Morgunblaðið - 12.07.2013, Side 31

Morgunblaðið - 12.07.2013, Side 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2013 ✝ Skúli H. Fjall-dal fæddist á Ísafirði 30. ágúst 1938. Hann lést á Hospice Sydfyn í Danmörku 16. júní 2013. Skúli var sonur hjónanna Halldórs Fjalldal kaup- manns, f. 1910, d. 1979 og Sigríðar Skúladóttur kaup- konu, f. 1910, d. 2005. Systkini Skúla eru: Jóna Kristín, f. 1943, Oddur, f. 1950, maki Katrín M. Bragadóttir, f. 1949 og Guðrún, f. 1952, maki Héðinn Eyjólfsson, f. 1951. Skúli kvæntist hinn 24. sept- ember 1969 Gerdu Valentin Hansen, f. 2. mars 1946. Synir mörgum trúnaðarstörfum. Hann kynntist eftirlifandi eig- inkonu sinni á námsárunum í Danmörku og bjuggju þau þar alla tíð síðan. Skúli sinnti fé- lagsmálum mikið. Á sínum yngri árum var Skúli m.a. í stjórn Íþróttabandalags Keflavíkur og lék knattspyrnu með félaginu allt upp í meistaraflokk. Þá teiknaði hann m.a. núverandi merki félagsins. Í Danmörku áttu Íslendingafélagið og Nor- ræna félagið hug hans allan og var hann einn af stofnendum Ís- lendingafélagsins í Óðinsvéum. Hann var jafnan mikill Íslend- ingur í sér og áhugasamur um að efla norrænt samstarf á sem flestum sviðum. Skúli hélt alltaf miklum tengslum við fjölskyldu sína, æskustöðvar og uppeldis- félaga sína í Keflavík. Skúli var jarðsunginn frá Paarupkirkju í Óðinsvéum 25. júní 2013. þeirra eru Jón Hall- dór flugvirki, f. 12. ágúst 1969 og Tóm- as Guðmundur sölustjóri, f. 19. jan- úar 1971. Skúli ólst upp í Keflavík þar sem hann fékk hefð- bunda skólagöngu og fór síðar í Sam- vinnuskólann og út- skrifaðist þaðan ár- ið 1955. Síðan hóf Skúli nám í húsasmíði og lauk sveinsprófi árið 1960. Árið 1963 fór Skúli til náms í byggingatæknifræði við Tækniskólann í Óðinsvéum í Danmörku. Eftir að námi lauk starfaði Skúli hjá bæjarfélaginu Vissenbjerg á Fjóni allan sinn starfsferil og gegndi þar fjöl- Hugurinn reikar til baka til ársins 1971. Þá um sumarið hóf- ust kynni mín af Skúla mági mín- um og fjölskyldu hans. Skúli hafði farið ungur til náms í bygginga- tæknifræði í Óðinsvéum í Dan- mörku og þar kynntist hann einn- ig eiginkonu sinni, Gerdu. Eftir að námi lauk komu Skúli og Gerda sér upp fallegu heimili á Heklavej í Óðinsvéum þar sem þau bjuggu alla tíð. Þau eignuðust tvo drengi, Jón og Tómas, sem ég kynntist sem litlum drengjum í þessari fyrstu heimsókn minni. Á þessum tíma vorum við þrjú saman úr fjölskyldunni komin til að vinna sumarlangt í Óðinsvéum og nut- um aðstoðar Skúla og Gerdu sem liðsinntu okkur langt fram yfir öll venjuleg mörk. Ferðirnar á Heklavej urðu margar eftir þetta. Skúli hóf störf hjá sveitarfé- laginu Vissenbjerg eftir nám og starfaði þar allan sinn starfsferil. Hann gegndi þar ýmsum trúnað- arstörfum og margar ferðirnar var farið þangað með vini og ætt- ingja. Hann var mjög stoltur af sínu starfi og naut mikils trausts. 1983 fluttist fjölskylda mín tímabundið til Danmerkur og nut- um við þá aðstoðar Skúla og fjöl- skyldu á margan hátt. Hann var alltaf til staðar ef einhver vanda- mál komu upp. Skúli var einstaklega barngóð- ur og nutu börnin mín þrjú góðs af því. Gleðistundirnar urðu margar og alltaf mikil eftirvænting þegar fjölskyldurnar hittust en það var oft á þessum árum. Skúli var mikill Íslendingur í sér og talaði lýtalausa íslensku þrátt fyrir 50 ára dvöl erlendis. Hann var mjög virkur í starfi bæði í Íslendingafélaginu og Nor- ræna félaginu í Óðinsvéum og lagði oft fram mikla vinnu hvort sem það tengdist ungmenn- astarfi, vinabæjartengslum eða menningu. Hann gegndi einnig mörgum trúnaðarstörfum í þess- um félögum. Síðustu misserin var honum efst í huga glæsileg ný- bygging, Nordatlantisk Hus, í Óð- insvéum, sem verður sameiginleg menningaraðstaða Grænlend- inga, Íslendinga og Færeyinga. Síðasta ferð Skúla áður en hann lést var til að vera viðstaddur „reisugilli“ á þessari byggingu sem var honum mikið hjartans mál. Þá var Skúli einstaklega frændrækinn og duglegur að sækja Ísland heim. Hann lét sig aldrei vanta þegar tímamót voru í heimalandinu hvort sem það voru brúðkaup, fermingar og ekki síst til að hitta gömlu skólafélagana úr Keflavík. Þetta voru miklar ánægjustundir og tilefni til að heimsækja gamla landið og rifja upp endurminningarnar. Ég er þakklát fyrir allar þessar góðu stundir sem við fjölskyldan höfum átt með Skúla, blessuð sé minning hans. Elsku Gerda, Jón og Tómas, guð gefi ykkur styrk í ykkar sorg. Katrín M. Bragadóttir. Mágur minn Skúli H. Fjalldal er látinn, tæplega 75 ára að aldri. Skúli fæddist á Ísafirði en ólst upp í Keflavík og þar voru rætur hans. Skúli lauk prófi frá Sam- vinnuskólanum í Reykjavík og sveinsprófi í húsasmíði frá Iðn- skólanum í Keflavík. Síðan hóf hann nám við Tækniskólann í Óð- insvéum og lauk þaðan prófi sem byggingatæknifræðingur árið 1969. Fljótlega eftir komuna til Danmerkur festi Skúli ráð sitt og stofnaði fjölskyldu. Hann settist að í Óðinsvéum og bjó þar upp frá því eða í um 50 ár. Skúli bjó því um 2/3 hluta ævi sinnar í Dan- mörku. Skúli var stoltur af uppruna sínum og var mikill Íslendingur í sér. Hann fylgdist mjög vel með mönnum og málefnum á Íslandi og var vel heima í þeim málum sem efst voru á baugi hverju sinni. Að sjálfsögðu fylgdist hann einnig vel með dönskum þjóðmál- um og kunni á þeim góð skil. Bár- um við oft saman bækur okkar og ræddum þjóðmálin vítt og breitt og miðluðum upplýsingum okkar á milli eftir bestu getu. Skúli hafði mikinn áhuga á nor- rænu samstarfi og tók virkan þátt í starfsemi Norræna félagsins. Þá var hann hvatamaður að stofnun vinabæjatengsla milli Óðinsvéa og annarra borga og bæja á Norð- urlöndunum. Hann var einn af stofnendum Íslendingafélagsins í Óðinsvéum og var formaður þess í fjöldamörg ár. Ég veit að hann var ávallt boðinn og búinn að að- stoða Íslendinga sem voru að koma til náms eða starfa í Óðins- véum og vísa þeim rétta leið um krókótta vegi kerfisins. Eitt aðaláhugamál Skúla voru íþróttir og þá einkum knatt- spyrna. Á sínum yngri árum æfði hann og keppti í knattspyrnu fyr- ir hönd Íþróttabandalags Kefla- víkur upp alla yngri flokka og einnig með meistaraflokki félags- ins. Hann fylgdist alltaf vel með gengi ÍBK á knattspyrnuvellinum og hafði skoðanir á því sem vel var gert og jafnframt því sem honum fannst að mætti betur fara. Þá fylgdist hann vel með dönsku knattspyrnunni og kunni á henni góð skil. Ekki dró úr áhuga hans þegar Eyjólfur sonur minn fór að leika þar knattspyrnu og áttum við þá margar góðar stundir á vellinum. Undraðist ég þá oft hversu fróður hann var um leik- menn og félögin sem í hlut áttu hverju sinni. Skúli og fjölskylda voru mjög dugleg að koma í heimsóknir til Íslands. Varla var sá viðburður í fjölskyldunni að þau sæju sér ekki fært að koma hingað og samgleðj- ast með ættingjum sínum. Þá hélt hann góðu sambandi við sína gömlu skólafélaga og lagði rækt við þau tengsl. Einnig var gott að sækja þau hjón heim og er þar skemmst að minnast gestrisni þeirra sem við fjölskyldan nutum í tilefni stóraf- mælis míns fyrir tveimur árum. Munum við ætíð minnast þess dags með mikilli hlýju. Kynni okkar Skúla stóðu yfir í rúmlega þrjátíu ár og vil ég þakka honum samfylgdina og þann hlý- hug sem hann bar til fjölskyld- unnar. Að lokum sendum við Guðrún og fjölskylda okkar Gerdu, eigin- konu Skúla, sonum þeirra Jóni og Tómasi okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Héðinn Eyjólfsson. Minningarnar frá heimsóknum okkar systkinanna til Skúla frænda eru margar. Ég man spenninginn þegar við nálguð- umst brúna yfir á Fjón. Ég man hvernig við lékum okkur á tepp- inu í stofunni með spennandi dót sem Skúli frændi dró fram úr bíl- skúrnum og ég man eftir mér að skoða fínu þjóðbúningadúkkurn- ar hennar Gerdu í glerskápnum. Svo setti ég fína hárskrautið mitt í hárið og settist við flotta morg- unverðarhlaðborðið hjá Skúla og Gerdu. Iðulega var íslenski fáninn á miðju borðinu. Jón og Tómas sýndu okkur módelin sem þeir voru að setja saman og svo var alvöru raf- magnslest eins og maður sá ann- ars bara í fínustu leikfangabúð- um. Í garðinum var fullt af villikisum sem Gerda var dugleg að hugsa um og svo fengum við að smakka plómur og jarðarber beint úr garðinum. Það var vakað langt fram eftir kvöldi og mikið hlökkuðum við til að koma aftur í hvert sinn sem haldið var af stað heim til Árósa. Skúli frændi var einstaklega barngóður og þótti af- skaplega vænt um öll systkina- börn sín. Hann sýndi okkur og okkar hugðarefnum alltaf einlæg- an áhuga. Það var Skúla frænda að þakka að á unglingsárunum fékk ég sumarvinnu í Danmörku, þá var gott að koma í heimsókn á Hekla- vej. Núna þegar ég flutti nýverið til Svíþjóðar með fjölskylduna fann maður hvað Skúli frændi var áhugasamur um að hittast og maður var hjartanlega velkominn til Odense í heimsókn hvenær sem var. Við fórum með Odd Hrannar í lestarferð til Skúla frænda og það var gaman að sjá hann una sér við sömu leikföngin í stofunni meðan við sátum við morgunverðarborðið. Svo var smurt nesti og haldið af stað í Le- goland. Það var notaleg tilfinning að sjá Odd Hrannar hjúfra sig í hálsakotið á Skúla frænda og það var ekki talað um annað í lestinni heim en hvenær við myndum koma aftur til Skúla og Gerdu Dagurinn sem við kvöddum þig í Paarup kirkju var erfiður en í senn fallegur, þyturinn í trjánum og fuglasöngurinn sem umkringdi okkur fjölskylduna þegar við höfðum safnast saman við leiðið þitt segir mér að þú sért kominn á góðan stað. Blessuð sé minning góðs frænda. Sigríður Bára Fjalldal. Skúli frændi, föðurbróðir minn, er fallinn frá. Eftir sitja góðar minningar um kærleiks- ríkan, athafnasaman og úrræða- góðan frænda sem ávallt tók mér opnum örmum, sem barni, ung- lingi og fullorðnum manni. Ég er afar þakklátur fyrir all- ar þær góðu stundir sem ég hef átt gegnum tíðina hjá Skúla og Gerdu á Heklavej, ekki síst sem ungur drengur þegar við fjöl- skyldan bjuggum í Árósum. Það var ávallt mikil tilhlökkun hjá okkur systkinunum þegar haldið var í heimsókn til Óðinsvéa. Það var ávísun á höfðinglegar veit- ingar í öll mál, ótakmarkaðan að- gang að leikföngum Jóns og Tómasar og oftar en ekki var Skúli búinn að setja saman sér- stakt prógramm fyrir heimsókn- ina. Þolinmæðin fyrir okkur systkinunum átti sér engin tak- mörk og okkur var ekki neitað um neitt, ef mamma og pabbi sögðu nei, þá var bara best að spyrja Skúla hvort maður mætti ekki fá eina rjómabollu í viðbót. Eftir að við fluttum heim héld- um við góðu sambandi og það var ekki síst fyrir tilstilli Skúla frænda að ég sem 18 ára ung- lingur vann eitt sumar á pósthús- inu í Óðinsvéum. Skúli sá til þess að ég hefði það sem best, fengi íbúð á góðum stað og Heklavej varð mitt annað heimili þetta sumar. Nokkrum árum síðar hélt ég aftur til Danmerkur í há- skólanám og enn og aftur var Skúli önnum kafinn við að finna handa mér húsnæði og aðstoða mig að koma mér fyrir. Þetta voru mín fyrstu ár að heiman og ómetanlegt að eiga Skúla og Gerdu að á þessum tíma. Á Heklavej stóðu mér ávallt opnar dyr og Skúli vildi allt fyrir mig gera. Móttökurnar voru jafn höfðinglegar þegar ég mætti í heimsókn með unga fjölskyldu mína síðustu árin. Mér hlýnaði um hjartaræturnar þegar ég sá Skúla taka á móti Freyju Maríu dóttur minni af sama kærleika og hann tók á móti mér sem litlu barni. Það er erfitt að sætta sig við að Skúli frændi sé farinn, en ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast honum og kærleika hans. Hugur okkar er hjá Gerdu, Jóni og Tómasi á þessum erfiðu tímum. Jóhann Bragi Fjalldal. Skúli H. Fjalldal ✝ Garðar Gísla-son fæddist í Reykjavík 18. nóv- ember 1934. Hann lést á gjörgæslu- deild Landspít- alans 5. júlí 2013. Foreldrar hans voru Kristín Ágústa Ágústs- dóttir, fædd í Narfakoti í Njarð- víkum 7. janúar 1914, d. 27. september 2007 og Gísli Guðnason, fæddur á Stokkseyri 6. janúar 1909, d. 5. júní 1984. Stjúpfaðir, Magn- ús Ögmundsson, fæddur á Syðri Reykjum í Bisk- upstungum 25. maí 1908, d. 3. október 2003. Hálfsystkini Garðars eru Ögmundur, Sig- Kristjánsdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, f. 21. maí 1984. Dætur þeirra eru Saga Garðarsdóttir, f. 25. júní 2009 og Lukka Garðarsdóttir, f. 16. apríl 2013. Garðar ólst upp í Hafn- arfirði hjá móður sinni og stjúpföður. Garðar og Mar- grét bjuggu fyrstu árin á Sel- fossi og síðan í Hafnarfirði. Á yngri árum starfaði Garðar við verslunarstörf og akstur, hann hóf störf hjá lögregl- unni í Hafnarfirði 1. ágúst 1964, lauk Lögregluskólanum 9. maí 1969 og starfaði sem lögreglumaður í Hafnarfirði meðan heilsan leyfði, síðar sem stefnuvottur hjá Sýslu- manninum í Hafnarfirði. Garðar söng með Lög- reglukórnum, Karlakórnum Þröstum og Gaflarakórnum. Útför Garðars fór fram í kyrrþey 11. júlí 2013. urður og Hjalti Magnússynir, Magnús Gíslason og Vilborg Gísla- dóttir. Garðar kvænt- ist 13. maí 1956 Margréti Bjarna- dóttur, f. í Hauga- koti í Flóa 6. júní 1935. Dóttir þeirra er Kristín Þóra Garð- arsdóttir, leikskólakennari, f. 31. maí 1957, eiginmaður hennar er Eyjólfur Valgarðs- son, byggingatæknifræðingur, f. 28. ágúst 1957. Sonur þeirra er Garðar Eyjólfsson, lektor við Listaháskóla Ís- lands, f. 4. nóvember 1981, eiginkona hans er Eva Dögg Elsku afi. Það var orðið langt síðan ég sá þig hressan síðast. Eftir löng og erfið veikindi er gott að geta loksins hvílt sig. Sterkustu minninguna á ég af okkur saman í bíl. Þú varst þekktur útilegu- kall og hefur sennilega ferðast meira eða minna um allt landið. Þér þótti mjög gaman að keyra og varst mjög duglegur við að skutla mér hingað og þangað. Ein af mínum fyrstu minningum sem ég á af okkur er þegar þú náðir í mig í grunnskólann eftir ys og þys dagsins og skutlaðir mér heim til ykkar ömmu á Álfa- skeiðið. Þar beið mín oft nýbök- uð súkkulaðikaka og mjólkur- glas. Eftir því sem ég eltist skutlaðir þú mér oft. Minningin um skutlið situr eftir vegna þess að það var eini tíminn sem ég man eftir okkur bara tveimur saman, róandi stund milli staða og stríða. Þó að það hafi verið lít- ið um munnleg samskipti þá hafðir þú góða og róandi nær- veru. Þú passaðir vel upp á þína nánustu og ég fann alltaf á hlýju brosi þínu þegar ég hitti þig hversu vænt þér þótti um mig, nafna þinn. Þakka þér fyrir alla umhyggjuna og aðstoðina sem þú gafst mér og takk fyrir tím- ann sem við áttum saman. Hvíldu í friði. Garðar Eyjólfsson (litli Gæi). Það eru komin næstum 50 ár frá því leiðir okkar hjónanna og Gæa, Möggu og Kristínar dóttur þeirra lágu fyrst saman á fögr- um sumardegi á ferð okkar aust- ur í Grímsnesi. Við vorum unglingar, nýbyrj- aðir að vera saman, en þau ráð- sett hjón, 12 árum eldri en við, með unga dóttur. Við Gæi höfðum þó verið sam- herjar í Hjálparsveit skáta Hafnarfirði, þar sem hann var lengi í stjórn og um tíma sveit- arforingi. Það kom fljótt í ljós að við áttum mörg sameiginleg áhugamál, ekki síst ferðalög á jeppunum okkar um hálendið. Upp frá þessum samfundum okkar, fórum við eitthvert sam- an flestar helgar yfir sumartím- ann. Oft var farið með fleiri ferðafélögum og voru þetta allt- af mjög skemmtilegar fjölskyl- duútilegur. Eftir að synir okkar komu til sögunnar þótti þetta ómissandi þáttur í tilverunni. Gæi var alltaf traustur ferða- félagi, hress og skemmtilegur, og ekki spillti það fyrir þegar hann tók lagið og stýrði fjölda- söng með sinni einstaklega tæru og fallegu tenórrödd, við gítar- undirleik Kristínar. Oft var farið af stað í ferðir okkar, þó ekki væri vitað hvert halda skyldi, en mjög oft end- uðum við í Þórsmörk, því að í þá daga var svo oft blátt gat í skýj- unum yfir Mörkinni. Þessar ferðir eru okkur hjónunum og strákunum okkar ógleymanleg- ar. Gæi og Magga voru þeim alltaf mjög umhyggjusöm og sinntu þeim sem bestu afi og amma. Seinna komu svo til sameig- inlegar utanlandsferðir. Tjald- og hótelferðir um Evrópu á bíla- leigubílum og svo sólarlanda- ferðir. Árið 2006 fórum við svo saman til Kúbu, þar sem við dvöldum á nokkrum stöðum og fórum í hringferð um eyjuna í rútu og á palli tíu hjóla hert- rukks inn á óbyggð fjallasvæði. Ekki er hægt að hugsa sér betri ferðafélaga en Gæa í þess- um ferðum, alltaf jafn hress og skemmtilegur og skipti aldrei skapi. Við Gæi vorum samstarfs- menn í lögreglunni í Hafnarfirði á árunum 1972 til 1980, lengst af á sömu vakt. Þar var hann bæði aðstoðarvarðstjóri og varð- stjóri. Það var mjög ánægjulegt samstarf og var vaktin okkar, D-vaktin, annáluð fyrir góðan starfsanda. Árið 1989 byggðu Gæi og Magga sumarbústað, Garðars- hólma, í landi Syðri-Reykja í Biskupstungum og dvöldu þar mikið upp frá því. Þar áttum við hjónin með þeim margar skemmtilegar stundir og nutum gestrisni þeirra. Þær voru margar steikurnar sem Gæi grillaði þar ofan í gesti sína. Eftir að við eignuðumst svo sumarbústaðinn okkar í Skorra- dal, var það föst og ómissandi hefð að Gæi og Magga dveldu hjá okkur um verslunarmanna- helgina, og naut Gæi sín þá vel með góðum söngmönnum þegar lagið var tekið á brennufagnað- inum. Við og fjölskylda okkar mun- um sakna Gæa mikið, og munum minnast hans sem okkar besta vinar frá okkar fyrstu kynnum. Elsku Magga, Kristín, Eyj- ólfur, Garðar, Eva, Saga og Lukka. Megi guð gefa ykkur styrk í ykkar sorg og söknuði. Svanhildur (Didda) og Þorvaldur (Valdi). Garðar Gíslason Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Neðst á for- síðu mbl.is má finna upplýsingar um innsendingarmáta og skila- frest. Einnig má smella á Morg- unblaðslógóið efst í hægra horn- inu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skila- frests. Lengd | Hámarkslengd minn- ingargreina er 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 lín- ur. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram. Þar mega einn- ig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.