Morgunblaðið - 12.07.2013, Page 29

Morgunblaðið - 12.07.2013, Page 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2013 ✝ Lára Bene-diktsdóttir fæddist á Hólma- vaði í Aðaldal 3. júní 1937. Hún lést á Heilbrigð- isstofnun Þing- eyinga 4. júlí 2013. Foreldrar henn- ar voru hjónin Jón- asína Halldórs- dóttir, f. 15. október 1895, d. 8. nóvember 1968, og Benedikt Kristjánsson, f. 25. nóvember 1885, d. 27. september 1968. Systkini Láru voru í aldursröð Kristjana, f. 17. nóvember 1916, d. 11. júní 1925; Helga, f. 7. júní 1921, d. 5. október 1999; Krist- ján, f. 15. apríl 1923, d. 12. maí 2007; Kristjana Guðrún, f. 17. 1936. Lára og Jón giftust 30. janúar 1960. Samhliða húsmóð- urstarfinu vann Lára ýmis til- fallandi störf. Lára og Jón eignuðust þrjú börn. 1) Hulda, f. 7. ágúst 1959, gift Jóhanni Gunnarssyni. Börn þeirra eru: a) Lára Sóley, gift Hjalta Jónssyni, börn þeirra eru Jóhann Ingvi og Hulda Margrét, b) Jón Hafsteinn, sam- býliskona hans er Sigrún Sif Jónsdóttir, börn þeirra eru Hulda Bríet og Dagur Breki, c) Benedikt Þór, unnusta hans er Berglind Héðinsdóttir. 2) Ing- ólfur, f. 18. ágúst 1966, sam- býliskona hans er Karin Ger- hartl. Dóttir Ingólfs og Berglindar Steinadóttur er Hjördís Dong. 3) Jónasína Lilja, f. 13. maí 1974, gift Hauki Geir Gröndal. Börn þeirra eru: a) Kristófer Örn, b) Thelma Sól og c) Elísabet Lilja. Útför Láru fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag, 12. júlí 2013, og hefst athöfnin klukkan 14. desember 1927, d. 18. janúar 2013; Halldór Davíð, f. 9. febrúar 1929, d. 9. maí 2009. Fóst- urbróðir Láru var Stefán Jón Stein- þórsson, f. 4. des- ember 1915, d. 26. febrúar 2009. Lára ólst upp á Hólmavaði og gekk í farskóla sem barn. Síðan vann hún við al- menn bústörf hjá foreldrum sínum á Hólmavaði, þar til hún fluttist til Húsavíkur. Lára hóf störf á saumastofunni Fífu og vann þar í nokkur ár. Á Húsavík kynntist hún eft- irlifandi eigimanni sínum, Jóni Ingólfssyni, f. 31. desember Til mömmu. Á bökkum Laxár leit hún hið fyrsta dagsins ljós við laufsins logaglóðir við leik og starf og hrós. Til Hólmavaðs og æskunnar með ást- úð alltaf leit og elskaði af hjarta þann Aðaldalsins reit. Lífið kallar alla og langt og strangt varð starf þú stundaðir með alúð þann ljúfa lífsins arf. Alla vildir gleðja og ekkert aumt að sjá allir minnimáttar áttu öruggt skjól þér hjá. Mín fyrirmynd í öllu sem fallegt gerðir þú frábærlega hugsaðir um mann og börn og bú. Til Sumarlandsins kæra þú svífur nú á braut sálin frjáls og líkaminn laus við alla þraut. Er kveð þig elsku mamma og klökk í huga er kæra geymi minninguna innst í hjarta mér ég þakka allt það góða sem þú kennd- ir mér svo vel með þökk og ást um eilífð í anda guðs þig fel. (Guðrún Jónína Magnúsdóttir.) Þín dóttir, Hulda. Tengdamóðir mín, Lára Bene- diktsdóttir, lést á Heilbrigðis- stofnun Þingeyinga fimmtudag- inn 4. júlí síðastliðinn eftir að hafa glímt við erfið veikindi. Kynni okkar Láru hófust 1981 þegar við Hulda dóttir hennar tókum saman. Lára var mikil húsmóðir, alla tíð tilbúin að taka á móti gestum, hvort sem var í kaffi og mat eða til lengri dvalar. Þeir eru ófáir sem í gegnum tíð- ina hafa notið gestrisni hennar og Nonna. Þessu kynntist ég þegar ég kom fyrst í heimsókn til hennar en þá beið mín veislu- borð á Miðgarði 3 og urðu þau mörg gegnum árin. Þegar við Hulda eignuðumst okkar fyrsta barn, dóttur sem skírð var í höf- uðið á ömmu sinni, var ekki ama- legt að geta komið henni í pöss- un hjá ömmu, alltaf tilbúin að sinna henni og síðar líka drengj- unum okkar, Nonna og Bene- dikt. Lára var fædd og uppalin á Hólmavaði í Aðaldal og þegar ég kom í fjölskylduna bjó bróðir hennar Kristján þar ásamt fjöl- skyldu sinni. Tengslin á milli voru mikil og naut ég góðs af því og fékk oft tækifæri til silungs- og laxveiða þar. Lára og Nonni fóru með okkur í eftirminnilegar veiðiferðir í Vopnafjörð og komu oft til okkar í útilegur þar sem við áttum skemmtilegar sam- verustundir. Lára var ætíð ánægð með fiskinn sem ég færði henni af sjónum en þó var ekk- ert sem sló út Laxársilunginn eða laxinn eins og sannaðist und- ir lokin. Matarlystin var orðin lítil sem engin en þegar henni var færður glænýr silungur, sem Benedikt sonur minn hafði veitt í Laxá, kom glampi í augun og lystin kviknaði stutta stund. Mikið jólabarn var í Láru, hún varð helst að hafa alla sína innan seilingar á jólunum og allir þurftu að fá stórar gjafir. Það var því fjölskyldunni erfitt að síðustu jólin hennar gat hún ekki verið heima vegna veikinda sinna. Lára naut góðrar aðhlynning- ar á Heilbrigðisstofnun Þingey- inga þá 14 mánuði sem hún dvaldi þar og vil ég þakka starfs- fólki fyrir. Lára, ég þakka fyrir okkar góðu kynni, guð veri með þér og fylgi að nýrri strönd. Kveðja, Jóhann. Elsku amma. Ég kveð þig með söknuði. Þú hefur skipað stóran sess í lífi mínu og erfitt er að ímynda sér heiminn án þín, en ég á glás af ómetanlegum minningum. Ég er þakklát fyrir að hafa átt ömmu eins og þig. Þú hefur tekið þátt í lífi mínu frá fyrstu mínútu, því þú varst viðstödd fæðingu mína. Í um þrjátíu ár fékk ég að heyra sög- una af því þegar við horfðumst fyrst í augu, nöfnurnar, nú síðast í vetur. Ég var mikið í pössun hjá þér á yngri árum. Þú komst alla tíð fram við mig eins og vinkonu og leyfðir mér að taka þátt í dag- legu amstri, gafst mér alltaf eitt- hvert hlutverk. Heimili ykkar afa var sem mitt annað heimili. Þangað gat ég alltaf leitað. Þú kenndir mér margt. Spil- aðir með mér á rafmagnsorgelið og við sungum, sagðir mér sögur úr sveitinni, gafst mér að borða allskonar mat. Mig langaði alltaf að vera eins og þú og lét mig þess vegna ekki muna um að borða með þér laxahausa, sviða- lappir, grasysting og fleira góð- gæti með bestu lyst. Áhugi ykkar afa á öllu því sem ég tók mér fyrir hendur skipti mig miklu. Ég held að þið hafði nánast mætt á alla tónleika sem ég spilaði á Húsavík og nágrenni frá sex ára aldri. Þið hvöttuð mig til að halda áfram tónlistarnámi og eigið stóran þátt í að ég ákvað að leggja tónlistina fyrir mig. Þú varst líka svo dugleg að fylgjast með öllum í fjölskyldunni, ekki síst barnabarnabörnunum. Við heyrðumst oft í viku, stundum oft á dag, sérstaklega ef eitthvað amaði að, því þú vildir fylgjast með og vera til staðar. Elsku amma, þú ert mér ein- stök fyrirmynd. Þú barst um- hyggju fyrir öllum í kringum þig, sérstaklega þeim sem minna máttu sín. Eitt það síðasta sem þú baðst mig um var að ég syngi fleiri lög fyrir þig. Ég geri það í dag sem alla aðra daga, þegar ég syng, þá syng ég fyrir þig. Alla þá elsku sem þú gafst mér geymi ég í hjartanu að eilífu og hlakka til að hitta þig síðar. Þá fáum við okkur grasysting. Blessuð sé minning þín, Þín nafna, Lára Sóley. „Tíminn líður, líður en bíður eigi. Eins og stríðum straumi fljót, stefni víðis örmum mót.“ Þeir sem komnir eru á efri ár, finna áþreifanlega fyrir sannleik- anum í þessum hendingum þeg- ar æskuvinir og samferðamenn hverfa úr lífsins lest. Lára Bene- diktsdóttir vinkona, leiksystir og frænka er kvödd í dag. Hún ólst upp á Hólmavaði en við á Ytra Fjalli og varla meira en tuttugu mínútur fyrir léttstíga fætur að skoppa á milli, þó auðvitað væri hægt að teygja þann tíma við berjaleit í hraunlágunum og alls- konar dund. Lára var langyngst af systkinahópnum á Hólmavaði og eftirlæti og augasteinn fjöl- skyldunnar. Á þessum árum var ekki auður í búi á heimilum okk- ar, höft og skömmtun, en því meiri auðævi af hjálpsemi og hjartahlýju. Lára fékk þá eig- inleika í arf og breiddi sig yfir aðra allt sitt líf. Í æsku okkar var ekki sími á milli bæja og krakkar sendir með skilaboð. Oftast fékk maður leyfi til að leika sér við heimabörn í hálf- tíma til klukkutíma, tveir tímar voru mikil rausn. En þessi stund var líka vel notuð og leið ör- skotsfljótt. Ég man okkur þrjár á lontuveiðum við Oddakíl og Lára sýndi þar að veiðieðlið var henni í blóð borið, eins og öðru Hólmavaðsfólki. En svo var spurning hvað ætti að gera við þrjár spriklandi lækjarlontur langt frá því að vera ætar. Kett- irnir geta fengið þær sagði Lára hreystilega, mig minnir samt að þær hafi verið grafnar undir steini, en þetta var mjög spenn- andi. Lára var ári eldri en Birna systir mín. Þær gengu saman í barnaskóla og sú vinátta endist alla tíð. Laxá í Aðaldal rennur við túnfótinn á Hólmavaði. Blá- tær straumur hennar, blómsk- rýddir bakkar og hólmar með sitt fjölbreytta fuglalíf, lax og sil- ung í hyljum, varla er til ynd- islegra umhverfi og uppeldis- staður. Lára fann lífsförunaut sinn, Jón Ingólfsson, á Húsavík og þar bjuggu þau sinn búskap. Betri mann gat hún ekki fundið, elskulegan og tryggan. Þau voru líka samhent um alúð og rækt- arsemi. Þegar foreldrar Láru, Jónasína og Benedikt, voru orðin heilsuþrotin þá tóku Lára og Jón þau á heimili sitt. Stofan var hólfuð sundur svo þau fengju herbergi og frænka Láru, sem var orðin gömul og lasburða var í hinum hlutanum. Fundum okkar Láru bar ekki oft saman eftir að hún settist að á Húsavík. En það var alltaf eins og að koma í foreldrahús þegar mig bar þar að garði. Seinasta árið var Láru og hennar fólki þungt í skauti, þessi orkumikla og duglega kona háði harða sjúk- dómsbaráttu. Í æsku var okkur skammtaður tími til leikja en hurfum frá þeim orðalaust þegar kallið barst. Nú bíður hennar önnur veröld. Þar sé ég Láru okkar fyrir mér með ljósa lokka, freknur á nefi og geislandi bros á vörum. Við systkinin frá Fjalli minnumst Láru með hlýrri þökk fyrir vináttu og tryggð og send- um fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveðjur. Ása og Birna, Indriði, Álfur og Ívar Ketilsbörn. Lára Benediktsdóttir Vinátta er eitt fallegasta hug- takið í íslenskri tungu. Í góðum vini eru mikil verðmæti. Frá því að mér bárust þau tíðindi að Helgi Már hefði tapað sínu veik- indastríði hef ég hugsað til þeirra mörgu stunda sem við Helgi Már Arthursson ✝ Helgi MárArthursson fæddist á Ísafirði 19. febrúar 1951. Hann lést á hjarta- lækningadeild Landspítalans 14. júní 2013. Helgi Már Arth- ursson var jarð- sunginn frá Nes- kirkju 2. júlí 2013. áttum saman. Við unnum saman í nokkur ár og þá kynntist ég góðum félaga sem var frá- bær blaða- og fréttamaður. Hann gat verið stríðinn og þurfti stundum aðeins að segja eina hnitmiðaða setn- ingu eða setja upp sposkan svip til að hreyfa aðeins við manni. Í gamla sjónvarpshúsinu á Laugavegin- um var fréttastofan á fjórðu hæðinni. Einn daginn var Helgi í stuði og gerði óspart grín að óförum míns liðs í fótboltanum. Ég brá á það ráð að snara hon- um á öxlina og hlaupa með hann niður tröppurnar og skilja hann eftir fyrir utan sjónvarpshúsið. Ég sagði honum að ef hann hætti ekki að hæðast að liðinu mínu myndi ég hlaupa með hann niður í Laugardal. Helgi hló all- an tímann meðan á ferðalaginu niður tröppurnar stóð. Þegar hann kom aftur upp á fjórðu hæðina sagði hann ekkert, lét sér nægja að brosa og stríða mér þannig um stund. Eftir að Helgi Már hætti í fréttamennsk- unni héldum við áfram að skiptast á skoðunum með sím- tölum eða tölvupósti. Alltaf var hann jafnbeittur í athugasemd- um sínum, ennþá sami frétta- maðurinn enda þótt hann væri hættur í starfinu. Ég heimsótti hann á sjúkrahús fyrir nokkrum mánuðum. Þá var hann sami eldhuginn og áður og sami trausti vinurinn. Fjölskyldunni sendi ég samúðarkveðjur. Arnar Björnsson. Þegar ég var lítið barn sagði afi mér skrýtna sögu. Við vorum á gangi í skóginum rétt fyrir of- an Hreðavatn og komum að grunnu fljóti sem lá ofan í vatn- ið. Hann sýndi mér tvær fjaðrir og sagði mér að þær væru töfr- um gæddar því að hann þyrfti bara að setja þær í hattinn sinn og þá gæti hann flogið yfir fljót- ið. Og að því búnu gerði hann akkúrat það. Með viðhöfn við fjaðurfestinguna og smávegis plaski flaug hann yfir og til baka Hallgrímur Sæmundsson ✝ Hallgrímurfæddist á Stóra-Bóli á Mýrum í Hornafirði 19. júní 1926. Hann lést á heimili sínu 22. júní 2013. Útför Hallgríms fór fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ 4. júlí 2013. aftur. Ég var frá mér numinn af undrun og gleði. Þegar ég velti þessu fyrir mér eft- ir að ég varð eldri þá er ég ekki jafn- viss um að hann hafi í alvörunni flogið eins og ég trúði svo lengi. En það sem er víst er að þetta er sá sem Hallgrímur afi var og mun alltaf vera fyrir mér; maður sem sýndi mér að það er hægt að gera allar mögulegar aðstæður skemmti- legar, jafnvel spennandi. Einu verkfærin sem maður þarf er gott ímyndunarafl og viljinn til að gera það besta úr efniviðnum sem er fyrir hendi. Svo skemmir ríkulegur orðaforði – á ýmsum tungumálum – aldrei fyrir. Takk fyrir ævintýrin elsku afi. Þín Ásta Lovísa. Brostinn er hlekkur í keðju vorri. Fallinn er frá kær vinur og Oddfellowbróðir, Gunnlaugur Pálmi Steindórsson. Okkur 30 konum þótti mikill heiður að svo reyndur Oddfellow sem Gunnlaugur var vildi taka þátt með okkur í stofnun nýrrar systrastúku hinn 1. des. sl. og nut- Gunnlaugur Pálmi Steindórsson ✝ GunnlaugurPálmi Stein- dórsson fæddist í Reykjavík 25. októ- ber 1925. Hann andaðist á heimili sínu 21. júní 2013. Útför Gunnlaugs fór fram frá Dóm- kirkjunni í Reykja- vík 3. júlí 2013. um við reynslu hans og ráðgjafar með miklu þakklæti. Hann sótti fundi okkar Þorbjargar- systra af áhuga og vildi okkur allt hið besta í stúkustarfinu og studdi okkur með ráðum og dáð. Hann sótti einnig skemmt- anir og vorferðalag með okkur og mun- um við sakna nærveru hans. Við sendum sonum hans og fjöl- skyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hins látna bróður. F.h. Þorbjargarsystra, Stjórnin, Hildigunnur Hlíðar. Fyrir um það bil 30 árum komu saman nokkrar fyrrver- andi og starfandi fugfreyjur. Við áttum það allar sameiginlegt að hafa byrjað ungar sem flugfreyj- ur hjá Flugfélagi Íslands. Vildum við halda hópinn enda einungis 30 fastráðnar auk sumarfólks, við sameiningu flugfélaganna tveggja, Loftleiða og Flugfélags Íslands. Af þeim eru nokkrar enn starfandi, sem flugfreyjur, hjá Icelandair. Þetta gaf okkur færi á að rækta áfram þessi nánu vin- áttubönd og höfum við síðan hist einu sinni í mánuði að jafnaði á hinum ýmsu stöðum. Fyrstu árin var auðvitað mikið talað um Sigríður Gunnlaugsdóttir ✝ Sigríður Gunn-laugsdóttir fæddist á Siglufirði 25. október 1935. Hún lést á Land- spítalanum við Hringbraut 22. júní 2013. Útför Sigríðar fór fram frá Kópa- vogskirkju 2. júlí 2013. starfið og ferðalögin en síðan voru það börnin okkar sem áttu hug okkar allra og nú einnig barna- börnin. Er ómetan- legt að hafa aðgang að þessum glaða hópi. Nú er kær vin- kona okkar Sigríður Gunnlaugsdóttir látin eftir baráttu við krabbameinið. Höfðum við vonast til að eiga lengri tíma með henni. Sigga var góð flugfreyja og góð vinkona, glaðvær og umhyggjusöm í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Við minnumst hennar í dag þar sem hún hefur nú farið sína allra síðstu ferð. Hennar verður sárt saknað í hópnum okkar. Viljum við votta börnum Siggu, Ýri og Stefáni, ásamt fjölskyldum, okk- ar dýpstu samúð. Blessuð sé minning hennar. Við þökkum samfylgdina, góða ferð. F.h. kaffihópsins Sexurnar, Inga Helgadóttir og Guðný Jónasdóttir. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.