Morgunblaðið - 12.07.2013, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2013
Árni Grétar Finnsson
agf@mbl.is
Velferðarráðuneytið hefur sent bréf
til lyfsala varðandi afslætti apótek-
ara í nýju greiðsluþátttökukerfi
lyfja. Í bréfinu er áréttuð sú afstaða
Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) að ekki
sé heimilt að veita afslátt af lyfja-
verði „á kassa“, en samkvæmt ráðu-
neytinu myndi slík tilhögun lækka
smásöluverð lyfsins og ætti því
greiðsluþátttaka sjúkratrygginga að
miða við hið nýja, lækkaða verð.
Eins og Morgunblaðið greindi frá í
gær hafa SÍ borist ábendingar um að
einhverjir lyfsalar fari ekki eftir
reglunum og veiti í raun afslátt á
lyfjunum sem er einungis kaupend-
um lyfja til hagsbóta, en ekki sjúkra-
tryggingum.
Endurgreiðsla eða fangelsisvist
Í bréfinu segir að hafi SÍ rök-
studdan grun um að apótek fari ekki
að settum reglum í tengslum við
uppgjör vegna greiðsluþátttöku
lyfjakostnaðar, hafi stofnunin að
mati ráðuneytisins þær heimildir
sem hún þarfnast til að bregðast við.
Getur ráðuneytið óskað upplýsinga
hjá þeim aðilum sem grunur beinist
að og geti eftir atvikum gripið til að-
gerða, t.d. með kröfu um endur-
greiðslu á fé.
Einnig segir að ef í ljós kemur að
apótek hafi innheimt hærri fjárhæð-
ir en heimilt er samkvæmt lögum
geti slíkt reynst brot á 249. gr. al-
mennra hegningarlaga, en í henni
felst að ef maður hefur fjárreiður
fyrir aðra á hendi og misnotar að-
stöðu sína, varði það fangelsi allt að 2
árum, og allt af 6 árum ef sakir eru
miklar.
Þung viðurlög við afslætti
Velferðarráðuneytið varar við veitingu afslátta Telja athæfið refsivert
Óvissa um reglurnar
» Reglur um veitingu afslátta
á lyfjum eru ekki skýrar og
telja lyfsalar að ekki sé laga-
stoð fyrir banni við athæfinu.
» SÍ er ósammála og hefur nú
ítrekað að ef ekki sé farið eftir
reglunum verði krafist endur-
greiðslu, eða frekari refsinga
ef brot eru alvarleg.
Verð á fjölbýli á höfuðborgarsvæð-
inu hækkaði um 3,12% á fyrri helm-
ingi ársins og verð á fasteignum um
3,83% á landinu öllu.
Á sama tímabili hækkaði vísitala
neysluverðs um 2,53% en 12 mán-
aða verðbólga mælist nú 3,3%.
Hefur fasteignaverð því hækkað
umfram vísitölubreytingar á árinu,
eða um 0,59% á höfuðborgarsvæð-
inu og um 1,3% á landinu öllu.
Eins og Morgunblaðið hefur
greint frá eru verðtryggð lán aftur
orðin vinsælli en óverðtryggð lán.
Spurður út í þessa þróun segir
Sigurður Hannesson, fram-
kvæmdastjóri eignastýringar MP
Banka, að þegar fasteignamark-
aðurinn var í lægð hafi fjársterkir
aðilar og fjárfestar sem hafi getað
lagt fram talsvert eigið fé verið stór
hluti kaupenda á markaðnum.
Þessir aðilar hafi margir kosið
óverðtryggð lán. Síðan hafi veltan á
fasteignamarkaði aukist og verð-
tryggðum lánum fjölgað.
Tengir Sigurður þá þróun við að
fjölbreyttari hópur kaupenda hafi
komið inn á markaðinn, þar með
talið kaupendur sem kjósi verð-
tryggð lán vegna þess að greiðslu-
byrðin sé ekki jafn þung og af
óverðtryggðum lánum. Þannig geti
þeir keypt stærri eignir en ella.
Það megi jafnframt túlka sem
merki um aukna bjartsýni neytenda
og breytt viðhorf til áhættu að þeir
séu tilbúnir að taka hærri verð-
tryggð lán en þegar markaðurinn
var í hvað mestri lægð.
Hægur stíg-
andi í fast-
eignaverði
Morgunblaðið/Ómar
Reykjavík Íbúðaverð er að hækka.
Sérfræðingur
greinir batamerki
FRÓÐASTI FERÐAFÉLAGINN
Í Vegahandbókina er komin
ítarleg 24 síðna kortabók,
með yfirlitskortum,
1:500 000, sem gefa skýra
yfirsýn yfir landsvæði
Íslands og auðvelda notkun
bókarinnar.
Vegahandbókin Sundaborg 9 sími 562 2600 www.vegahandbokin.is
Allt í einni bók
Fullt verð 4.990 kr.
1.000 kr. afsláttur ef þú kemur með
gömlu bókina
( einungis hægt að skipta í
bókabúðum,
ekki bensínstöðvum )
Árni Grétar Finnsson
agf@mbl.is
„Já, við fórum með fé á fjall á
þriðjudaginn. Þá var farið með allt
féð í einu, 45 fullorðnar kindur,“
segir Anna Birna Þráinsdóttir,
sýslumaður í Vík og bóndi á Varma-
hlíð undir Eyjafjöllum. Anna Birna
er ein 39 bænda sem eiga upp-
rekstrarrétt í afréttinum Almenn-
ingum við Þórsmörk. Deilt hefur
verið um beitarrétt á landsvæðinu
en Landgræðslan telur svæðið ekki
beitarhæft og hefur krafist ítölu.
Ítölunefnd kvað upp úrskurð bænd-
um í hag og í kjölfarið krafðist
Skógrækt ríkisins þess að yfirítölu-
nefnd tæki fyrri úrskurð til endur-
skoðunar, en nefndin hefur ekki
komið saman áður.
Landgræðslan ósátt við beitina
„Manni finnst þessi hernaður
gegn landinu vera dapur þegar ver-
ið er að reka fé á afréttinn. Þetta
hefur engin áhrif á þeirra búskap og
þeir þurfa ekkert á þessu að halda,
það er nóg land í heimahögunum
fyrir þá,“ segir Sveinn Runólfsson,
landgræðslustjóri. Hann segir það
siðferðilega skyldu að mynda öfl-
ugan gróður á svæðinu sem þolir
þau áföll sem verða til dæmis af
öskufalli og öðrum náttúruhamför-
um. „Þetta þýðir einnig að ef haldið
verður áfram að reka rollurnar á Al-
menningana, þá neyðist Skógræktin
til að girða Þórsmörk af. Það kostar
skattborgara 15 milljónir, fyrir
þessar fáu kindur,“ segir Sveinn.
Bændur eiga rétt til beitar
Óbyggðanefnd úrskurðaði árið
2004 að umrætt land væri þjóð-
lenda, og staðfesti Hæstiréttur úr-
skurðinn árið 2007.
„Það efast enginn um að 39 bænd-
ur eigi beitarrétt,“ segir Sveinn, en
það er óbeinn eignaréttur, og bætir
við: „Mér finnst sorglegt að bændur
telji sig þurfa að fara með fé á þenn-
an litla gróður sem þarna er að
aukast og þetta svertir að mínu mati
ímynd íslenskra sauðfjárbænda sem
eru yfirleitt góðir gæslu- og vörslu-
menn landsins.“
Sveinn segir Landgræðsluna vilja
semja við bændur um að friða landið
þar til það verður beitarhæft, en það
gæti tekið áratugi, en bændur vilji
heldur nýta beitarrétt sinn.
Bændur nýta beitar-
rétt við Þórsmörk
Landgræðsla
Íslands telur svæð-
ið ekki beitarhæft
Morgunblaðið/Rax
Þórsmörk Meirihluti ítölunefndar taldi að beita mætti í Almenningum.
Tveir ungir menn voru fundnir sek-
ir um þjófnað í Héraðsdómi Suður-
lands í gær. Annar rauf skilorð með
broti sínu og var eldri skilorðs-
dómur dæmdur upp. Var sá dæmd-
ur til að sæta fangelsi í níu mánuði,
skilorðsbundið til tveggja ára. Hin-
um var dæmdur hegningarauki og
ekki gerð sérstök refsing.
Í ákæru kom fram að mennirnir
hafi að kvöldi laugardagsins 4.
ágúst 2012 í samverknaði brotist
inn í sumarhús í landi Klausturhóla
í Grímsnes- og Grafningshreppi
með því að brjóta rúðu í þvotta-
húshurð og stela úr sumarhúsinu
þremur MacBook-fartölvum.
Mennirnir játuðu brot sín.
Tveir ungir menn dæmdir fyrir að stela
fartölvum úr sumarhúsi að næturlagi
Syðri hluti Dalsbrautar á Akureyri var í gær formlega opnaður fyrir
umferð. Geir Kristinn Aðalsteinsson, forseti bæjarstjórnar, klippti á borða
við ný gangbrautarljós á móts við Lundarskóla og fékk svo að sitja frammí
hjá Kristjáni Skjóldal, sem ók fyrstur kaflann frá Lundarskóla að Miðhús-
abraut og til baka á Chevrolet BelAir 1955. Njáll Trausti Friðbertsson og
Sigurður Guðmundsson voru í aftursætinu. Þau nýmæli eru á þessum hluta
Dalsbrautar að gangbrautarljós eru hraðastýrð. Hámarkshraði er 30 km á
klst. og ef ekið er hraðar mætir ökumaður sjálfkrafa rauðu ljósi.
Umdeildasti götukafli á Akureyri tekinn í notkun í gær
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Drossíur á Dalsbrautinni