Morgunblaðið - 12.07.2013, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2013
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Arðgreiðslustefna fyrirtækja sem
skráð eru í Kauphöll er misjöfn og
misgagnsæ. Í flestum tilfellum miðast
stefnan við ákveðið hlutfall af hagnaði
eftir skatta. Tryggingafélögin VÍS og
TM eru með metnaðarfyllstu arð-
greiðslustefnuna. Reginn og Voda-
fone eru ekki með skýra arðgreiðslu-
stefnu. Mismunandi arðgreiðslu-
stefnur skýrast að nokkru leyti af eðli
rekstrar og vaxtarmöguleikum fyrir-
tækjanna. Arðgreiðslustefnan er þó
jafnan háð skilyrðum sem markaðs-
aðstæður, fjárhagsstaða og fjármögn-
unarþörf setja. Þetta kemur fram í
Hagsjá Landsbankans.
Arðgreiðslur þroskamerki
En horfa fjárfestar mikið til arð-
greiðslna fyrirtækja í Kauphöllinni
um þessar mundir?
„Mín tilfinning er sú,“ segir Gústaf
Steingrímsson, sérfræðingur hjá hag-
fræðideild Landsbankans, í samtali
við Morgunblaðið, „að hingað til hafi
innlendir fjárfestar almennt ekki hag-
að ákvörðunum um kaup og sölu ein-
stakra hlutabréfa eftir arðgreiðslu-
stefnu þeirra. Ástæðuna fyrir því má
finna í tvennu. Saga íslensks hluta-
bréfamarkaðar einkennist af tölu-
verðum öfgum sem ýmist hafa falið í
sér ríflegar hækkanir eða verulegar
lækkanir oft á skömmum tíma. Arð-
greiðslur hafa því oftast nær haft lítil
áhrif á heildarávöxtun fjárfesta og því
ekki taldar skipta svo miklu máli.
Þessu til viðbótar hefur hér á landi
ekki myndast jafn mikil hefð fyrir
sérstökum arðgreiðslufélögum eins
og víða eru til staðar erlendis. Gera
má þó ráð fyrir að eftir því sem inn-
lendi markaðurinn þroskast verði
arðgreiðslustefna eitt af þeim lykilat-
riðum sem fjárfestar horfa til við val á
hlutabréfum.“
VÍS og TM eru með metnaðar-
fyllstu arðgreiðslustefnuna. VÍS hef-
ur þá stefnu að möguleg arðgreiðsla
miðist við allt að 100% af hagnaði
hvers árs eftir skatta. Stefna TM er
að að lágmarki helmingur af hagnaði
hvers árs sé greiddur út í arð. „Fljótt
á litið gæti stefna VÍS litið út fyrir að
vera metnaðarfyllri en eins og arð-
greiðslustefna beggja félaganna er
orðuð er ekkert sem segir að endan-
leg arðgreiðsla þeirra, sem hlutfall af
hagnaði, verði ekki sambærileg á
næstu árum,“ segir í Hagsjá.
Af þeim félögum sem greiddu út
arð á þessu ári lá hlutfallið á bilinu 20
til 30% af hagnaði síðasta árs og nam
meðaltalið 22%. Icelandair greiddi út
30% af hagnaði sínum en Össur 22%.
Eimskip, Hagar og Marel greiddu öll
út 20% af hagnaði sínum. Af þessum
fimm félögum greiddu Össur og Eim-
skip ekki út arð á síðasta ári en arð-
urinn hjá hinum félögunum lá á bilinu
17,4 til 23%.
Hugmyndafræðin
Hagsjá segir að hugmyndafræðin á
bak við hvenær og hversu mikið eigi
að greiða út í arð sé í sjálfu sér ein-
föld. Hún byggist í grunninn til á því
hvort að hagkvæmara sé fyrir hlut-
hafa fyrirtækisins að ávaxta fjármuni
sína innan eða utan rekstursins. Eigið
fé félagsins sé eign hluthafa þess og
þeim mun meiri ávöxtun sem sé á því
þeim mun hagkvæmara sé fyrir hlut-
hafa þess að ávaxta það innan rekst-
ursins en að taka hluta þess út sem
arð. „Þannig ættu fyrirtæki með lága
arðsemi eigin fjár að öðru jöfnu að
greiða stóran hluta hagnaðar út sem
arð. Eins ættu fyrirtæki sem sjá ekki
fram á annað en lága arðsemi eigin
fjár á næstu árum að vera með mynd-
arlega arðgreiðslustefnu. Á hinn bóg-
inn eiga félög sem sjá fram á mikinn
vöxt að halda fé hluthafanna inni í
rekstrinum enda hag flestra hluthafa
best borgið með þeim hætti. Á þann
máta verður núvirtur arður framtíð-
arinnar meiri,“ segir hún.
Misjöfn stefna tekin
í arðgreiðslum
Tryggingafélögin eru með hæstu arðgreiðslustefnuna
Misjöfn arðgreiðslustefna félaga í Kauphöll
Félag Arðgreiðslustefna
Eimskip 10-30% af hagnaði.
Hagar 0,45 krónur á hlut hið minnsta og að arður vaxi um að minnsta
kosti 5% á ári.
Icelandair 20-40% af hagnaði.
Marel 20-40% af hagnaði.
Reginn Ekki til skýr arðgreiðslustefna.
TM Að lágmarki 50% af hagnaði.
VÍS Allt að 100% af hagnaði.
Vodafone Ekki til skýr arðgreiðslustefna.
Össur Arðgreiðslustefnan byggir á stöðugum arðgreiðslum og byrja
þær á 0,1 danskri krónu á hlut.
Heimild: Landsbankinn
Yfirleitt hlutfall
af hagnaði
» Í flestum tilfellum miðast
arðgreiðslustefnan við ákveðið
hlutfall af hagnaði eftir skatta.
» Gera má þó ráð fyrir að eftir
því sem innlendi markaðurinn
þroskast verði arðgreiðslu-
stefna eitt af þeim lykilatriðum
sem fjárfestar horfa til við val á
hlutabréfum.
ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hefur
samþykkt þá ríkisaðstoð sem Sjóvá
fékk í kjölfar bankahrunsins 2008. Í
tilkynningu frá ESA segist Oda
Helen Sletnes, forseti stofnunar-
innar, fagna samþykkt endur-
fjármögnunarinnar. „Skuldbind-
ingar sem félagið hefur undir-
gengist gagnvart ESA lágmarka
neikvæð áhrif ríkisaðstoðar án þess
að ógna endurreisn félagsins.“ Þá
telur hún einnig af hinu góða að
stjórnvöld hafi nú skuldbundið sig
til að endurskoða tryggingalöggjöf
til að opna á aukna samkeppni og
betri þjónustu við viðskiptavini.
Eftir að hafa lent í erfiðleikum í
bankahruninu ákvað íslenska ríkið
að taka þátt í endurskipulagningu
Sjóvár með því að eignast stærstan
hluta hlutafjár í félaginu, þrátt fyr-
ir að vera ekki kröfuhafi þess.
Árið 2010 hóf ESA formlega
rannsókn á aðkomu íslenska rík-
isins að björguninni. Stjórnvöld
kynnti stofnuninni endurreisn-
aráætlun fyrir hönd Sjóvár og á
grundvelli hennar m.a. hefur ESA
tekið formlega ákvörðun um að
björgun félagsins hafi verið sam-
rýmanleg EES-samningnum.
kij@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sjóvá Yfirvöld munu endurskoða löggjöf sína á sviði tryggingasamninga í
þeim tilgangi að auðvelda viðskiptavinum að skipta um tryggingafélag.
ESA samþykkir endur-
fjármögnun Sjóvár
Brammer Ísland ehf | Steinhella 17a | 221 Hafnarfjörður | Sími: 522 6262 | www.brammer.is
Heimsþekkt vörumerki frá öllum helstu framleiðendum í iðnaðarvörum og þetta er aðeins brot af þeim merkjum sem við bjóðum upp á
Glussa-, vökva- og loftkerfi
Í fremstu röð
í 20 ár...
Humarhúsið
101 Reykjavík · humarhusid@humarhusid.is
Amtmannsstíg 1 sími: 561·3303