urkort birt í Morgunblaðinu sem var hætt að birta eftir að sjónvarpið hóf sýningar á veð- urfréttum.“ Guðrún Nína: „Hjá mér var þetta skyndi- ákvörðun. Á síðasta ári í menntaskóla gat ég útilokað læknisfræði og líffræði út frá því að mér þótti utanbókarlærdómur svo afskaplega leiðinlegur. Ég var að leita að eðlisfræði- og náttúrufræðitengdu námi sem væri líka hag- nýtt. Einhver stakk upp á veðurfræði í mars og þar sem umsóknarfrestur var liðinn fyrir Kaupmannahafnarháskóla sótti ég um skóla- vist í Osló því þar var umsóknarfrestur til 15. apríl. Fimm mánuðum síðar var ég komin út. Veðurfræðin byggist mikið á því að skilja hlutina og það þarf ekki að læra hvað öll bein- in í líkamanum heita utanbókar. Þú ert alltaf að þróa þekkinguna og ert aldrei búinn. En þú spurðir líka út í hugmyndir fólks um hvernig veðurfræðingur séu. Ég held að fólk haldi oft að veðurfræðingar séu allir spáveð- urfræðingar og viti alltaf hvað er að gerast í veðrinu. En við gerum svo margt annað en að spá.“ Haraldur: „Raða stólum, ná í kaffi, hella upp á, telja þokudaga á Hólmsheiði...“ Guðrún Nína: „Erkitýpan fyrir veðurfræðing er held ég Halli.“ Haraldur: „Hver er Halli? Halli er Trausti junior.“ Trausti: „Og Páll Bergþórsson þriðji.“ Haraldur: „Veðurfræðingur er samheiti yfir einhvers konar eðlisfræði- og náttúrufræði- nörd. Í útvarpsleikriti sem ég hlustaði einu sinni á ræddu konur ástmenn sína og sá ást- maður sem þótti hvað skrýtnast að hafa verið með var finnskur veðurfræðingur – alveg á jaðrinum.“ Elín: „Ég held að í huga sumra sé veðurfræð- ingur virðulegur maður í jakkafötum með prik.“ Haraldur: „Ég hef prófað þetta, Elín, ég setti upp bindi fyrir þetta viðtal og það horfðu allir á mig á Veðurstofunni eins og ég væri skrýt- inn.“ Einar: „Á furðufatadegi á Veðurstofunni um daginn var veðurfræðingur spurður að því af hverju hann væri svona vel klæddur – af ut- anaðkomandi aðila.“ Trausti: „Ég held að við séum öll einfaldlega ákveðnir karakterar nema að það er eitt sam- eiginlegt einkenni – við erum öll fljót að taka ákvarðanir því veðurfræðingur verður að geta Morgunblaðið/Eggert Veðurfræðingarnir Trausti Jónsson, Elín Björk Jónasdóttir, Haraldur Ólafsson, Guðrún Nína Petersen og Einar Magnús Einarsson. Trausti: „Ég er nátt- úrulega svo heltekinn af veðurspánni og veðurfars- sögu að það kemst ekkert annað að. Ef menn vilja ekki ræða veðrið er ég bara farinn.“ 30.6. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.