Morgunblaðið - 12.07.2013, Page 35
merkum Austur-Afríku og Mið-
Austurlöndum. Því verkefni lauk ári
síðar. Eftir það fékk Erlendur starf
hjá olíufélagi við birgðaflug til olíu-
leitarstöðva í Arabíu. Hann hóf
starf hjá Loftleiðum og síðar Ice-
landair árið 1965, fyrst sem sigl-
ingafræðingur í eitt ár og síðar sem
flugmaður og flugstjóri til starfs-
loka í júlí 2008. Erlendur starfaði
einnig sem flugmaður í verkefnum
hjá ýmsum félögum í Afríku, Asíu,
Suður-Ameríku og Evrópu.
Hann hlaut viðurkenningu frá Al-
þjóða Rauða krossinum fyrir hjálp-
arflug í Bíafrastríðinu í Nígeríu
árið1969.
Erlendur hefur átt sæti í stjórn-
um ýmissa félaga. Hann stóð fyrir
bóklegum og verklegum nám-
skeiðum fyrir unga atvinnu-
flugmenn til að öðlast réttindi á
stærri flugvélar. Jafnhliða fluginu
hefur hann unnið við blaða- og
bæklingaútgáfu í 35 ár og hefur
m.a. gefið út ferðabæklinginn Ice-
land Information Guide síðastliðin
29 ár.
Erlendur er meðlimur í Rotary
og Lions. Nú er hann hættur að
halda um flugvélastýri , en und-
anfarin átta ár hefur hann notið
þess að stýra skemmtibát hérlendis
og í Króatíu en þar dvelur hann í
dag á 70 ára afmælisdaginn ásamt
eiginkonu sinni.
Fjölskylda
Erlendur er kvæntur Ingunni
Ernu Stefánsdóttur, f. 5.8. 1947
leirlistakonu. Foreldrar hennar
voru Stefán Agnar Hjartarson, f.
12.5.1909, d. 28.2.1953, og Sólveig
Böðvarsdóttir, f. 27.6. 1908, d. 9.10.
1988 Þau voru bændur, bæði ættuð
úr Laxárdal í Dalasýslu.
Fyrri kona Erlendar var Kristín
Katrín Gunnlaugsdóttir, f. 24.6.
1945, d. 28.2. 1999 ,flugfreyja. For-
eldrar hennar voru Gunnlaugur
Pétursson f. 2.2. 1913, d. 29.6. 1987,
fyrrv. borgarritari, og Kristín Vil-
helmsdóttir Bernhöft, f. 11.8. 1912,
d. 17.1. 2009.
Börn Erlendar og Kristínar eru
Kristín Vala, f. 3.6. 1970, flugfreyja
hjá Icelandair, BA í mannfræði og
fjölmiðlafræði. Maður hennar er
Karl Thoroddsen, f. 16.5. 1969, tölv-
unarfræðingur. Börn: Kristín Ósk
og Gunnar Karl; Guðmundur Krist-
inn, f. 13.8. 1975, flugstjóri hjá Ice-
landair og er trúlofaður Þóru
Hrönn Þorgeirsdóttur, f. 9.8. 1978,
hjúkrunarfræðingi og BA í sálfræði.
Börn: Arnór Ýmir, Kristófer Vík-
ingur, Nanna Katrín Lukka og Úlf-
ur; Gunnlaugur Pétur, f. 13.8. 1975,
lögfræðingur í London og trúlof-
aður Carsten Duvander, f. 2.6. 1973,
hönnuði.
Börn Ingunnar Ernu og fyrri
maka, Þorgeirs Loga Árnasonar, f.
17.4. 1946, d. 5.4. 1997, eru Halla
Sólveig, f. 12.2. 1970, teiknari. Mað-
ur hennar er Björn Ólafur Gunn-
arsson, f. 12.2. 1970, gítarkennari.
Börn: Sólveig Blær, Unnur Elísabet
og Þorgeir Logi; Stefán Árni, f.
12.2. 1970, leikstjóri. Kona hans er
Tristan Gribbin, f. 15.8. 1967, leik-
kona. Börn: Tara Njála, Melkorka
Milla og Leela Lynn; Auður Rán, f.
30.7. 1977, framkvæmdastjóri
Listahátíðar í Reykjavík. Maður
hennar er Hermann Karlsson, f.
31.12. 1973, hreyfimyndahönnuður.
Börn: Ingunn Brynja og Styrkár.
Systkini Erlendar eru Kristín, f.
19.1. 1942, lífeindafræðingur, búsett
í Hafnarfirði, ekkja Bjarna Þórð-
arsonar tryggingastærðfræðings, f.
1936, d. 2012; Bára hálfsystir sam-
feðra, f. 1936, d. 1989. Uppeldis-
systkini Erlendar, börn Valgerðar
og Jóels, eru Gróa, búsett í Garða-
bæ, og látin eru Geir, Friðrik og
Ingibjörg .
Foreldrar Erlendar eru Þórdís
Guðjónsdóttir, fædd á Syðra-Lóni á
Langanesi 24.8. 1910, d. 5.11. 1944,
og Guðmundur Kristinn Erlends-
son, fæddur í Bakkakoti á Seltjarn-
arnesi 30.9. 1901, d. 6.5. 1966. Guð-
mundur var vélstjóri og þau bjuggu
í Hafnarfirði.
Fósturforeldrar Erlendar voru
Valgerður Erlendsdóttir, f. 17.9.
1894, d. 8.4. 1986 og Jóel Ingvars-
son, f. 3.11. 1889, d. 9.6. 1975, skó-
smiður og meðhjálpari í
Hafnarfjarðarkirkju.
Úr frændgarði Erlendar Guðmundssonar
Erlendur
Guðmundsson
Steinunn Sigurðardóttir
húsfreyja á Bægisstöðum
Jón Benjamínsson
b. á Bægisstöðum í Þistilfirði
Kristín Salína Jónsdóttir
húsfreyja á Jaðri
Guðjón Þórðarson
b. á Jaðri á Langanesi
Þórdís Guðjónsdóttir
húsfreyja í Hafnarfirði
Vigdís Vigfúsdóttir
húsfreyja á Hólum
Þórður Þórðarson
b. á Hólum í Haukadal
Valgerður Eiríksdóttir
húsfreyja í Önundarholti
Bjarni Guðmundsson
b. í Önundarholti í Flóa
Gróa Bjarnadóttir
húsfreyja í Hafnarfirði
Erlendur Jónsson
sjómaður í Hafnarfirði
Guðmundur Erlendsson
vélstjóri í Hafnarfirði
Sigríður Erlendsdóttir
húsfreyja á Hóli
Jón Guðmundsson
bóndi á Hóli í Garðasókn
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2013
Jón Guðnason, sóknarprestur ogskjalavörður, fæddist áÓspaksstöðum í Hrútafirði
12.7. 1889. Foreldrar hans voru Guðni
Einarsson, bóndi og verslunarmaður
þar Einarssonar bónda á Valda-
steinsstöðum í Hrútafirði Guðnason-
ar, og kona hans, Guðrún Jónsdóttir
bónda í Hvítuhlíð í Broddaneshr.,
Strand., Jónssonar.
Kona Jóns var Guðlaug Bjartmars-
dóttir, f. 17.2. 1889, d. 17.7. 1977. For-
eldrar hennar voru Bjartmar Krist-
jánsson og kona hans, Ingibjörg
Guðmundsdóttur.
Jón varð stúdent frá MR 1912 og
tók guðfræðipróf frá HÍ 1915. Hann
kenndi við Flensborgarskóla í Hafn-
arfirði febr.-apríl 1916. Var prestur í
Staðarhólsprestakalli í Dalasýslu
1916-1918, á Kvennabrekku í Mið-
dölum 1918-1928 og á Prestsbakka í
Hrútafirði 1928-1948. Hann var
skólastjóri Héraðsskólans á Reykjum
í Hrútafirði 1930-1932, kennari við
hann 1934-1940 og 1944-1948, en
skólinn var hernuminn 1940-1943.
Varð svo kjalavörður í Þjóðskjala-
safni 1948-1959. Jón var alþingis-
maður Framsóknarflokksins í Dala-
sýslu 1926-1927.
Jón var fróðleiksgjarn og lang-
minnugur, og í öllum störfum hans
koma þeir eiginleikar að góðu haldi.
Hann lagði snemma hug á þjóðlegan
fróðleik, mannfræði og ættfræði, og
áhugi hans í þeim efnum var ríkur
þáttur í þeirri ákvörðun hans að láta
af prestskap og kennslustörfum og
taka við starfi í Þjóðskjalasafninu í
Reykjavík. Jafnframt mikilli skyldu-
vinnu í þágu safnsins afkastaði hann í
tómstundum sínum geysimiklu fræði-
starfi. Frá hans hendi komu út safnrit
með æviskrám margra merkra Ís-
lendinga, bæði lífs og liðinna.
Eitt veigamesta rit Jóns var
Strandamenn, æviskrár 1703-1953,
Er ritið hátt á sjöunda hundrað síðna,
myndum prýtt, og hefur einkum að
geyma æviskrár bænda í Stranda-
sýslu á nefndu tímabili, en einnig eru
þar fjölmargar æviskrár Stranda-
manna utan héraðs, bæði hér á landi
og Vesturheimi.
Jón Guðnason lést í Reykjavík
11.5. 1975.
Merkir Íslendingar
Jón
Guðnason
90 ára
Óskar Einarsson
Valgerður Aðalsteinsdóttir
85 ára
Ása Haraldsdóttir
Guðmundur Óskar
Guðmundsson
Hildur Anna Björnsson
Ingibjörg Sigurðardóttir
80 ára
Ástvald Valdimarsson
Bergur H. Vilhjálmsson
Bjarni Abokhai Akbashev
Edda Björnsdóttir
Inga Þórey Sigurðardóttir
Sverrir Hinrik Jónsson
75 ára
Erla Hafrún Guðjónsdóttir
Halldór Þorsteinsson
Maja Sigurgeirsdóttir
70 ára
Björgvin Bæringsson
Edda Sigríður
Hermannsdóttir
Erlendur Guðmundsson
Grétar Már Garðarsson
Guðríður Þórðardóttir
Hafdís Hannesdóttir
Ingibjörg Sigurðardóttir
Pétur Oddsson
Rósa Jónsdóttir
Þórarinn Magnússon
60 ára
Egill Jón Kristjánsson
Elínborg Pétursdóttir
Halina Anna Stefansdóttir
Hrafnhildur Hlöðversdóttir
Jón Guðmundsson
Katrín Freysdóttir
Margrét Jónasdóttir
Stefán Jóhann Baldvinsson
Sveinsína Erla
Jakobsdóttir
50 ára
Beata Mielczarek
Bjarni Jón Jónsson
Björk Hreinsdóttir
Gíslína Guðrún
Hinriksdóttir
Guðbjörn Ármannsson
Helgi Jónsson
Jón Þorvarður Ólafsson
40 ára
Benjamín Þór Þorgrímsson
Ewa Pekala
Gunnhildur Brynjólfsdóttir
Iwona Zelaznicka
Jens Kristbjörnsson
Kristinn Hjálmarsson
Ólafur Freyr Halldórsson
Steinþór Stefánsson
Sævar Sigurðsson
Torfi Arason
Visare Banushi
30 ára
Atli Davíð Smárason
Erlendur Már Antonsson
Gísli Sigurðsson
Gunnar Örn Sigurðsson
Katrín Marsí Aradóttir
Krishna Gurung
Pedro A. P. dos Santos
Marques
Ragna Jónsdóttir
Rita De Cassia Ramos
Eloy
Sigurlín Gústafsdóttir
Sóldís Lilja
Benjamínsdóttir
Stefanny J. Echevarria
Rojas
Sverrir Fannar Einarsson
Viðar Þórðarson
Þórdís Óladóttir
Til hamingju með daginn
60 ára Katrín er fædd og
uppalin á Húsavík en býr í
Vestmannaeyjum og er
læknaritari þar.
Maki: Einar Friðþjófsson,
f. 1950, framhaldsskóla-
kennari.
Börn: Jórunn, f. 1975,
Hjalti, f. 1982, og Rúnar, f.
1987.
Foreldrar: Hallmar Freyr
Bjarnason, f. 1931, d.
1987, múraram. á Húsa-
vík, og Guðrún Ingólfs-
dóttir, f. 1932, d. 2008.
Katrín
Freysdóttir
40 ára Kristinn er Skag-
firðingur og stjórnunar-
ráðgjafi, bús. í Garðabæ.
Maki: Jóna Rósa Stef-
ánsdóttir, f. 1975, leik-
skólakennari á Sunnu-
hvoli.
Börn: Bryndís Hrönn, f.
1994, og Stefán Bjarni, f.
2008.
Foreldrar: Hjálmar Jóns-
son, f. 1950, Dóm-
kirkjuprestur, og Signý
Bjarnadóttir, f. 1949, líf-
fræðingur á Keldum.
Kristinn
Hjálmarsson
50 ára Helgi er uppalinn
við Sogsvirkjanir en býr á
Selfossi og starfar sem
bílstjóri og vélamaður.
Maki: Sigurlaug Gréta
Skaftadóttir, f. 1968, vinn-
ur við ræstingar í FSU.
Börn: Ágústa Íris, f. 1988,
Eyþór, f. 1992, og Óskar
Ingi, f. 2005.
Foreldrar: Jón Þorvarð-
arson, f. 1924, d. 1998,
bílstjóri, og Vilborg Jóna
Guðmundsdóttir, f. 1927,
d. 1993.
Helgi
Jónsson