Morgunblaðið - 12.07.2013, Blaðsíða 12
Þórshamar - Umboðsmaður Alþingis -
Þórshamar - Umboðsmaður Alþingis - Skjöldur afhjúpaður
BAKSVIÐ
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Samkvæmt nýrri skýrslu Landspít-
alans um starfsemi síðasta árs
lengdist meðallegutími sjúklinga úr
sjö dögum að jafnaði árið 2011 í 7,2
daga í fyrra. Á sama tíma fækkaði
rúmum legudeilda um 1,5%, úr 659 í
649 rúm. Þá var aukning á fjölda
koma á bráðamóttökur spítalans.
Alls voru skráðar nærri 100 þúsund
komur, sem er aukning um 2.500
heimsóknir á milli ára.
Í inngangi skýrslunnar segir
Björn Zoëga forstjóri að árið 2012
hafi að mörgu leyti verið spítalanum
erfitt, en einnig ánægjulegt og ár-
angursríkt. „Síðustu fimm ár, eða
frá árinu 2007, höfum við þurft að
hagræða í rekstri um ríflega 20%
vegna skertra ríkisframlaga og
óhagstæðrar þróunar rekstrarum-
hverfis í kjölfar efnahagskreppunn-
ar. Þetta hefur sem betur fer tekist
án þess að grípa hafi þurft til hóp-
uppsagna eða verulegrar skerðingar
á þjónustu, en auðvitað hefur reynt
verulega á alla starfsmenn spítalans,
enda næst ekki árangur sem þessi
nema með samstilltu átaki hvers ein-
asta liðsmanns,“ segir Björn enn-
fremur.
18,4% af landsbyggðinni
Fjölmargar aðrar upplýsingar eru
birtar í skýrslu Landspítalans um
starfsemi síðasta árs. Þannig má sjá
að ríflega 150 þúsund manns komu
inn á deildir spítalans árið 2012, sem
jafngildir nærri helmingi lands-
manna. Nær samantektin yfir fjölda
einstaklinga sem komu á spítalann,
einu sinni eða oftar. Ríflega 81%
sjúklinganna komu af höfuðborgar-
svæðinu, eða um 123 þúsund manns,
og 18,4% af landsbyggðinni, nærri 28
þúsund manns. Hlutföllin eftir
landshlutum voru svipuð árið 2011.
Til samanburðar má nefna að íbúar
höfuðborgarsvæðisins voru á síðasta
ári um 64% allra landsmanna og íbú-
ar landsbyggðarinnar 36%.
Skipt eftir deildum LSH þá kom
18.141 sjúklingur á legudeildir,
76.929 á dag- og göngudeildir, 52.446
á bráðamóttökur og fæðingar voru
3.251. Skiptingin eftir búsetu sjúk-
linga sést nánar á meðfylgjandi
korti, en landinu er þar skipt upp
eftir heilbrigðisumdæmum, sem er
ekki alveg hin sama og t.d. kjör-
dæmaskipting í kosningum. Spítal-
inn birtir einnig í skýrslu sinni hve
hátt hlutfall íbúa hvers umdæmis
leitar til Reykjavíkur eftir heilbrigð-
isþjónustu.
Þar vekur t.d. athygli að um 20%
íbúa á Suðurnesjum og Suðurlandi
koma á dag- og göngudeildir Land-
spítalans, á meðan hlutfallið á höf-
uðborgarsvæðinu er nærri 30%.
Hlutfallið á Vestfjörðum er rúm 14%
og 16,6% á Vesturlandi.
Einnig er það athyglisvert að sjá
að um 7% íbúa á höfuðborgarsvæð-
inu lögðust inn á spítalann í fyrra á
meðan sama hlutfall íbúa frá Suð-
urnesjum og Suðurlandi var litlu
minna, eða ríflega 5% í hvoru um-
dæmi fyrir sig. Eru þetta reyndar
svipuð hlutföll og undanfarin þrjú ár.
Skiljanlega koma langflestir sjúk-
lingar af höfuðborgarsvæðinu inn á
allar deildir spítalans. Þannig er
hlutfall þeirra á bráðamóttökum um
88% af öllum sjúklingum sem þang-
að komu árið 2012. Sem hlutfall af
íbúum hvers heilbrigðisumdæmis þá
þurfti nærri fjórðungur allra íbúa á
höfuðborgarsvæðinu að leita á
bráðamóttökur spítalans, á sama
tíma var hlutfallið af íbúum Suður-
nesja rúm 10%.
Lengri legutími og færri rúm
Af um 150 þúsund sjúklingum á Landspítalanum í fyrra voru 123 þúsund af höfuðborgarsvæðinu
Fimmtungur Suðurnesjamanna kom á dag- og göngudeildir Árið 2012 erfitt en árangursríkt
Hvaðan koma sjúklingarnir á LSH?
Norðurland
Vestfirðir
Vesturland
Suðurland
Austurland
Suðurnes
Höfuðborgarsvæðið
Vesturland
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
0
6
2
6
2
.9
10
1.
0
4
5
3
0
70.000
60.000
50.000
40.000
30.000
20.000
10.000
0
Höfuðborgarsvæðið
13
.9
5
6 6
0
.0
9
0
4
6
.1
6
1
2
.7
5
8
Suðurnes
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
0
1.
12
7
4
.4
76
2
.2
6
1
17
5
Vestfirðir
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
0
2
11 8
5
8
2
3
2
3
0
búseta sjúklinga á Landspítalanum 2012, skipt eftir heilbrigðisumdæmum
Heimild: Landspítalinn
Suðurland
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
0
1.
3
4
5
4
.9
7
7
1.
75
3
19
3
0,90%
Legur
Dag- og göngud.
Bráðamóttaka
Fæðingar
5,50%81,60%
3,10%
5,30%
6,
9%
29
,5
%
22
,7
%
6,
8%5
,3
%
21
,1
%
10
,6
%
4,
2%
3,
6%
16
,6
%
6%
1%
3,
5% 1
4,
3%
3,
9%
2,
9%
Norðurland
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
0
5
74
2
.4
4
3
70
7
2
6
2,50%
1,
6%
7%
2%
0,
4% 5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
0
3
0
2 1
.1
75
2
8
7
3
9
Austurland 1,10%
2,
9%
11
,4
%
2,
8%
2,
2%
% af sjúklingum LSH
5,
2%
19
%
6,
8%
4,
2%
% af íbúum umdæmisins
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2013
Draghálsi 14 - 16
110 Reykjavík
Sími 4 12 12 00
www.isleifur.is
Morgunblaðið/Eggert
25 ára afmæli umboðsmanns Alþingis
Fékk afhent ný húsa-
kynni í Þórshamri
Embætti umboðsmanns Alþingis
fékk afhent ný húsakynni í Þórs-
hamri við Templarasund 5 í
Reykjavík í gær. Einar K. Guðfinns-
son, forseti Alþingis, og Tryggvi
Gunnarsson, umboðsmaður Alþing-
is, afhjúpuðu skjöld við inngang
hússins af því tilefni.
Tuttugu og fimm ár voru liðin í
gær frá því að embættið var stofnað
en Gaukur Jörundsson var kjörinn
fyrsti umboðsmaður Alþingis í des-
ember árið 1987. Síðan þá hafa alls
7.548 mál verið skráð hjá embætt-
inu en það eru um 300 mál á ári að
meðaltali. Hlutverk umboðsmanns-
ins er að hafa eftirlit með stjórn-
sýslu ríkis og sveitarfélaga og
tryggja rétt borgaranna gagnvart
stjórnvöldum.