Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2013, Side 60
60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.6. 2013
S
tuðningsmenn enskra
liða eru búnir að fá nóg
af miðaverði. Stuðnings-
menn Liverpool, Man-
chester United, Ever-
ton, Arsenal og Tottenham auk
stuðningsmanna fjölda annarra liða
marseruðu sameinaðir frá The
Globe-kránni í höfuðstöðvar enskr-
ar knattspyrnu þar sem háu miða-
verði var mótmælt.
„Við erum búin að fá nóg. Við
erum bara láta vita hvað okkur
finnst,“ sagði John Bonfield, stuðn-
ingsmaður Tottenham. Hann er
orðinn þreyttur á því að Totten-
ham rukkar nánast hvað sem er
fyrir miðann. Nýverið var 5,5 millj-
örðum punda dælt inn í ensku fé-
lögin í gegnum nýjan sjónvarps-
samning. „Með þessum sjónvarps-
samningi ætti að vera svigrúm til
að hætta að hækka miðaverðið. Nú
er komið nóg,“ sagði Stephen
Martin, einn af þeim sem skipu-
lögðu gönguna. Martin þessi er
kenndur við hóp sem kallar sig
Anda Shankley (the spirit of
Shankley) og kemur frá Liverpool.
„Hérna erum við sameinaðir en
þegar við spilum við Man.Utd eða
Everton öskrum við alveg hver á
annan. En við sjáum heildarmynd-
ina og það eru fjörutíu félög hérna
að mótmæla. Án stuðningsmann-
anna er fótboltinn ekki neitt.“
Aðdáendur fótboltans á Englandi
eru að breytast. Vinir, feðgar eða
fjölskyldur fara ekki lengur saman
á völlinn. Það er of dýrt. Þetta er
orðið jakkafatasport og því vilja
menn breyta. Enska deildin segir
að 95% af öllum miðum sem voru
til sölu á síðasta tímabili hafi verið
seld. Samt hefur seldum miðum á
útivöllum fækkað um 10%. Frægt
er þegar stuðningsmenn Manchest-
er City mótmæltu háu miðaverði
hjá Arsenal og afar fáir sáu sér
fært að mæta vegna kostnaðar.
City skilaði 912 miðum til baka
enda kostaði hver 62 pund. Og þá
átti eftir að borga í lestina, mat,
drykk og annað sem fylgir því að
fara á völlinn.
Meðalverð í þýsku Bundesligunni
er 10,33 pund á meðan það kostar
28,30 pund að meðaltali á ódýrasta
stað í ensku deildinni. Enda sagði
Uli Höness, forseti FC Bayern,
þessi frægu orð: „Við gætum auð-
veldlega rukkað meira en 104 pund
fyrir dýrustu miðana. Segjum að
við rukkuðum 300 pund fyrir mið-
ann, það eru rúmar tvær milljónir
punda í viðbót. Hvað er það fyrir
okkur?
Þegar við ræðum um kaup á
leikmanni þá er rætt um tvær
milljónir í fimm mínútur. En mun-
urinn á 104 pundum og 300 er
gríðarlegur fyrir aðdáendur FC
Bayern. Við höldum ekki að stuðn-
ingsmenn séu eins og beljur sem
hægt er að mjólka endalaust. Fót-
boltinn verður að vera fyrir alla.
Þetta er stærsti munurinn á okkur
og Englandi.“
AFP
Sameinaðir stöndum vér
MIÐAVERÐ Á LEIKI Í ENSKU ÚRVALSDEILDINNI HEFUR HÆKKAÐ UM 716% SÍÐAN 1989. VERÐBÓLGA HEFUR FARIÐ UPP UM 77% Á SAMA TÍMA Í LANDINU.
STUÐNINGSMENN ERU KOMNIR MEÐ NÓG OG STÓÐU FYRIR MÓTMÆLUM. STUÐNINGSMENN MANCHESTER-LIÐANNA GENGU HÖND Í HÖND, EINS OG
ERKIÓVINIRNIR Í LIVERPOOL. 40 FÉLÖG STÓÐU SAMAN AÐ MÓTMÆLUM SEM HEYRÐUST UM ALLAN HEIM ENDA ENSKI BOLTINN SÁ VINSÆLASTI Í HEIMI.
Miðaverð á vellina 2013/14
1 Man City 299 8% 780 4,5% 26 58
2 AstonVilla 325 0% 595 0% 20 45
3 WBA 349 0% 449 0% 20 39
4 Newcastle 378 1.3% 722 0,7% 15 70
5 Cardiff 379 9% 599 9% - -
6 Hull 395 1.3% 405 -11,1% 20 30
7 Stoke 399 0% 599 0% 25 50
8 Sunderland 425 0% 525 0% 25 40
9 Fulham 449 -11,1% 999 4% 20 75
10 Swansea 449 0% 499 0% 35 45
11 Everton 469 5,5% 696 3,4% 31 43
12 C Palace 490 19,4% 660 18,2% - -
13 Norwich 519 -5,4% 579 -5% 30 50
14 Man. United 532 0% 950 0% 31 53
15 Southampton 585 5,1% 820 4,9% 27 43
16 Chelsea 595 0% 1,250 0% 41 87
17 West Ham 640 6,3% 910 6,6% 36 67
18 Liverpool 710 -2,1% 850 8,2% 38 52
19 Tottenham 795 8,2% 1,895 2,6% 32 81
20 Arsenal 985 0% 1,955 0% 26 126
*öll verð eru í pundum
Félag
Lægsta
ársmiðaverð
Breyting
frá 2012/13
Hæsta
ársmiðaverð
Breyting
frá 2012/13
Ódýrasta
sætið
Dýrasta
sætið
Í undanúrslitaleik Wigan og Millwall
voru mörg tóm sæti á Wembley.
* „Frábærir leikmenn, Platini, Baggio og auðvitað Del Piero,hafa verið í þessu númeri. En ég var númer 10 hjá Boca.Þar fór ég í fótspor Maradona.“
Carlos Tevez samdi við Juventus.
Boltinn
BENEDIKT BÓAS
benedikt@mbl.is