Morgunblaðið - 12.07.2013, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2013
Pólitísk umræða er menguð afmargs konar orðskrípum og
frösum sem þeir sem gjarnan hafa
lítið fram að færa grípa til í þeim til-
gangi að fela þá annars augljósu
staðreynd. Þetta er
hvimleitt og gerir
umræður iðulega
svo leiðigjarnar að
enginn nennir að
hlusta.
Annað sem meng-ar pólitíska
umræðu og er hálfu verra er þegar
ný hugtök eru búin til í þeim til-
gangi einum að afvegaleiða um-
ræðuna.
Vegna undirskriftar forsetans álögum frá Alþingi í vikunni
lagði einn þingmanna Vinstri
grænna orð í belg og sagði ekki
sannfærandi þegar forsetinn kallaði
veiðigjöldin skatt.
Þingmanninum var illa við að for-setinn notaði orðið skattur yfir
skattinn og vildi að hann notaði orð-
ið gjald. Nánar tiltekið veiðigjald.
Áður fyrr hét veiðigjaldið jafnanauðlindaskattur en síðan þótti
sakleysislegra að tala um gjald og
nú er það orðið nánast allsráðandi í
umræðunni um þessa tegund skatta
og hefur meðal annars ratað inn í
alla lagatexta um skattinn.
En að finna að því að talað sé umskattinn sem skatt bara af því
að hitt hljómar betur sýnir að ákafa-
menn um ofurskattheimtuna hafa
ekki góða samvisku.
Þeir vita sem er að sú mikla við-bótarskattlagning á sjávar-
útveginn sem vinstri stjórnin stóð
fyrir á engan rétt á sér en telja að
hún hljómi betur í eyrum einhverra
þegar talað er um gjöld.
Lilja Rafney
Magnúsdóttir
Skattur er skattur
þótt heitið sé gjöld
STAKSTEINAR
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
• Mylur alla ávexti, grænmeti
klaka og nánast hvað sem er
• Hnoðar deig
• Býr til heita súpu og ís
• Uppskriftarbók og
DVD diskur
fylgja með
Lífstíðareign!
Tilboðsverð kr. 106.900
Með fylgir Vitamix sleif
drykkjarmál og svunta
Fullt verð kr. 125.765
Meira en bara
blandari!
Veður víða um heim 11.7., kl. 18.00
Reykjavík 10 skýjað
Bolungarvík 10 skýjað
Akureyri 10 alskýjað
Nuuk 1 þoka
Þórshöfn 10 alskýjað
Ósló 17 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 léttskýjað
Stokkhólmur 21 heiðskírt
Helsinki 21 léttskýjað
Lúxemborg 23 léttskýjað
Brussel 17 heiðskírt
Dublin 17 léttskýjað
Glasgow 18 heiðskírt
London 13 skýjað
París 22 heiðskírt
Amsterdam 16 léttskýjað
Hamborg 17 léttskýjað
Berlín 22 skýjað
Vín 21 léttskýjað
Moskva 22 skýjað
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 17 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 26 léttskýjað
Aþena 26 léttskýjað
Winnipeg 11 léttskýjað
Montreal 12 súld
New York 14 skýjað
Chicago 10 léttskýjað
Orlando 23 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
12. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:34 23:34
ÍSAFJÖRÐUR 2:55 24:23
SIGLUFJÖRÐUR 2:36 24:08
DJÚPIVOGUR 2:54 23:13
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Sérstakur saksóknari hefur ákært
stjórnendur fjárfestingafélagsins
Milestone vegna greiðslna sem þeir
létu það inna af hendi til Ingunnar
Wernersdóttur á árunum 2006 til
2007.
Þeir Guðmundur Ólason, forstjóri
Milestone, Karl Wernersson, stjórn-
arformaður, og Steingrímur Wern-
erson, stjórnarmaður, eru ákærðir
fyrir umboðssvik, meiriháttar brot á
bókhaldslögum og lögum um árs-
reikninga í tengslum við greiðsl-
urnar sem nema á sjötta milljarð kr.
Þá eru endurskoðendurnir Hrafn-
hildur Fanngeirsdóttir, Margrét
Guðjónsdóttir og Sigurþór Charles
Guðmundsson, öll frá endurskoð-
unarfyrirtækinu KPMG, ákærð fyr-
ir brot gegn lögum um endurskoð-
endur. Þau Margrét og Sigurþór eru
ennfremur ákærð fyrir meiriháttar
brot á lögum um ársreikninga vegna
viðskiptanna.
Hirtu allan arðinn
Í ákærunni, sem Morgunblaðið
hefur undir höndum, kemur fram að
háttsemi Werner-bræðra og Guð-
mundar hafi falist í því að þeir létu
Milestone fjármagna kaup bræðr-
anna á hlutafé systur þeirra, Ing-
unnar, í félaginu.
Í fyrstu hafi verið með öllu óvíst
frá hverjum, hvenær eða með hvaða
hætti Milestone fengi fjármunina til
baka. Ákærðu hafi fært sem eign í
efnahagsreikning félagsins óljósar,
munnlegar kröfur á hendur eigna-
litlu aflandsfélagi, Milestone Import
Export, upp á tæpa 5,2 milljarða
króna. Það félag var einnig í eigu
systkinanna. Krafan var án nokk-
urra trygginga og skapaði þessi
háttsemi Milestone verulega fjár-
tjónshættu að því er segir í ákær-
unni.
Með því að færa kröfuna sem eign
í bókhald Milestone komust ákærðu
hjá því að fjármögnun hlutabréfa-
kaupanna kæmi til lækkunar á bók-
færðu eigin fé Milestone. Þannig
héldu Werner-bræður fullum eign-
arráðum yfir félaginu, beint og í
gegnum annað félag, og eignuðust
þorra hlutafjár í Milestone, án þess
að leggja fé til kaupanna og án þess
að eigið fé félagsins minnkaði. Þrátt
fyrir að hafa ekki lagt til neitt fé til
að kaupa hlutina af systur sinni
runnu allar arðgreiðslur Milestone á
árunum 2006 til 2007 og um 98,4% af
arðgreiðslum ársins 2008 til bræðr-
anna, alls milljarður króna.
Bættu inn skjölum eftir á
Endurskoðendurnir Margrét og
Sigurþór eru ákærð fyrir meirihátt-
ar brot á lögum um ársreikninga og
lögum um endurskoðendur við end-
urskoðun sína á ársreikningum
Milestone og samstæðureikninga
samstæðunnar fyrir árin 2006 og
2007. Þau, auk Hrafnhildar, eru
ákærð fyrir brot á lögum um endur-
skoðendur fyrir að hafa bætt inn í
endurskoðunarmöppu lánasamningi
á milli Milestone og Milestone Imp-
ort Export til að láta líta út fyrir að
hann hafi verið til staðar við gerð og
endurskoðun ársreiknings fyrir árið
2006. Þá er þeim gefið að sök að hafa
bætt við endurskoðunarmöppu Mile-
stone eftir að félagið var tekið til
gjaldþrotaskipta haustið 2009.
Ákærur birtar
vegna Milestone
Endurskoðendur einnig ákærðir
Morgunblaðið/Sverrir
Ákærur Sérstakur saksóknari hefur
gefið út ákærur vegna Milestone.