Morgunblaðið - 12.07.2013, Blaðsíða 18
FRÉTTASKÝRING
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Lífeyrissjóðir eru langstærstu hlut-
hafar íslenska hlutabréfamarkaðar-
ins, en þeir eiga að minnsta kosti 31%
af hlutabréfum íslenskra félaga sem
skráð eru í Kauphöll Íslands. Grein-
ingardeild Íslandsbanka segir frá því
í Morgunkorni að heildareign sjóð-
anna nemi um 123 milljörðum króna,
en markaðsverð skráðra félaga, mið-
að við markaðsgengi í dagslok 4. júlí,
nemi um 401 milljarði króna. Grein-
ingardeildin tók saman upplýsingar
um tuttugu stærstu hluthafa þeirra
tíu íslensku félaga sem skráð eru á
aðallista Kauphallarinnar, en Kaup-
höllin birtir þessar upplýsingar mán-
aðarlega.
Umfangsmiklir á markaði
Lífeyrissjóðir hafa verið mjög um-
fangsmiklir á hlutabréfamarkaði eft-
ir hrun hans haustið 2008. Fjárfest-
ingaþörf sjóðanna er gríðarleg, en
sökum gjaldeyrishafta og fárra fjár-
festingakosta eru ávöxtunarmögu-
leikarnir takmarkaðir. Hlutfall eigna
sjóðanna í innlendum hlutabréfum er
þó enn tiltölulega lágt á meðan hlut-
fall m.a. ríkisbréfaeigna hefur aukist
verulega, eins og nánar er fjallað um
til hliðar.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna
stærsti hluthafinn
Í dag er Lífeyrissjóður verzlunar-
manna stærsti hluthafinn á hluta-
bréfamarkaðinum, en markaðsvirði
eignarhlutar hans nemur 38,5 millj-
örðum króna. Greiningardeildin
bendir á að lífeyrissjóðir megi ekki
eiga meira en 15% í einstöku félagi og
er Lífeyrissjóður verzlunarmanna
kominn ansi nálægt þeim mörkum.
Sjóðurinn á 14,6% í Eimskip, 14,4% í
Icelandair og 13,1% í Vodafone, svo
fáein dæmi séu tekin. Hefur mark-
aðsvirði eigna lífeyrissjóðsins aukist
um 1,3 milljarða króna síðan í lok
maí.
LSR og Gildi atkvæðamiklir
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkis-
ins (LSR) og Gildi lífeyrissjóður hafa
einnig verið fyrirferðarmiklir á hluta-
bréfamarkaði. Markaðsvirði eignar
LSR í skráðum félögum nemur 31
milljarði króna, sem er hækkun upp á
2,2 milljarða frá því í maí, og á Gildi
18,8 milljarða króna af hlutafé að
markaðsvirði. Samanlagt nemur því
markaðsvirði eignar þriggja stærstu
lífeyrissjóða landsins 88 milljörðum,
eða rétt rúmlega 70% af heildareign-
um allra lífeyrissjóða í skráðum
hlutabréfum.
Lífeyrissjóðir eru einnig óbeinir
eigendur á markaði en margir þeirra
eiga hlutdeildarskírteini í sjóðum
sem reknir eru af rekstrarfélögum.
Aukinheldur eiga lífeyrissjóðir mik-
inn meirihluta í Framtakssjóði Ís-
lands, sem var um tíma einn stærsti
eigandi skráðra félaga í Kauphöll-
inni.
Hlutfallslega stórir í Vodafone
Hlutfallsleg eign lífeyrissjóða á
móti öðrum hluthöfum er misjöfn eft-
ir félögum. Greining Íslandsbanka
bendir á að lífeyrissjóðir eigi um
38,5% í Högum, um 41% í Icelandair
og 45% í Vodafone. Minnst eiga líf-
eyrissjóðirnir hlutfallslega í VÍS, en
þeir fengu lítið úthlutað í útboði fé-
lagsins. Hluthafalistar Kauphallar-
innar sýna hins vegar að lífeyrissjóð-
irnir, sérstaklega LSR, hafa aukið við
hlut sinn í félaginu að undanförnu.
Lífeyrissjóðir stærstir á
hlutabréfamarkaðinum
Lífeyrissjóðir eiga yfir 31% af hlutabréfum félaga sem skráð eru í Kauphöllinni
Eignir lífeyrissjóða
Heimild: Greining Íslandsbanka
100%
80%
60%
40%
20%
0%
Ei
m
sk
ip
Ha
ga
r
Hl
/Ö
ss
ur
Ic
el
an
da
ir
M
ar
el
Re
gi
nn TM VÍ
S
Vo
da
fo
ne
Ný
he
rji
Í eigu lífeyrissjóða Í eigu annara
Hlutfallsleg eign Eign í skráðum félögum
120
100
80
60
40
20
0
Ei
m
sk
ip
Ha
ga
r
Hl
/Ö
ss
ur
Ic
el
an
da
ir
M
ar
el
Re
gi
nn TM VÍ
S
Vo
da
fo
ne
Ný
he
rji
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2013
STUTTAR FRÉTTIR
● Um 90 þúsund erlendir ferðamenn
fóru frá landinu um Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar í júnímánuði. Um 20,9%
aukningu er að ræða milli ára, en í júní
2012 fóru um 75 þúsund erlendir ferða-
menn frá landinu. Þetta kemur fram í
tölum frá Ferðamálastofu.
Af einstaka þjóðernum voru flestir
ferðamenn frá Bandaríkjunum, 19,6%,
og Þýskalandi, 13,5%. Þar á eftir komu
Bretar, Norðmenn og Frakkar.
Frá áramótum hafa rúmlega 311 þús-
und ferðamenn farið frá landinu en
aukningin milli ára nemur 27,2%.
Ferðamönnum fjölgar
● Á næstu árum þarf að skapa að
minnsta kosti tíu þúsund ný störf svo
hægt sé að koma á fullri atvinnu og
mæta vaxandi fjölda fólks á vinnu-
markaði. „Takist það nemur heild-
arávinningur hins opinbera um 40
milljörðum króna á ári og því er til
mikils að vinna,“ segir Þorsteinn Víg-
lundsson, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, í leiðara nýs fréttabréfs
samtakanna.
Mikill ávinningur af tíu
þúsund nýjum störfum
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./0
+12.+3
++1.00
,+.3/1
,4.-1
+1./00
+-4.-2
+.,5/5
+1/.31
+3+./3
+,-.11
+12.3+
++0.-5
,+.2,+
,4.55
+1.3/-
+-4.2-
+.,50
+13.,-
+3,.4+
,+2.0-20
+,5.+2
+11.43
++0.30
,+.215
,4./
+1.242
+-+.40
+.,/,3
+13.21
+3,.53
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Lánshæfismats-
fyrirtækið
Moody’s hefur
breytt horfum
sínum fyrir
breska banka-
kerfið úr nei-
kvæðum í stöð-
ugar. Að sögn
Financial Times
eru helstu ástæð-
ur fyrir þessari
breytingu þær að gæði eignasafns
banka þar í landi hafi farið batn-
andi og að arðsemi hafi aukist.
Horfur bankakerfisins hafa verið
neikvæðar, að mati Moddy’s, frá
maímánuði 2008 þangað til nú.
Moody’s bendir hins vegar á að enn
séu neikvæðar horfur á lang-
tímaskuldum í bankakerfinu.
Horfur úr
neikvæðum
í stöðugar
Bankar Stöðugar
horfur í Bretlandi.
Arðsemi eykst
Burstað, lakkað, olíuborið, handheflað, reykt,
fasað, hvíttað... hvernig vilt þú hafa þitt parket?
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Dalvegi 10-14 • Kópavogi
Plankaparket
í miklu úrvali
● Stór hluti hluthafa EasyJet studdi
það að fjölga mjög í flugflota fyrirtæk-
isins þrátt fyrir að Stelios Haji-
Ioannou, stofnandi og stærsti hluthafi
fyrirtækisins, væri því mótfallinn, segir
í frétt Financial Times. EasyJet mun
kaupa 35 A320, 100 A320 Airbus-
flugvélar og hefur kauprétt á 100 vélum
til viðbótar.
57% hluthafa kusu með flugvéla-
kaupunum en 43% voru á móti en
fulltrúar 85% af hluthöfum greiddu at-
kvæði. Fjölskylda Haji-Ioannou á 37%
hlut í fyrirtækinu.
Samþykkja risakaup
Umtalsverð breyting hefur átt sér
stað á eignasamsetningu lífeyris-
sjóðanna frá hruni bankanna.
Heildareignir sjóðanna hafa vaxið
um meira en 700 milljarða kóna og
voru í árslok 2012 um 2.540 millj-
arðar eftir því sem fram kemur í
yfirliti Fjármálaeftirlitsins (FME)
yfir stöðu lífeyrissjóðanna. FME
segir lífeyrissjóðina vera stóra í
efnahagslegu tilliti en aftur á móti
sé umtalsverður halli á trygg-
ingafræðilegri stöðu þeirra. Til að
draga megi úr halla í lífeyriskerf-
inu þyrfti, samkvæmt FME, að
hækka iðgjöld, skerða réttindi eða
hækka lífeyrisaldur. Bendir eftir-
litið á að gjaldeyrishöftin takmarki
fjárfestingamöguleika lífeyrissjóð-
anna.
Eign þeirra í ríkisbréfum og
skuldabréfum Íbúðalánasjóðs hef-
ur aukist verulega seinustu ár.
Hafa sérfræðingar bent á hættuna
sem stafi af stórauknu vægi ríkis-
tryggðra eigna. Í grein í áramóta-
blaði Viðskiptablaðsins í desem-
ber sagði Agnar Tómas Möller hjá
GAM Management um 57% eigna
lífeyrissjóða vera eignir sem
tryggðar eru beint með greiðslu-
getu Íslendinga, t.d. í gegnum rík-
issjóð. „Þetta er áhyggjuefni í ljósi
þess að skuldir ríkissjóðs hafa á
fjórum árum farið úr um 40% sem
hlutfall af landsframleiðslu í um
100% að viðbættum hratt vaxandi
skuldbindingum utan efnahags
vegna Íbúðalánasjóðs, LSR og
fleiri aðila.“ Segir Agnar að þessar
eignir geti rýrnað verulega ef
kaupmáttur lækki og greiðslugeta
heimila versni. Áhrifin af slíku
myndi valda enn meiri halla á op-
inbera lífeyriskerfinu. „Til að
spyrna við þessari þróun þurfa líf-
eyrissjóðirnir nauðsynlega að fjár-
festa í eignum sem gætu lifað ann-
að gengisfall og/eða lækkandi
kaupmátt heimila.“ Þar rekast
sjóðirnir hins vegar á vegg, m.a.
vegna gjaldeyrishafta.
Gjaldeyrishöft þrándur í götu
HÆTTA STAFAR AF STÓRAUKNU VÆGI RÍKISTRYGGÐRA EIGNA