Morgunblaðið - 12.07.2013, Page 2

Morgunblaðið - 12.07.2013, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2013 ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is lau. 10-18, sun. 12-18, mán. - fös. 11-18:30 TILBOÐ GILDIR ÚT JÚLÍ SUMARSPRENGJA 25-50% afsláttur af öllum sumarvörum living withstyle Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Vefur Alþingis fékk til sín nærri 116 þúsund notendur vikuna 1. til 7. júlí síðastliðinn, samkvæmt samræmdri vefmælingu Modernus. Þetta er aukning milli vikna um heil 634%. Einhver kynni að halda að hér sé um einhver mistök að ræða, því þingvefurinn hefur að jafnaði verið með 6 til 24 þúsund notendur á viku á þessu ári. Stökk vefur Alþingis upp um 44 sæti á milli vikna, eða úr 51. sæti síðustu viku júnímánaðar upp í sjöunda sætið á nýj- asta lista Modernus yfir vinsælustu vefsíður landsins, miðað við fjölda notenda. Skýst þingvefurinn m.a. upp fyrir vef RÚV. Við nánari athugun kemur í ljós að ekki er um nein mistök að ræða, en í mælingu Modernus má sjá að inn- lend notkun á þingvefnum var aðeins 12,9%. Helsta skýr- ingin á þessari aukningu er því erlend notkun, fyrst og fremst vegna tengingar af hinum vinsæla vef Reddit.com á frumvarp Alþingis um ríkisborgararétt til handa upp- ljóstraranum Edward Snowden. Frumvarpið náði sem kunnugt er ekki fram að ganga á sumarþinginu en vakti engu að síður heimsathygli. Helgi Bernódusson, skrif- stofustjóri Alþingis, staðfestir að tengingin á frumvarpið um Snowden skýri þessa miklu aukningu að mestu. Einnig hafi verið mikil umferð um þingvefinn þegar skýrslan um Íbúðalánasjóð var sett inn. Eftir því sem best er vitað er þetta metaðsókn á althingi.is. bjb@mbl.is Vefur Alþingis stökk upp um 44 sæti á milli vikna Morgunblaðið/Eggert Alþingi Birgitta Jónsdóttir og fleiri þingmenn vildu veita Edward Snowden íslenskan ríkisborgararétt.  Notendum fjölgaði um 634% vegna máls Snowdens Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Við ákváðum að Orkuveitan gæti gengið að því tilboði sem liggur fyrir. Í þeirri ákvörðun studdumst við við verðmat tveggja óháðra að- ila. Jafnframt var stuðst við mat sérfræðinga Orkuveitunnar og umsögn og áhættugreiningu fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar,“ segir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, um þá ákvörðun meirihlutans að samþykkja sölu Orkuveitunnar á svonefndu Magma- skuldabréfi til Landsbréfa. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær hefur stjórn OR tekið svonefndu „B“ tilboði Landsbréfa en það hljóðar upp á 8,6 milljarða í tveim greiðslum. Greiðast 5.160 milljónir hinn 30. ágúst 2013 en 3.440 milljónir 14. des. 2016 Dagur segir að tekið hafi verið tillit til fjöl- margra þátta við ákvörðun borgarráðs. „Það er margt sem þarf að horfa til, bæði tímasetningar sölunnar og annars. Heildar- matið leiddi til þeirrar niðurstöðu að við féll- umst á beiðni Orkuveitunnar.“ Hefði hugsanlega mátt selja fyrr – Hvaða skoðun hefur þú á tímasetningunni? „Skuldabréfið hefur lengið verið til sölu og það hefði hugsanlega mátt selja það fyrr. Ég skal ekki segja um það. Við tókum afstöðu til tilboðs sem er á borðinu núna og það getur haft kosti og galla að taka því. Með því að heimila sölu bréfsins tökum við út stóra áhættu úr rekstri Orkuveitunnar. Því hefði fylgt áhætta að eiga skuldabréfið áfram. Þetta byggist á spám inn í framtíðina.“ – Telurðu 8,6 milljarða viðunandi verð? „Já, annars hefðum við ekki fallist á þetta.“ Fyrirvari um fjármögnun Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar, segir að í tilboði Landsbréfa sé fyrirvari um að tilboðsgjafi hafi tíma til að leita fjármögnunar áður en greitt er fyrir skuldabréfið. Hann telur aðspurður að tilboð Landsbréfa sé gott. – En hvernig verður fénu varið? „Það er nú þannig að Orkuveitan er ekki mjög fjáð. Reksturinn er hins vegar mjög góð- ur en lausafé er af skornum skammti. Veltu- fjárhlutfall fyrir næsta ár er alltof lágt, þá á ég við hlutfall lausafjár á næsta ári á móti þeim greiðslum sem þá falla til. Það er talið eðlilegt að hlutfallið sé í kringum 1. Veltufjárhlutfallið er nú kringum 0,4. Við erum hins vegar ekki að selja bréfið af því að okkur gangi illa. Okkur hefur þvert á móti gengið betur en Planið svo- kallaða gerði ráð fyrir. Það hefur alltaf verið veikleiki í Planinu hvað veltufjárhlutfallið er lágt allan greiðslutímann. Það þýðir að það má ekkert koma upp á. Við viljum komast í 1 í veltufjárhlutfalli en höfum ekki séð leiðir til þess. Það er í því fólgin áhættuvörn að eiga meira fé í sjóðum til að mæta sveiflum í rekstr- inum. Við erum því ekki að selja bréfið til að eyða fénu,“ segir Bjarni. Spurður hverjir séu að baki tilboði Lands- bréfa segir Bjarni að það kæmi honum ekki á óvart ef lífeyrissjóðir yrðu meðal kaupenda. Jón Steindór Valdimarsson, stjórnarformað- ur Landsbréfa, sagði það trúnaðarmál hverjir stæðu að baki tilboðinu. Stefnt sé að því að vinna „hratt og örugglega“ að fjármögnun. Dragi úr áhættu í rekstri OR  Formaður borgarráðs segir horft til ráðgjafar sérfræðinga við samþykki á sölu Magma-skuldabréfs  Forstjóri Orkuveitunnar segir söluna efla áhættuvarnir OR  Aðstandendur tilboðs ekki gefnir upp Alfreð Gíslason var í gær heiðraður í bak og fyr- ir á samkomu í menningarhúsinu Hofi á Akur- eyri. Fékk heiðursviðurkenningu íþróttaráðs bæjarins, var sæmdur gullmerki HSÍ og síðast en ekki síst var Alfreð gerður að heiðursfélaga í Knattspyrnufélagi Akureyrar, KA. Þar óx hann úr grasi sem handboltamaður, sneri heim eftir glæstan feril sem leikmaður erlendis og gerði fé- lagið að stórveldi, og starfar nú sem þjálfari í Þýskalandi við frábæran orðstír. Á myndinni eru hjónin Alfreð og Kara Guðrún Melstað með afa- og ömmustelpuna Herdísi Elfarsdóttur í gær. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Gulldrengur og heiðursmaður Handboltakappinn Alfreð Gíslason heiðraður í bak og fyrir á Akureyri Fischer-setur með fjölmörgum mun- um sem tengjast skákferli Banda- ríkjamannsins Bobby Fischers og einvígi hans við Rússann Boris Spasskí hér á landi árið 1972 var opnað á Selfossi síðdegis í gær og var fjölmenni við opnunina. Safnið er í senn til minningar um Fischer og félagsheimili Skákfélags Selfoss og nágrennis. Við opnunina í gær fluttu meðal annars Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson, land- búnaðar-, sjávarútvegs-, auðlinda- og umhverfisráðherra, erindi, sem og Friðrik Ólafsson stórmeistari, sem fór yfir skákferil Fischers. Friðrik afhenti safninu einnig upprunalega skáklýsingu frá fyrstu skák sinni við Fischer. Safn um Fischer  Fjölmenni á opn- unarathöfninni Morgunblaðið/Sigmundur Sigurgeirsson Skák Friðrik Ólafsson afhenti skák- lýsingu af skák hans við Fischer.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.