Morgunblaðið - 12.07.2013, Síða 17

Morgunblaðið - 12.07.2013, Síða 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2013 Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór fyrirtæki, stofnanir og prentsmiðjur sem eiga það sameiginlegt að gera kröfur um gæði og góða þjónustu. bizhub C35 er sannkallað fjölnotatæki bizhub C35 er prentlausn sem hentar flestum fyritækjum. Prentari, ljósritunarvél, faxtæki og skanni í einu nettu tæki sem prentar 30 blaðsíður á mínútu, hvort sem er í svart-hvítu eða lit. Kynntu þér rekstrarkostnaðinn því hann kemur á óvart. Þú þarft ekki annað tæki en bizhub C35. Verð: 379.900 kr. Konica Minolta fjölnotatækin eru margverðlaunuð fyrir hönnun, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika. Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is Fæst einnig í veFverslun stoðar 31ár 1982-2013 Trönuhrauni 8 | 220Hafnarfirði | Sími 565 2885 Opið kl. 8 - 16 virka daga | stod@stod.is | www.stod.is Þar sem sérFræðingar aðstoðaÞig viðvalá hlíFum Við styðjum þig STOÐ P O R T hö nn un Guðni Einarsson gudni@mbl.is Bréf frá Frederick Irving, sem var sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi á árunum 1972-1976, var lesið við setningu goslokahátíðarinnar í Vest- mannaeyjum hinn 4. júlí síðastliðinn. Þar var þess minnst að 40 ár voru liðin frá lokum Heimaeyjargossins árið 1973. Barbara Irving, dóttir sendiherra- hjónanna Dorothy og Frederick Irv- ing, las bréfið frá föður sínum. Hann bý nú í Bandaríkjunum. Með Bar- böru í för voru níu manns úr fjöl- skyldu hennar. Hópurinn kom til Vestmannaeyja í tilefni gos- lokahátíðarinnar. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, bauð Irving- fjölskylduna sérstaklega velkomna við setningarathöfnina. Hann sagði vel þekkt hve mikinn þátt Irving sendiherra hefði átt í þeim mikla stuðningi sem Bandaríkjamenn veittu Íslendingum í eldgosinu. Elliði sagði í samtali við Morgun- blaðið að í bréfinu sem Barbara las hefði Frederick Irving þakkað Vest- mannaeyingum og Íslendingum fyr- ir samveruna og samskiptin á árum áður. Einnig hefði hann rifjað upp árin hér og minnisverða viðburði. Elliði sagði að það hefði verið mik- ið happ fyrir íslensku þjóðina að fá hingað slíkan þungavigtarmann í bandarískum utanríkismálum, sem Frederick Irving var, í stöðu sendi- herra á Íslandi. „Koma hans hingað var til marks um mikilvægi Íslands í heimsmál- unum á þessum árum. Það var okkur mikið happ í gosinu að hafa hér mann sem hafði jafn mikið umboð og áhrif og Irving hafði. Hann hafði mjög sterk tengsl við æðstu valda- menn í bandaríska stjórnkerfinu og ríkt umboð til ákvarðanatöku,“ sagði Elliði. Hann nefndi sérstaklega þátt Irv- ings sendiherra í að fá dælubún- aðinn sem Bandaríkjamenn lánuðu og fluttu hingað með skömmum fyr- irvara. Dælurnar skiptu sköpum fyr- ir hraunkælinguna í Heimaeyjargos- inu. Einnig áttu flugvélar varnarliðsins stóran þátt í að flytja aldraða og sjúka frá Vestmanna- eyjum nóttina þegar gosið braust út. Fjöldi bandarískra hermanna af Keflavíkurflugvelli kom einnig til Vestmannaeyja og vann við að moka ösku af húsþökum og bjarga eignum á meðan eldgosið stóð sem hæst. Sterkur sendiherra á örlagastundu  Kveðja frá Frederick Irving, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna, lesin við setningu goslokahá- tíðarinnar  Irving var lykilmaður í þeirri miklu aðstoð sem Bandaríkjamenn veittu í eldgosinu 1973 Ljósmynd/Robert E. Kaiser Íslandsvinir Sendiherrahjónin Dorothy og Frederick Irving. Ljósmynd/Paul M. Cunningham Goslokahátíð Barbara Irving og Luis E. Arreaga, sendiherra Bandaríkj- anna, við setningu goslokahátíðarinnar í Vestmannaeyjum 4. júlí 2013. Samskip ætla að hætta að flytja hvalkjöt frá Íslandi eftir að hafnir í Hollandi og Þýskalandi ákváðu að hætta að umskipa hvalkjöti þar. „Okkur sýnist að þessu sé sjálf- hætt því að þær hafnir sem hvalkjöt- ið hefur verið flutt til eru búnar að setja bann á þessar afurðir. Þannig að okkur eru allar bjargir bannaðar í þessum efnum,“ sagði Anna Guðný Aradóttir, forstöðumaður markaðs- og samskiptadeildar Samskipa, í samtali við mbl.is. Sex gámar stöðvaðir Samskip flutti í júní sex gáma af hvalkjöti til Rotterdam í Hollandi. Þar var gámunum skipað upp í ann- að flugningaskip sem átti að flytja þá i til Japans. Tollayfirvöld létu hins vegar flytja gámana aftur í land á meðan kannað var hvort gögn sem fylgdu sendingunni væru í lagi. Í millitíðinni hélt flutningaskipið, sem flytja átti kjötið frá Hamborg, för sinni áfram. Þegar skipa átti kjötinu um borð í annað flutningaskip komu Grænfriðungar í veg fyrir að það tækist með mótmælum, m.a. með því að binda sig við landfestar skipsins. Varð úr að skipið hélt úr höfn án þess að hafa gámana sex með hval- kjötinu um borð. Samskip lýstu því síðan yfir í Rotterdam á þriðjudag, að hvalkjötið yrði flutt til Íslands á ný. „Þjóðverjar hafa stöðvað þetta í Hamborg og eru að kalla eftir banni í öllum höfnum í Þýskalandi og þá er orðið mjög erfitt að koma þessu til Asíu,“ segir Anna Guðný. Langmest- ur flutningur frá Íslandi hafi farið í gegnum Rotterdam og Hamborg. „Þegar aðgenginu að markaði er lok- að þá er þetta orðið svolítið erfitt.“ hjorturjg@mbl.is Ljósmynd/Af vef Greenpeace Mótmæli Grænfriðungar bundu sig við landfestar skips í Hamborg. Samskip hætta að flytja hvalkjöt  Sjálfhætt, segir talsmaður Samskipa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.