Morgunblaðið - 12.07.2013, Page 34

Morgunblaðið - 12.07.2013, Page 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2013 Ég er að vinna um daginn en eftir það ætla ég með mömmu ogvinkonum mínum í þarabað,“ segir Olga Þórunn Gúst-afsdóttir, sem er 22 ára í dag. Olga Þórunn er sveitastelpa frá Reykhólum, en þar er boðið upp á hin svokölluðu þaraböð. „Þetta felst í því að fara í heitan pott fylltan af þaramjöli, sem gerir húðina silki- mjúka. Eftir á ætlum við út að borða.“ Olga Þórunn segist vera mikið afmælisbarn. „Ég á reyndar afmæli á mjög leiðinlegum tíma, það eru allir í útlöndum eða að vinna, en það er samt gaman að halda upp á það. Svo finnst mér ekkert síðra að halda upp á afmæli annarra!“ Olga Þórunn er víðförul þrátt fyrir ungan aldur. „Í fyrra fór ég í þriggja mánaða bakpokaferðalag um Suður-Ameríku með vinkonu minni. Svo bjó ég í Austurríki í hálft ár og hélt upp á afmælið mitt þar í fyrra. Það var svolítið skrýtið að eiga afmæli þar, en þar sem ég var au-pair bjó ég hjá fjölskyldu og fékk köku og pakka.“ Olga Þórunn stefnir á nám við Háskólann á Akureyri í haust. „Ég hef unnið á hjúkrunarheimili frá því ég lauk tíunda bekk. Það er bæði krefjandi og gefandi og ég held að það vanti fleira starfsfólk í heil- brigðisgeirann, svo hjúkrunarfræðin varð fyrir valinu.“ Í sumar er hún á fullu við að safna fyrir náminu og vinnur því á þremur stöðum. „Það er nóg að gera hjá mér í sumar, en ég læt það ekki á mig fá.“ hhjorvar@mbl.is Olga Þórunn Gústafsdóttir er 22 ára í dag Ljósmynd/Olga Þórunn Gústafsdóttir Í Kólumbíu Hér er Olga Þórunn ásamt Heklu Karen Steinarsdóttur í bænum Cali í Kólumbíu, en þær ferðuðust saman um Suður-Ameríku. Skellir sér í þara- bað í tilefni dagsins Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Hafdís Hann- esdóttir, Laufrima 4, Reykjavík, fagnar 70 ára afmæli sínu í dag, 12. júlí. Hún verður heima á af- mælisdaginn. Árnað heilla 70 ára Reykjavík Guðmundur Gísli Þór- arinsson fæddist 1. október kl. 12.37. Hann vó 3.120 g og var 47 cm langur. Foreldrar hans eru Karen Dagmar Guðmundsdóttir og Þórarinn Gíslason. Nýir borgarar Hafnarfjörður Mikael Máni Dani- elsson fæddist 7. nóvember kl. 4. Hann vó 3.625 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Eva Karen Ómarsdóttir og Daniel Viðarsson. E rlendur Guðmundsson fæddist í Hafnarfirði þann 12. júlí 1943. Hann missti móður sína tveggja ára og ólst hann upp ásamt Kristínu systur sinni hjá föður þeirra og Valgerði systur hans og manni hennar Jóel Ingvarssyni. Hann lauk gagnfræða- prófi 1960 frá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði. Atvinnuflugmaður 19 ára Erlendur hóf nám í loftsiglinga- fræði og flugi þegar hann var að- eins 17 ára gamall. Þegar hann var 19 ára lauk hann atvinnuflugmanns- prófi og hélt þá til Beirút í Líbanon í atvinnuleit, ásamt vini sínum Birgi Erni Jónssyni. Þeir fengu vinnu hjá Matvæla- og landbúnaðardeild Sameinuðu þjóðanna við leitarflug að klakstöðvum engisprettna í eyði- Erlendur Guðmundsson, fyrrverandi flugstjóri – 70 ára Flugáhöfn Erlendur í áætlunarflugi Air Niugini frá Papúa Nýju-Gíneu til Sydney í Ástralíu skömmu fyrir starfslok. Hlaut viðurkenningu fyrir hjálparflug Ingunn og Erlendur Í skemmtisiglingu um Miðjarðarhafið árið 2011. „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgun- blaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæð- ingum eða öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Skipholt 17 - 105 Reykjavík Sími 588 4699 Fax 588 4696 www.oba.is oba@oba.is olivetti Olivetti fjölnotatæki Olivetti fjölnotatækjum seldum í júlí fylgir Olivetti 10” spjaldtölva Þjónusta til frambúðar..... Olivetti fjölnotatæki: d-color MF2001 c-copia 1800MF MF2603plus MF2604en Gildir um upptalin tæki og meðan birgðir endast d-colo d-colo r r TILBO Ð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.