Morgunblaðið - 12.07.2013, Side 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2013
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Listamaðurinn Ummi Guðjónsson
var að senda frá sér nýja breiðskífu
sem ber nafnið Stundum er minna
meira. „Þetta er önnur platan sem
ég gef út með mínu eigin efni og ég
valdi lög til upptöku á plötuna með
það fyrir augum að loka því sem ég
byrjaði á með fyrstu sólóplötunni
minni en á sama tíma að fara í átt
að næstu plötu sem ég er með í
vinnslu um þessar mundir,“ segir
Ummi sem var alls ekki ákveðinn í
því að gefa út sitt eigið efni sjálfur.
„Þegar ég tók ákvörðunina að gefa
út mitt eigið efni var spurning hvort
ég léti öðrum tónlistarmönnum það
í hendur eða myndi gefa út lögin
mín sjálfur. Margt fólk í kringum
mig hvatti mig til að gefa út mitt
eigið efni og nú eru komnar tvær
plötur.“
Eftir að fyrsta plata Umma kom
út árið 2010 vildi hann halda áfram
að gefa út sína eigin tónlist enda
ferlið skemmtilegt og gefur honum
betra tækifæri til að þróa tónlistina
sína betur. „Mér varð það ljóst þeg-
ar ég var að leggja lokahönd á út-
gáfu á fyrstu sólóplötunni að ég
vildi halda áfram að gefa út eitthvað
af þeim lögum og textum sem ég er
búinn að vera að safna upp á undan-
förnum árum og liggja óhreyfðir of-
an í skúffu,“ segir Ummi en hann
segir ekki síður mikilvægt og dríf-
andi að hafa fengið tækifæri til að
vinna með fjöldanum öllum af góðu
og hæfileikaríku fólki við útgáfurn-
ar á plötunum sínum. „Það koma
fjölmargir listamenn að svona út-
gáfu og ég vann með góðu fólki á Ís-
landi, í Færeyjum, Danmörku og á
Englandi við gerð nýju plötunnar.“
Mikið lagt í útgáfuna
Nýja breiðskífan er vegleg líkt og
sú fyrri og ljóst að vandað er að allri
uppsetningu. Mikið er lagt upp úr
því að gera alla umgjörð utan um
plötuna sem besta og snyrtilegasta.
Sjálfur segir Ummi það skipta hann
miklu máli að umgjörðin sé góð.
„Ég er ekki að spila mikið á Íslandi
og vil vekja athygli á mér með því
að vanda vel til verks og hafa alla
umgjörð og hönnun í kringum tón-
listina sem besta.“
Ákvörðunina að gefa báðar plöt-
urnar út á vínyl segir Ummi hugs-
anlega mega rekja til einhverrar
fortíðarhyggju í bland við betri upp-
lifun af tónlistinni. „Mig dreymdi
alltaf um það þegar ég var yngri að
gefa út tónlist á vínyl og þess vegna
er þetta mögulega einhver fortíð-
arhyggja í mér. Ég get hins vegar
ekki neitað því að mér finnst tónlist
vera betri á vínyl og í þau fáu skipti
sem ég hlusta á mína eigin tónlist
finnst mér best að setja plötuna á
fóninn og tengja heyrnartólin við.“
Útgáfa á vínyl hefur aukist tölu-
vert á undanförnum árum og segir
Ummi þá þróun vera af hinu góða.
Neytendur hafi því val í dag um það
á hvaða formi þeir njóta tónlistar-
innar.
Tónlist í anda Bob Dylan
Áhrif frá bæði Dylan og jafnvel
Megasi leyna sér ekki á plötum
Umma enda segist hann vera for-
fallinn Dylan-aðdáandi og ekki
finnst honum Megas síðri tónlist-
armaður. „Ég er pínulítið fastur í
sjötta og sjöunda áratugnum með
Dylan og legg mikið upp úr því að
gera góða texta og mér finnst það
skipta máli að þeir séu á íslensku,“
segir Ummi en textagerðin er hans
tenging við Ísland þar sem hann
hefur starfað við tæknibrellugerð í
London síðastliðin 10 ár og hefur
m.a. unnið við kvikmyndir á borð
við Avatar og Harry Potter svo eitt-
hvað sé nefnt.
Næsta skref í tónlist Umma er að
hans sögn að færa sig meira inn á
að nota rafmagnsgítarinn og sjá til
hvert það leiðir hann í tónlistinni.
Fjölskyldumaður númer eitt
Þrátt fyrir að hafa gefið út tvær
plötur á skömmum tíma og notið
töluverðrar velgengni með texta og
tónlist í Sólstrandagæjunum með
Jónasi Sigurðssyni á árum áður seg-
ist Ummi ekki ætla að fara á fullt út
í tónlistina aftur um sinn. „Ég er
kominn með fjölskyldu og vil fyrst
og fremst hugsa um fjölskyldulífið
og gefa börnunum þá athygli og
tíma sem þau þurfa. Ég vil ekki
vera að fara mikið frá þeim til að
spila á einstaka viðburðum vítt og
breitt um landið.“
Ummi útilokar það ekki að hann
muni einhvern tímann koma af full-
um þunga inn í tónlistarlífið á Ís-
landi aftur en þangað til ætlar hann
að nýta það efni sem hann á í skúff-
unni sinni og það sem hann semur
af og til og gefa út plötur við tæki-
færi.
Tónlistarmaðurinn Ummi Guðjónsson hefur starfað við gerð tæknibrellna í London í tíu ár. Tónlistin er þó aldrei langt undan og núna hefur hann gefið út tvær plötur frá árinu 2010.
Sækir innblástur í Dylan og Megas
Ummi Guðjónsson gefur út sína aðra
breiðskífu, Stundum er minna meira
Færir sig yfir á rafmagnsgítarinn
Morgunblaðið/Rósa Braga
Vínyll Báðar breiðskífur Umma hafa komið út á vínyl en hann segir upplif-
unina af tónlistinni vera betri á því formi en öðrum.