Morgunblaðið - 12.07.2013, Page 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2013
Guðrið Hansdóttir hef ég oftséð syngja en aldrei tónlistá við þá sem hún flytur meðJanus Rasmussen, félaga
sínum í tvíeykinu Byrtu sem sendi frá
sér fyrstu breiðskífuna á dögunum.
Platan sú, sem hefur
nafn sitt af verkefn-
inu, geymir rafeinda-
popp, sveimkennt og
lagrænt, en hingað
til hefur Guðrið hald-
ið sig við þjóðlaga-
kennda tónlist, dáldið rokkaða á köfl-
um, eins og Íslendingar hafa oft fengið
að kynnast á tónleikum sem hún hefur
haldið hér á landi.
Janus Rasmussen hefur einnig
leikið á tónleikum hér á landi, ótelj-
andi tónleikum reyndar því hann er
meðal liðsmanna þeirrar ágætu
hljómsveitar Bloodgroup. Verka-
skipting í Byrtu er þannig að Guðrið
semur lög og texta, en Janus stýrir
upptökum og útsetningum. Útsetn-
ingar hjá honum eru vel heppnaðar,
það heyrist strax á fyrsta lagi plöt-
unnar, Eydnan, eilítið gamaldags
hljóðaheimur en mjög smekklega út-
færður. Það er aðal útsetninganna að
laglínur fá að njóta sín, takturinn er
til staðar, en ekki yfirþyrmandi.
Annað eftirminnilegt lag er titillag
skífunnar þar sem stuðst er við eina
endurtekna textalínu, „Veruleikinn
er beiskur biti at svølgja“, þar sem
beyglaðar og skældar raddir eru
fléttaðar saman við talgrunninn með
frábærum áragri. Einnig er rétt að
nefna lokalag skífunnar, Frosin, sem
er „venjulegasta“ lagið, fínt popplag
og einkar vel flutt. Fleiri fín lög eru á
plötunni og kemur ekki á óvart að
henni hafi verið vel tekið í Færeyjum
að því mínar heimildir herma. Guðrið
er frábær söngkona og fínn lagasmið-
ur og Janus smekkvís og hug-
myndaríkur útsetjari. Þessi plata
þeirra er sannkallað fyrirtak og fær
hér bestu meðmæli.
Byrta Tvíeykið Janus Rasmussen og Guðrið Hansdóttir.
Sannkallað fyrirtak
Byrta - Byrta bbbbm
Breiðskífa þeirra Guðrið Hansdóttur og
Janus Rasmussen undir nafninu Byrta.
Tuttl gefur út 2013.
ÁRNI
MATTHÍASSON
TÓNLIST
Ljósmynd/Sigríður Ella Frímannsdóttir
Rafpopp
Hvað sem hver segir þá er veröldin
vond. Engum er treystandi, ekki
einu sinni ástvinum. Fólk notar
hvert tækifæri til þess að svíkja
aðra, koma illa fram við sína nán-
ustu. Vinskapur er byggður á sandi.
Þetta er helsta inntak bókarinnar
Rósablaðastrandarinnar eftir Do-
rothy Koomson. „Hörkuspennandi
saga um myrkari hliðar mannlífs-
ins, ólgandi tilfinningar og sára
reynslu,“ eins og segir á bókar-
kápu.
Sögusviðið er fyrst og fremst
enska borgin Brighton, en sagan
gæti þess vegna gerst í hvaða borg
sem er. Uppbyggingin minnir að
sumu leyti á dagbækur, þar sem
frásögnum vinkvenna í nútíð og þá-
tíð er raðað saman. Þær lifa í sama
umhverfi en hafa misjafna sýn á líf-
ið, nánasta umhverfið. Kynþátta-
misréttið. Þrátt fyrir vinskapinn er
traustið ekki algjört. Sumt er ósagt.
Öðru haldið leyndu. Breitt yfir
óþægindin. Rósablaðaströndin er
vandamálasaga sem endar með
skelfingu. Dæmigerð saga fólks í
nútímaborg. Helstu persónur eru
kunnugar. Maður lítur ósjálfrátt í
kringum sig við lesturinn. Þau eru
einmitt svona. Ekkert að marka
hvað þau segja. Þannig hittir hún í
mark. Snertir lesandann. Hún er
líka vel skrifuð, sagan sögð út frá
hverri persónu. Það er vandlifað í
þessum heimi. Það sem einum
finnst saklaust gaman fellur í grýtt-
an jarðveg hjá öðrum. Blekking
getur aldrei verið af hinu góða og
það getur ekki endað vel að lifa í
stöðugu óöryggi og yfirhylmingu.
Sagan Rósablaðaströndin sýnir
að þó allt virðist vera slétt og fellt á
yfirborðinu kraumar víða og
ástandið getur endað með ósköpum.
Ágætis áminning.
Svik Dorothy Koomson skrifar vandamálasögu sem endar með skelfingu.
Skáldsaga
Rósablaðaströndin bbbbn
Eftir Dorothy Koomson. Halla Sverris-
dóttir þýddi. Kilja, 621 bls. JPV útgáfa
2013.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Kærleikurinn og
skuggahliðarnar
KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM
Á TOPPNUM Í ÁR
KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Á
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
WORLDWARZ3D KL.5:30-8-10:30
WORLDWARZVIP KL.5:30-8-10:30
THELONERANGER KL.5-6-8-10:10-11
MANOFSTEEL3D KL.5-8-11
MANOFSTEEL2D KL.11
THEBIGWEDDING KL.9
HANGOVER-PART3 KL.8
SAMMY2 ÍSLTAL2D KL.6 TILBOÐ400KR.
KRINGLUNNI
WORLD WAR Z 2D KL. 5:30 - 9 - 10:30
THE LONE RANGER KL. 5 - 10
THE BIG WEDDING KL. 6 - 8 - 10:30
NOW YOU SEE ME KL. 8
WORLD WAR Z 3D KL. 5:30 - 8 - 10:30
THE LONE RANGER KL. 5 - 7 - 10
MAN OF STEEL 2D KL. 7 - 10
PAIN & GAIN KL. 10
THE BIG WEDDING KL. 5 - 8
NÚMERUÐ SÆTI
KEFLAVÍK
WORLDWARZ3D KL.5:30-8-10:30
THELONERANGER KL.5
THEHEAT KL.8-10:30
AKUREYRI
WORLD WAR Z 3D KL. 5:30 - 8 - 10:30
THE LONE RANGER KL. 8 - 11
MAN OF STEEL 2D KL. 5
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
SPECTACULAR
EMPIRE
GLÆSILEG
OFURHETJUMYND
H.S.S. - MBL
Missið ekki af þessari
stórkostlegu teiknimynd
frá höfundum Ice Age
16
16
16
EKKERT EYÐILEGGUR GOTT PARTÝ
EINS OG HEIMSENDIR!
FRÁ HÖFUNDUM SUPERBAD91/100
„It‘s scary good fun“
Entertainment Weekly
88/100
„It‘s entertaining as hell.“
Chicago Sun-Times
-bara lúxus sími 553 2075
www.laugarasbio.is
BYGGT Á SANNSÖGULEGUM ATBURÐUM
UM LEIGUMORÐINGJANN RICHARD KUKLINSKI Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
L
12
WORLD WAR Z 3D Sýnd kl. 8 - 10:30
THE HEAT Sýnd kl. 5:30 - 8 - 10:30
THIS IS THE END Sýnd kl. 8 - 10:20
THE ICEMAN Sýnd kl. 5:40
EPIC 2D Sýnd kl. 5:40