Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Side 50

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Side 50
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.6. 2013 Þ egar veiðin í Kjarrá í Borgarfirði hófst á dög- unum var Þórarinn Sig- þórsson einn veiði- manna. Kvöldið áður hafði hann dregið um að hefja veið- ar á svæði tvö. Nokkru fyrir klukk- an sjö um morguninn var hann kominn niður í tilkomumikið gilið þar sem fallegur hylur nefnist Eyj- ólfsflúð. Þórarinn skyggndi hylinn vandlega ofan úr brekkunni og þeg- ar klukkan sló sjö tók hann fyrsta kastið – lax tók fluguna samstundis. Veiðisumar tannlæknisins var hafið. Þórarinn veiddi í opnunarhollinu í Kjarrá ásamt félaga sínum, Ingólfi Ásgeirssyni, sem er einn þriggja nýrra leigutaka veiðisvæðisins sem menn þekkja sem Þverá og Kjarrá. Innan þess eru einnig Litla-Þverá og Brenna. Veitt er á sjö stangir í Kjarrá, þessu tignarlega og langa veiðisvæði; þetta er í raun sama áin og menn þekkja sem Þverá niðri í byggð en þegar ekið er upp fyrir afréttargirðingu breytist heitið í Kjarrá, eða Kjarará eins og heima- menn kalla ána þarna í dalnum og uppi á heiðum. Laxinn gengur nefnilega upp á heiðar, Tvídægru og Arnarvatnsheiði, og hvergi á landinu kemst laxinn jafnt langt frá hafi. Ég hitti Þórarin og Ingólf þennan morgun á melnum hátt uppi yfir öðrum gjöfulum veiðistað, sem nefn- ist Runki. Þar ætlar Ingólfur að byrja. Þórarinn þekkir Kjarrá af- skaplega vel. „Á árum áður hófst veiðin hér miklu fyrr en nú,“ segir hann. „Þegar ég byrjaði að veiða hér var opnunin 1. júní, síðan var hún 5. júní og þá fékk ég þetta holl, 15. til 18. júní og var með það í mörg ár. Góður vinur minn og veiðifélagi, Sigmar Björnsson sem nú er látinn, var þá með ána á leigu. Fyrst með Svisslendingum en síðar einsamall. Þá veiddi ég hér tvisvar til fjórum sinnum á sumri með Sigmari. Hér þekki ég hvern hyl. Það hefur verið allur gangur á laxagöngunum. Ég upplifði mjög erfið ár en á milli var mokfiskur, eins og gengur. Þetta er skemmti- legt við veiðiskapinn.“ Einstæð á Þórarinn vissi vel hvar hann vildi byrja þá um morguninn. „Það var ekki nokkur vafi. En ég bjóst allt eins við því að sjá fisk í Mið-Prinsessu og Eyjólfsflúðinni. Ég skyggndi báða staðina og sá einn sem beið eftir mér …“ – Og þú þurftir bara eitt kast. „Ég var búinn að staðsetja laxinn mjög nákvæmlega. Það þurfti ekki fleiri köst. Þetta var mjög kröftugur og skemmtilegur fiskur. Það þurfti að taka svolítið á honum. Nokkrum köstum síðar setti ég svo í annan, þó að ég hafi bara séð einn þegar ég skyggndi. Svo elti lax hjá Ingó. Ég er mjög spenntur fyrir seinni vaktinni í dag, því þá eigum við efsta svæðið með Rauðabergshylj- unum tveimur en ég ætla að leggja á mig að ganga alla leið inn að Aquarium. Það er drjúg ganga, en samt ekki nema þriðjungur leið- arinnar frá Gilsbakkaseli inn á efsta veiðistað á heiðinni, Svartastokk. Þetta eru ótrúlega miklar vega- lengdir hér.“ Þórarinn lítur í kringum sig, upp og niður yfir gróna ása, heiðalönd og gilið sem áin streymir eftir. „Þetta er einstæð á,“ segir hann síðan. „Hér í kring er hvergi byggt ból en við getum séð langt niður í blómlega sveit. Þetta veiðisvæði hér á afréttinum er náttúrufyrirbæri; margslungið og fjölbreytilegt.“ Mokveiddi á hjólastólnum – Þú heldur mikið upp á þessa á. „Afskaplega mikið. Áin er svo fal- leg og fjölbreytileg. Veiðin hefur líka oft verið frábær hérna og fisk- urinn vænn. Einu sinni veiddu Svisslendingar hér vel á annað hundrað laxa í opn- un, strax í byrjun júní! Það voru ekki allt menn sem kunnu til verka eða voru vel á sig komnir líkamlega. Einum var ekið í hjólastól niður að veiðistað á Gilsbakkaeyrum sem hét Gatið og þar var hann í mokveiði á stólnum, með líflækni við hliðina á sér.“ Þórarinn hlær, bætir svo við: „Þessir tímar geta komið aftur, ég hef fulla trú á því. Mottóið hjá nýju leigutökunum er að fara vel með ána og drepa fáa fiska; ef svo er gert þá kemur þetta allt.“ – Þetta er ekki auðveidd á. „Það er langt frá því. Hún er mjög erfið. Þú sérð það hér, þetta eru engar smábrekkur að hlaupa upp og niður, þvers og kruss, og víða klungur. Hún er ekki auðveld og það gefur henni sjarma.“ Þegar Þórarinn er spurður að því hvort einhverjir staðir í ánni hafi reynst honum betur en aðrir þá hugsar hann sig um. „Það er varla hægt að segja það,“ segir hann síð- an. „Maður hefur minningar um mokveiði úr nánast hverjum pytti.“ Hann hlær. „Sérstaklega á árum áður gat maður upplifað rosalega kraftmiklar göngur hérna. Einn daginn gat maður verið á Gilsbakkaeyrum í frekar litlum fiski, svo kom nýr dagur og þá var allt pakkað þar en þriðja daginn voru nánast allir horfnir. Þá höfðu þeir gengið upp á heiðar, í Starir og Svartastokk.“ – Hefurðu veitt Starirnar? „Já, já. Á árum áður lagði ég á mig að ganga þetta en venjulega fórum við á hestum. Þá vorum við með trússhest og það gat verið mokstur. Þá var veitt þar til hest- arnir gátu ekki borið meira.“ Þrátt fyrir góða veiðivon þá leggja ekki margir á sig að fara inneftir, heill dagur fer í ferðalagið. Nú er aðeins veitt á flugu í Kjarrá og mestöllum laxi sleppt aft- ur út í ána. Þórarinn hefur á sínum veiðiferli beitt maðki, spæni og flugu, öllu með góðum árangri. „En ég segi alltaf, og Ingólfur er sam- mála mér í því, að maðkveiði sé ein- hver besti skóli sem menn geta fengið fyrir fluguveiði. Þá þurfa menn að þjálfa sig í að vita ná- kvæmlega hvar í ánni laxinn heldur sig, til að geta rennt á hann. Að lesa vatnið og skyggna til að sjá hvar laxinn er. Þá lærir maður líka hvar laxinn er, þó að skyggnið sé slæmt og ekkert sjáist.“ Fyrirheitna landið Í hléinu er athyglisvert að sjá, þótt það komi á engan hátt á óvart, að hinir veiðimennirnir leita mikið ráða hjá Þórarni. Hvernig eigi að veiða í tilteknum hyljum og hvar líklegast sé að laxinn haldi sig. Hann tekur öllum vel og er óspar á ráðin. Seinnipartinn er síðan ekinn grófur vegslóðinn upp með ánni, bílunum lagt skammt frá gangna- mannakofanum í Gilsbakkaseli og gengið upp með ánni. Ingólfur byrj- ar að kasta á stóran lax í Neðra- Rauðabergi sem Þórarinn kom auga á efst í strengnum. Síðan heldur tannlæknirinn upp með ánni og stefnir á Aquarium mörgum kílómetrum ofar. Á leiðinni kastar hann flugu í pytti sem honum þykja líklegir og í einum setur hann í lax, landar og sleppir. „Nú stefnum við á fyrirheitna landið,“ segir hann síðan þar sem við göngum slóðana upp með ánni. Við erum í ríki ló- unnar, ein rjúpa þyrlast upp af stígnum og himbrimi flýgur niður eftir ánni. Í samtali okkar kemur fram að oft hafi Þórarinn veitt vel í hinum kunnu veiðistöðum Efra- og Neðra-Rauðabergi. „Laxinn kemur sér strax fyrir hérna, enda eru þetta fyrstu stóru hylirnar fyrir of- an Gilsbakkaeyrar. Þá breyta þess- ir staðir sér ekki mikið milli ára, ólíkt til dæmis veiðistöðum á eyr- unum þar sem botninn er alltaf á ferðinni.“ Eftir rúmlega klukkustundar göngu kemur beygja á ánni og þar er þessi litli og grunni hlylur, Aquarium, þar sem laxar stoppa oft á göngunni. Þórarinn læðist upp á klapparholt við hylinn. „Já!“ segir hann síðan fagnandi, sér vænan lax aftast á breiðunni. Framar sjáum við annan og þegar hann er farinn að kasta á þá, þann þriðja. En þess- ir fiskar taka ekki, sama hversu faglega Þórarinn leggur flugur fyrir þá. „Fyrirheitna landið leikur ekki við okkur núna,“ segir hann þegar við snúum við. „Stundum tekur lax- inn bara ekki.“ Alltaf jafn gaman Daginn eftir erum við Þórarinn og Ingólfur staddir á gljúfurbarminum yfir heimahyljunum við veiðihúsið. Kvöldið áður höfu sjö laxar blasað við í Langadrætti en nú eru þeir allir farnir. Þórarinn gengur þá of- ar, hefur á tilfinningunni að þar megi sjá fisk, og jú, neðst í Spegli liggur einn. Þeir ákveða að Ingólfur brölti niður og kasti gárutúpu fyrir hann. Þegar fylgst er með Þórarni við veiðar er ekki annað hægt en dást að yfirferðinni og dugnaðinum. Hann leitar að fiskum, finnur og vinnur markvisst í að fá þá til að taka. „Jú, þetta byggist líka á dugnaði. En maður verður að geta höndlað stöngina sína, finna hvar fiskurinn er og lesa aðstæðurnar.“ Og hann er alltaf jafn spenntur. „Já, það er alltaf eins og ég sé að fara í fyrsta veiðitúrinn og sé að veiða fyrsta laxinn þegar hann hef- ur tekið. Þetta er alltaf jafn spennandi. Ég hef alltaf jafn gaman af þessu. Ingó!“ kallar hann svo . „Þú verð- ur að koma neðar!“ Ingólfur fikrar sig neðar eftir grýttum bakkanum og þegar flugan skautar yfir laxinn skýst hann úr djúpinu og tekur. „Glæsilegt!“ kall- ar Þórarinn ánægður. Fimm á síðustu vaktinni Að aflokinni síðustu vakt í opn- unarhollinu er Þórarinn síðastur veiðimanna í hús. Hann hafði verið einn á neðstu svæðunum, því Ing- ólfur var að aðstoða erlenda veiði- konu. „Hvernig gekk?“ spyrja hinir veiðimennirnir einum rómi, velta fyrir sér hvort opnunarhollið hafi gefið yfir 50 laxa – þá voru 49 skráðir í bók. „Ég fékk fimm,“ segir Þórarinn. „Tvo í Eyjólfsflúð og einn í Mið- Prinsessu, Runka og Selstreng fjög- ur.“ Það þurfti ekki að spyrja. Sam- tals veiddi Þórarinn tólf laxa og flesta í hollinu, eins og svo oft áður. „Þetta er alltaf jafn spennandi“ „ÞETTA VEIÐISVÆÐI HÉR Á AFRÉTTINUM ER NÁTTÚRUFYRIRBÆRI; MARGSLUNGIÐ OG FJÖLBREYTILEGT,“ SEGIR ÞÓRARINN SIGÞÓRSSON TANNLÆKNIR ÞAR SEM HONUM ER FYLGT EFTIR VIÐ OPNUN KJARRÁR. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is * „ … venjulega fórum við á hestum. Þá vorum við með trússhest og það gat verið mokstur. Þá var veitt þar til hestarnir gátu ekki borið meira.“ Veitt með …

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.