Morgunblaðið - 12.07.2013, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2013
Til stóð að írska þingið greiddi at-
kvæði um frumvarp um fóstureyð-
ingar á miðvikudag en umræður
héldu áfram langt fram eftir kvöldi,
enda frumvarpið afar umdeilt bæði
meðal íhaldssamra og frjálslyndra.
Verði frumvarpið, The Protection
of Life During Pregnancy Bill, sam-
þykkt verður læknum heimilt að
framkvæma fóstreyðingar þegar líf
móðurinnar er í hættu.
Íhaldssamir þingmenn og trúar-
leiðtogar hafa harðlega mótmælt
ákvæði sem myndi jafnframt heim-
ila fóstureyðingu í þeim tilfellum
þegar líkur eru taldar á að móðirin
fremji sjálfsvíg. Óttast þeir að
ákvæðið muni opna á óheftan að-
gang að fóstureyðingum, þrátt fyrir
að tveir geðlæknar og fæðingalækn-
ir þurfi að votta að hættan á sjálfs-
vígi sé „raunveruleg og umtals-
verð.“
Nokkrar þingkonur lögðu fram
tillögu um viðauka við frumvarpið
um að fóstureyðingar yrðu einnig
leyfðar þegar þungunin væri afleið-
ing nauðgunar eða sifjaspells en
mættu mikilli andstöðu og drógu
hana til baka. Fóstureyðingar eru
alfarið bannaðar á Írlandi sam-
kvæmt núgildandi lögum.
holmfridur@mbl.is
Breytingar á lögum um
fóstureyðingar ræddar
Írar skoða að leyfa fóstureyðingar þegar móðirin er í hættu
AFP
Umdeilt Löggjafinn ákvað að endurskoða lögin eftir að 31 árs gömul kona
lést í kjölfar sýkingar frá deyjandi fóstri sem læknar neituðu að fjarlægja.
Stjórnvöld í Ástralíu sögðu á mið-
vikudag að verulega hefði dregið
úr losun eiturefna við Kóralrifið
mikla en viðurkenndu jafnframt að
ástandið á rifinu hefði farið versn-
andi síðustu ár vegna hvirfilbylja
og flóða.
„Öfgafullir veðurviðburðir hafa
haft veruleg áhrif á almennt ásig-
komulag sjávarumhverfisins, sem
hefur hrakað úr í meðallagi í
slæmt, yfir það heila,“ segir í nýrri
skýrslu um ástand rifsins.
Menningarmálastofnun Samein-
uðu þjóðanna, UNESCO, hefur lýst
því yfir að kóralrifið verði tekið af
heimsminjaskrá og fært í hættu-
flokk á næsta ári ef ekki verður
gripið til aðgerða.
Umhverfisráðherra Ástralíu,
Mark Butler, sagði að stjórnvöld
stefndu m.a. að því að bæta vatns-
gæði við rifið með því að draga úr
losun köfnunarefna um 50% en
fylgni er á milli styrks köfnunar-
efna í sjónum og útbreiðslu kross-
fiskategunda sem eru skaðlegar rif-
inu.
150 km
Coral Sea Basin
Heimild: Great Barrier Reef Marine Park Authority
QUEENSLAND
Townsville
Cairns
Lockhart-á
Rockhampton
Cooktown
Lengd: 2.300 km2
400 kóraltegundir
1.625 fisktegundir
215 fuglategundir
30 tegundir hvala,
höfrunga og hnísa
2.900 rif
900 eyjar
ÁSTRALÍA
CANBERRA
133 tegundir skata
og hákarla
Kóralrifið mikla
Kóralrifs-
sjávargarðurinn
Stjórnvöld í Ástralíu hafa viðurkennt að ástand kóralrifsins sé lélegt en
þau berjast fyrir því að rifið verði ekki tekið af heimsminjaskrá UNESCO
Shark- og
Osprey-rif
Marion-rif
Diane-hringrif,
Willis-eyjar,
Moore-rif
Kóralrifið mikla hugsan-
lega fært í hættuflokk
Ummæli háttsetts kínversks embætt-
ismanns hafa valdið nokkru fjaðra-
foki í netheimum ef marka má frétta-
stofu AFP en á fundi í Washington
líkti einn aðstoðarforsætisráðherra
Kína, Wang Yang, sambandi sínu við
Jacob Lew, fjármálaráðherra Banda-
ríkjanna, við samband nýgiftra hjóna.
„Ég veit að Bandaríkin leyfa hjóna-
bönd samkynhneigðra en augljóslega
sé ég mig og Jacob ekki sækjast eftir
því,“ bætti hann við.
Wang sagði enn fremur að Banda-
ríkin og Kína ættu að virða hvort ann-
að eins og eiginmaður og -kona og
ættu að efla gagnkvæmt traust. Þá
sagði hann að stjórnvöld í Wash-
ington og Pekíng ættu ekki að skilja
eins og fjölmiðlamógúllinn Rupert
Murdoch og kona hans Wendi Deng,
þar sem það yrði þeim dýrkeypt.
Mörgum þykja ummæli aðstoð-
arforsætisráðherrans hvorki fyndin
né viðeigandi og hafa kínverskir net-
verjar lýst yfir skömm á uppátækinu.
„Skammarlegt, er Kína nú orðin frilla
Bandaríkjanna?“ hefur AFP eftir ein-
um þeirra. „Hvað með sæmd okkar?“
Ummæli varaforsæt-
isráðherra hneyksla
Líkti sambandinu við hjónaband
AFP
Grínari Ráðherrann Wang Yang.
Alklæddur nautsleðri!
Verð áður 139.000
Þú sparar
20.000
Þú sparar
40.000
Tilboðsverð
99.000
RISAÚTSALA!
Okkar besti hægindastóll
á verði sem hefur ekki sést
á Íslandi í mörg ár!
Rubelli 9332 H
með svifruggu, snúning, gormasæti
og frábærum bakstuðningi
3 leðurlitir
6 taulitir
FÁÐU
STÓLINN
SENDAN HEIM
HVERT Á LAND
SEM ER
FYRIR AÐEINS
5.000 KR.
Ármúla 5 • 108 Reykjavík • Sími 544 8181www.innlit.is
Þekking • ÞjónustaÍ slitsterku áklæði!
Verð áður 89.000
Tilboðsverð
69.000
Innlit Húsgögn í sumarskapi