Morgunblaðið - 12.07.2013, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.07.2013, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2013 Sérsmíðaðar baðlausnir Speglar • Gler • Hert gler Öryggisgler • Litað gler • Bílspeglar Sandblástur • Álprófílar Máltöku- og uppsetningaþjónusta Við leggjum metnað okkar í að bjóða sérhæfðar og vandaðar lausnir á baðherbergi. Við bjóðum upp á sérsmíðaða spegla, sturtuklefa og sturtu-skilrúm. Þá erum við komnir með nýja útgáfu af ljósaspeglunum okkar vinsælu. Á nýrri heimasíðu okkar glerslipun.is er gott yfirlit yfir það sem er í boði. Auk þess bjóðum við alla velkomna í Vatnagarða 12 þar sem fagfólk veitir góða þjónustu og allar þær upplýsingar sem þarf. Vatnagarðar 12 | Sími 588 5151 | Fax 588 5152 | glerslipun.isSTOFNAÐ 1922 Taívanar undirbjuggu sig í gær fyrir komu ofur- fellibylsins Soulik og fluttu meðal annars um 2.300 ferðamenn á Green-eyju í öruggt skjól. Veðurstofa landsins hefur varað íbúa við að fellibylnum muni fylgja sterkir vindar og mikið regnfall og segja að tré gætu rifnað upp og þök fokið af húsum. Á Okinawa í Japan var varað við því að allt að 12 metra háar öldur myndu skella á eyjaklasanum. AFP Undirbúa sig fyrir fárviðri Áfrýjunardómstóll Stríðsglæpadóm- stóls Sameinuðu þjóðanna í mál- efnum fyrrum Júgóslavíu úrskurðaði í gær að ákæra gegn Radovan Karad- zic, fyrrverandi leiðtoga Bosníu Serba, þar sem hann er sakaður um þjóðarmorð, skyldi standa. Dómarar við dómstólinn komust að þeirri niðurstöðu í fyrra að ekki væru nægar sannanir fyrir hendi til að skil- greina morð sem Bosníu Serbar frömdu frá mars fram í desember 1992 sem þjóðarmorð en áfrýjunar- dómstóllinn var á öndverðum meiði. Alls 409 fórnarlömb fjöldamorðsins í Srebrenica voru jarðsett í Potocari í Bosníu í gær en þá voru 18 ár liðin frá því að 8.000 menn og piltar voru tekn- ir af lífi af hermönnum Karadzic. Það hefur tekið tæpa tvo áratugi að bera kennsl á líkamsleifar um 6.000 fórn- arlamba fjöldamorðanna, sem fundist hafa í fjöldagröfum á svæðinu. Sannar- lega þjóð- armorð  Ákæra gegn Radov- an Karadzic stendur Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, sagði í viðtali sem birtist í flokksblaðinu Al-Baath í gær, að leiðtogar Baath-flokksins, sem skipt var út í vikunni, hefðu allir gerst sekir um embættisglöp. Baath-flokkurinn til- kynnti á þriðjudag nöfn sextán nýrra leiðtoga flokks- ins en Assad er eini maðurinn úr röðum gömlu flokksforystunnar sem situr áfram. „Þegar leiðtogi leysir ekki úr röð mistaka, verður að gera hann ábyrgan,“ sagði forsetinn. „Það er hlut- verk miðstjórnarinnar, sem á að láta leiðtogana sæta ábyrgð reglulega. Það gerðist ekki síðastliðin ár,“ bætti hann við. Assad sagði það hlutverk miðstjórnarinnar að „hafa eftirlit með störfum flokksforystunnar, meta þau og láta leiðtogana sæta ábyrgð.“ Forsetinn sagði átökin í landinu, sem hafa staðið í meira en tvö ár og kostað fleiri en 100.000 manns lífið, nú standa á milli þeirra sem væru fávísir og þeirra sem væru meðvitaðir. Þeir sem berðust nú fyrir þjóð sína væru verkamenn og bændur, sem sumir hverjir væru í hernum en aðrir stæðu vörð um sitt eigið land. Meðal þeirra sem misstu stöðu sína innan flokks- forystu Baath-flokksins var varaforsetinn Farouk al- Sharaa en hann er eini háttsetti embættismaðurinn í Sýrlandi sem hefur talað fyrir pólitískri málamiðlun til að binda enda á átökin. Í viðtalinu sem birt var í gær gagnrýndi Assad einnig Bræðralag múslima en sýrlenskur armur þess spilar lykilhlutverk í þjóðfylkingu stjórnarandstæð- inga í Sýrlandi. Hann sagði Bræðralagið nota trúna eins og grímu; ef þú stæðir ekki með því, þá þýddi það að þú stæðir ekki með guði. Forsetinn hafði aðra sögu að segja af Íran og Hez- bollah-samtökunum og það væri nauðsynlegt að „gera greinarmun á þeim sem nota trúna fáum til ávinnings og þeim sem notuðu trúna til að verja málstað sem væri réttlátur og réttmætur.“ holmfridur@mbl.is Leiðtogar þurfi að sæta ábyrgð  Baath-flokkurinn skiptir út flokksforystunni  Assad gagnrýnir Bræðralagið AFP Andstaða Egypskur mótmælandi hengir egypska fánann við mynd af Bashar al-Assad. Dzhokhar Tsarnaev, annar bræðranna sem taldir eru hafa staðið að baki sprengjutilræðinu í Boston- maraþoninu í apr- íl síðastliðnum, lýsti sig saklausan af ódæðinu á mið- vikudag, þegar málið var tekið fyrir af alríkisdómstól í Boston. Tsvarnaev var járnaður á höndum og fótum og svaraði ítrekað „ekki sekur“ á meðan ákæran, sem er í þrjátíu liðum, var lesin upp. Hann bar enn merki áverka sem hann hlaut á flóttanum undan lögreglu, m.a. gifs á vinstri hendi. Þrír létu lífið og 260 særðust í árás- inni og liggur lífstíðarfangelsi eða dauðarefsing við sautján af ákærulið- unum. Langt er í að eiginleg rétt- arhöld hefjist en talið er að þau muni standa yfir í nokkra mánuði. Lýsti sig saklausan af sprengjutilræðinu í Boston í apríl BANDARÍKIN Dzhokhar Tsarnaev Sjálfstæð eftirlits- nefnd um útgjöld breska þingsins hefur lagt til að árslaun þing- manna verði hækkuð um 9,3%, úr 68.000 pund- um í 74.000 pund, árið 2015. Til- lagan hefur vakið mikla reiði á Bret- landi, þar sem víða hefur gætt mikils samdráttar, og meðal-árslaun nema um 26.500 pundum, eða nærri 5 milljónum íslenskra króna. Nefndin hefur varið tillöguna og segir nauð- synlegt að þingið laði að úrvals- kandídata. Þá sé vinnutíminn langur. David Cameron, forsætisráðherra Breta, hefur lýst sig mótfallinn hækkuninni en ýmis verkalýðsfélög hafa í kjölfar birtingar tillögunnar farið fram á sambærilega kjarabót. Leggja til að laun þingmanna verði hækkuð um 9,3% David Cameron BRETLAND Stjórnvöld í Bandaríkjunum hyggjast standa við áætlanir um að afhenda egypska hernum fjórar F-16 orr- ustuþotur í ágúst, þrátt fyrir að öll aðstoð Bandaríkjamanna við Egypta- land sé í endurskoðun í kjölfar þess að herinn steypti Mohamed Morsi, lýðræðislega kjörnum forseta lands- ins, af stóli í síðustu viku. Ríkisstjórn Barack Obama hefur sagt að hún hafi til skoðunar hvort valdataka hersins sé eiginlegt valda- rán en ef það yrði niðurstaðan væru stjórnvöld vestanhafs knúin, sam- kvæmt bandarískum lögum, til að stöðva alla aðstoð við landið. Hermálayfirvöld í Bandaríkjunum hafa hins vegar sagt að þau muni áfram viðhalda langvarandi hern- aðarsambandi við Egyptaland og að Bandaríkin vilji að lýðræðisskipan komist á sem fyrst. Egyptar hafa fjárfest í fleiri en 220 F-16 vélum síðan 1980 og eiga fjórða stærsta flota þeirra í heimi, á eftir Bandaríkjunum, Ísrael og Tyrklandi. AFP Átök Fylgismenn Bræðralags múslíma vilja að Morsi verði sleppt úr haldi. Egypski herinn fær F-16 vélarnar í ágúst  Bandaríkjamenn yfirfara aðstoð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.