Morgunblaðið - 12.07.2013, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2013
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupsverslunum
(Smáralind og Spönginni) og Fjarðarkaupum.
Er á Facebook
Gigt, vöðvabólga
eða fótaóeirð?
www.annarosa.is
Eftir þrjú brjósklos og uppskurði vilja vöðvarnir á því svæði stífna þegar
mér verður kalt. Vöðva- og gigtarolían hefur alveg bjargað mér undanfarna
mánuði, hún er svo vöðvaslakandi og hitar svo vel! Eftir að ég kynntist
henni get ég ekki hugsað mér að vera án hennar og mæli eindregið með
henni! Fótakremið er silkimjúkt, fer fljótt inn í húðina og mér finnst það
alveg æðislegt. – Magna Huld Sigurbjörnsdóttir
Vöðva- og gigtarolían þykir afar góð til að draga úr liðverkjum
og vöðvabólgum ásamt því að gagnast við fótaóeirð.
Fótakremið er kælandi og kláðastillandi, mýkir þurra húð,
græðir sprungur og ver gegn sveppasýkingum.
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
Þetta er í fjórtánda skiptiðsem við höldum þessa hátíðog kjarni hennar hefur alltafverið þessar listasmiðjur
sem við starfrækjum alla vikuna frá
mánudegi til laugardags. Þetta byrj-
aði náttúrulega bara sem pínulítil há-
tíð. Það voru um það bil tuttugu
krakkar hérna og þau hjálpuðu líka til
við að stýra þessu. Ég eldaði bara ofan
í þau, þetta var svona frekar heimil-
islegt,“ segir Aðalheiður Lóa Borg-
þórsdóttir, framkvæmda- og fjár-
málastjóri listahátíðarinnar LungA.
Hún segir listahátíðina hafa vaxið frá
ári til árs og sé í dag miklu stærri en
hún var þegar hún var haldin í fyrsta
skiptið.
Bærinn fyllist af lífi
„Það eru rúmlega hundrað
krakkar hérna í listasmiðjum alla vik-
una. Þetta hefur að sjálfsögðu tals-
verð áhrif á lífið í bænum. Hér búa að-
eins tæplega sjö hundruð manns,“
segir Aðalheiður aðspurð út í það
hvort hátíðin setji ekki mikinn svip á
bæinn.
„Ég held að bæjarbúa hlakki til
og kvíði svolítið fyrir því að allur þessi
skari komi inn í bæinn. Þeim finnst þó
yfirleitt mjög gaman hvað bærinn
verður líflegur og hvað það er mikið af
ungu fólki hérna. Bæjarbúar eru mjög
opnir fyrir því að lána hús, búnað og
veggi til að graffa á. Það er yndislegt.
Svo eru náttúrulega alltaf einhverjir
sem hafa áhyggjur af drykkjunni í
kringum tónleikana sem eru alltaf um
helgarnar. Á tímabili stóttu mjög
margir ungir krakkar hátíðina. Vð
höfum tekið mjög vel á því og erum
með mjög góða gæslu. Við höfum sent
út þau skilaboð að við viljum ekki fá
sextán ára krakka með fullan bíl af
bjór og brennivíni á tjaldstæðið. Það
hefur því lagast mjög mikið,“ segir
Aðalheiður sem sjálf er búsett á Seyð-
isfirði.
„Grísalappalísa er að spila í ár
auk þess sem Vök, Úlfur Úlfur,
Mammút, FM Belfast, Ghostigital og
dönsk hljómsveit sem heitir Ranglek-
lods munu stíga á stokk. Þrátt fyrir að
tónleikarnir séu mögulega vinsælastir
á hátíðinni þá eru allir viðburðirnir
hérna vel sóttir,“ segir hún.
Listamannanýlenda
„Það eru um þúsund manns sem
sækja tónleikana ár hvert. Það seldist
upp á nokkrum dögum í ár og það er
búið að gerast síðustu þrjú ár. Það er
alltaf biðlisti hérna og mikil eftir-
spurn eftir því að sýna á hátíðinni.
Það komast því alltaf færri að en
vilja. Þeir sem eru í LungA ráðinu
skipuleggja þetta að stórum hluta en
þar er fólk sem er jafnvel í listnámi
eða nýbúið að ljúka listnámi. Síðan
erum við vel tengd inn í Listaháskól-
ann og nemendur þaðan sækja mikið
hingað,“ segir Aðalheiður.
„LungA er ekki það eina sem er í
gangi hérna í bænum hvað listalíf
varðar. Hér er líka ýmislegt í
tengslum við Skaftfell, myndlista-
miðstöð Austurlands. Þar er mikil
gróska. Það er alltaf allt fullbókað
þar, bæði af innlendum og erlendum
listamönnum. Svo er Skaftfell með
vinnusmiðju í samstarfi við Dieter
Roth Akademíuna. Það er líka vel
sótt. Það má eiginlega segja að Seyð-
isfjörður sé svona listamannaný-
lenda,“ segir Aðalheiður sposk.
Lýðháskóli á Seyðisfirði
„Við höfum verið með góð tengsl
við skóla sem heitir KaosPilots og er
staðsettur í Árósum í Danmörku. Það
hafa komið hópar úr honum nokkur
ár í röð. Það er gaman að segja frá því
að það er búið að stofna hér listtengd-
an lýðháskóla sem heitir einfaldlega
LungA skólinn. Hann byrjar 2014 og
mun verða starfræktur allt árið um
Heilbrigt LungA
dafnar vel og stækkar
Listahátíðin LungA verður haldin í fjórtánda skiptið dagana 14. til 21. júlí. Há-
tíðin hefur heldur betur skotið rótum en auk þess sem rúmlega þúsund gestir
sækja hana ár hvert, þá er verið að stofna lýðháskóla tengdan hátíðinni.
Tölvupopp Danska sveitin Rangleklods mun koma fram á hátíðinni í ár.
Ljósmynd/Alísa Kalyanova
Fagurt Eins og sjá má er náttúrufegurðin mikil á Seyðisfirði.
Listakonan Ragnheiður Maísól
Sturludóttir opnaði nýlega vefsíðu
með samansafni af verkum sínum.
Hún útskrifaðist úr myndlist frá
Listaháskóla Íslands í vor og hefur
verið iðin við kolann á sviði lista und-
anfarin ár. „Ég geri gjörninga, mynd-
og hljóðverk, og það má sjá yfirlit yf-
ir verk mín á síðunni. Svo er ég líka
með tengil inn á bloggsíðu en inni á
henni er ég með samansafn af því
sem mér þykir fallegt í hversdags-
leikanum,“ segir Ragnheiður.
Í lok júlí verður Ragnheiður ásamt
vinkonu sinni með óvenjulega sýn-
ingu á Kaffistofunni á Hverfisgötu.
„Þetta verður viðburður sem er tíma-
tengdur með ákveðinn tímaramma
þar sem við skoðum einveruna í
fögnuði eins og afmælum og öðrum
hátíðarhöldum,“ segir Ragnheiður.
Fjölbreytnin ræður ríkjum í list-
sköpun Ragnheiðar en hægt er að sjá
hana á sviði í Fullorðinssirkusnum
Skinnsemi sem er með sýningu í
kvöld og á morgun á Volcano sirk-
ushátíðinni.
Vefsíðan www.ragnheidurmaisol.com
List Gjörningur þar sem markmiðið var að fylla rými af appelsínugulum reyk.
Rýnir í fegurð hversdagsleikans
Það verður sann-
kölluð tónlistarveisla
á Græna hattinum á
Akureyri um helgina.
Valdimar treður upp
ásamt hljómsveit á
föstudagskvöld og
hefjast tónleikarnir
klukkan 22. Á laug-
ardags- og sunnu-
dagskvöld mun fær-
eyska
álfadrottningin og
listakonan Eivör
Pálsdóttir vera með
tónleika. Tónleikarnir
á laugardagskvöld
hefjast klukkan 22
en á sunnudagskvöld
klukkan 21. Áhuga-
samir ættu að
tryggja sér miða í
tíma og er bæði
hægt að nálgast
miða á midi.is og í
verslunum Eymund-
son.
Endilega...
...farðu á tónleika á Græna
hattinum á Akureyri
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Listakonan Ljúfir tónar Eivörar munu hljóma.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.