Morgunblaðið - 25.07.2013, Blaðsíða 1
Eyja Barkarnautur var á söluskrá í
mánuð áður en hún seldist.
Eyjan Barkarnautur á Breiðafirði
seldist skömmu eftir að hún var aug-
lýst til sölu í Morgunblaðinu á laug-
ardag. „Hún er hæfilega stór,“ segir
Pétur Kristinsson hjá Fasteigna- og
skipasölu Snæfellsness um eyjuna
sem er 25 hektarar, en hann segir
auðveldara að selja minni eyjar en
stærri.
Undir þetta tekur Magnús Leó-
poldsson, eigandi Fasteigna-
miðstöðvarinnar, en hann hefur um
nokkurt skeið haft til sölu Svefn-
eyjar, sem liggja í miðjum Breiða-
firði, um 4,5 km austur af Flatey.
Magnús segir fátítt að eyjar á
Breiðafirði skipti um eigendur en
það sé fyrst og fremst vegna þess að
þær eru sjaldan settar á sölu.
„Í mörgum tilfellum eru eigend-
urnir margir og þeim heldur bara
áfram að fjölga með hverri kynslóð.
Þetta er oft eitthvað sem fólk telur
alveg heilagt og má ekki selja. En
svo koma svona einstaka dæmi inn á
milli og þá eru það þessar eyjar sem
eru minni að umfangi sem gengur
betur að selja,“ segir hann.
Hann segir talsverðar þreifingar
hafa átt sér stað um Svefneyjar og
að tilboð hafi verið gerð í eignina en
hún sé enn óseld.
Magnús segir verð á jörðum vera
svipað og það var 2006. Talsvert sé
um fyrirspurnir varðandi jarðar-
kaup. „Það er mjög mikið af ungu
fólki í sambandi við okkur sem hefur
áhuga og er að reyna að sjá mögu-
leika,“ segir hann.
Hann segir að fjárhagslega gangi
dæmið þó ekki alltaf upp og margir
þurfi að skjóta draumunum á frest.
„Það vantar ekki áhugann hjá fólki
fyrir landi en það dugar ekki alveg
eitt og sér.“ holmfridur@mbl.is
Minni eyjar seljast hraðar en stærri
Svefneyjar enn óseldar Mikill áhugi á jarðarkaupum hjá ungu fólki
F I M M T U D A G U R 2 5. J Ú L Í 2 0 1 3
Stofnað 1913 172. tölublað 101. árgangur
BJÖRGVIN KEPPIR
Á FIMMTUGASTA
ÍSLANDSMÓTINU
KREPPAN
EYKUR SÖLU
Á EGGJUM
BÓKVERKIN
ERU EINSKONAR
DAGBÓK
VIÐSKIPTABLAÐ SÝND Í ÚTÚRDÚR 34GOLF ÍÞRÓTTABLAÐ
Morgunblaðið/Ómar
Landspítalinn er að vinna í út-
færslu á neyðaráætlun sem starfað
verður eftir ef uppsagnir geisla-
fræðinga verða að veruleika hinn
1. ágúst næstkomandi. Hvorki er
búið að virkja áætlunina né kynna
hana á öllum einingum spítalans.
Þetta segir Jón Hilmar Frið-
riksson, staðgengill forstjóra
Landspítalans.
„Það sögðu ekki allir upp þann-
ig að við teljum okkur geta sinnt
alvarlegum bráðatilfellum, alla-
vega tímabundið,“ segir Jón Hilm-
ar og bætir við að stjórnendur
Landspítalans séu að kortleggja
hvað röntgendeildin getur gert
með þeim starfsmönnum sem hún
hefur, en svo þurfi að forgangs-
raða með tilliti til þess. »4
Telur sig geta
sinnt alvarlegum
bráðatilfellum
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þeir sem tóku gengislán fyrir efna-
hagshrunið og vænta þess að lánin
verði endurreiknuð með neikvæðum
raunvöxtum aftur í tímann byggja
það á óraunhæfum kröfum.
Þetta er skoðun Helga Sigurðs-
sonar hæstaréttarlögmanns sem vís-
ar til umtalaðs gengisdóms fyrir
Hæstarétti í máli Borgarbyggðar
gegn Arion banka.
Var niðurstaða Hæstaréttar sú að
sveitarfélagið skuldaði tæpar 129
milljónir, málalok sem Helgi segir að
hafi verið ígildi þess að umrætt lán
hafi borið neikvæða raunvexti.
Ágreiningur snerist um annað
Aldrei hafi hins vegar reynt á
þessa aðferð við að reikna út eftir-
stöðvar, enda hafi ágreiningurinn í
þessu dómsmáli öðrum þræði snúist
um hvort víkja ætti meginreglu um
fullar efndir til hliðar. Því sé for-
dæmisgildi þessa máls lítið.
Þá segir Helgi að þessi niðurstaða
sé í ósamræmi við dóm Hæstaréttar
í máli Landsbankans gegn Plastiðj-
unni hinn 30. maí sl., enda hafi fjár-
kröfu fyrirtækisins gegn bankanum
verið mótmælt.
Helgi bendir jafnframt á að
Hæstiréttur sé bundinn af þeim
málsástæðum sem teflt er fram
hverju sinni fyrir dómnum.
Telur Helgi einnig að kröfur um
neikvæða raunvexti geti aldrei sam-
rýmst réttmætum væntingum lán-
taka eða eðlilegu réttarumhverfi lán-
veitenda.
Ofmeti ekki gengisdóma
Hæstaréttarlögmaður varar við óraunhæfum kröfum vegna dóma Hæstaréttar
Lántakar geti ekki vænst neikvæðra raunvaxta af gengislánum aftur í tímann
MTakmarkað fordæmi »12
Undanfarna daga hefur biðskýli strætó við
Hringbraut loks staðið undir nafni og skýlt sól-
brenndum vegfarendum fyrir kærkomnum
geislum sólarinnar. Íbúar höfuðborgarsvæðisins
hafa tekið góða veðrinu fagnandi og út um allan
bæ má sjá léttklætt fólk njóta veðurblíðunnar.
Flest bendir til þess að sú gula heiðri íbúa suð-
vesturhornsins með nærveru sinni að minnsta
kosti fram að helgi ef marka má veðurspár.
Sú gula áfram sýnileg í borginni
Morgunblaðið/RAX
Sólskýlið stendur loksins undir nafni
Ásta Valdi-
marsdóttir lög-
fræðingur tekur
formlega við
stöðu fram-
kvæmdastjóra
hjá Alþjóðahug-
verkastofnuninni
(WIPO) um næstu
mánaðamót, fyrst
Íslendinga.
Ekki er hægt
að vinna sig hærra upp metorða-
stigann innan embættiskerfis Sam-
einuðu þjóðanna án pólitísks kjörs.
Eingöngu kjörnir fulltrúar eru
hærra settir innan alþjóðasamtak-
anna. »Viðskipti
Framkvæmdastjóri
hjá stofnun SÞ
Ásta
Valdimarsdóttir
Tekjuskatts-
og útsvarsstofn
landsmanna árið
2013 vegna
tekna á síðasta
ári nemur 932
milljörðum
króna. Eykst
stofninn um 6,4%
milli ára en
álagningarskrár einstaklinga verða
lagðar fram til sýnis á skattstofum
landsins í dag. Framteljendur eru
3.300 færri í ár en þeir voru árið
2009 þegar þeir voru flestir en sam-
tals fengu 158.000 einstaklingar
álagðan almennan tekjuskatt og
253 þúsund fengu álagt útsvar. »17
Álagningarskrár
lagðar fram í dag