Morgunblaðið - 25.07.2013, Blaðsíða 2
Ljósmyndir/Heimir Harðarson
Norðurslóðir Hér er skonnortan Ópal við Ittoqqortoormiit en þar eru engar bryggjur til að leggjast að.
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Heimir Harðarson, skipstjóri á
skonnortunni Ópal, siglir nú um
Skoresbysund en Norðursigling er
um þessar mundir með vikulegar
ferðir þangað frá Húsavík. „Það er
farið í kringum Milneland en þetta
snýst um að upplifa náttúruna á
þessum slóðum,“ segir Heimir.
„Siglt er um hrikalega firði þar sem
eru tvö þúsund metra há björg, en
við erum það norðarlega að það er
varla að sólin setjist hér þó að það sé
kominn lok júlí. Í gær varð ísbjörn á
vegi okkar þegar við komum inn í
sundið við þorpið Ittoqqortoormiit
og nú erum við að fara að leita að
honum aftur fyrir farþegana.“
Einangrunin er einstök
Aðspurður segist Heimir ekki
hafa verið hræddur við ísbjörninn.
„Ég held að hann hafi verið hrædd-
ari við okkur en auðvitað þarf að hafa
varann á og við erum með byssur
með okkur. Ísinn hér er mjög þykk-
ur og við verðum að troða okkur inn
á milli ísjaka til þess að nálgast
svæðið þar sem síðast sást til ís-
bjarnarins.“
Heimir segir upplifunina magn-
aða. „Þetta er langnyrsta byggð á
austurströnd Grænlands og hér búa
um 400 manns,“ segir Heimir um líf-
ið í Ittoqqortoormiit. „Næsta byggð
á Grænlandi er í um 800 km fjar-
lægð. Einangrunin hér er því ein-
stök en ferðum til þessa svæðis er
lítið sinnt af heimastjórn Grænlands
og því hefur orðið um 90% sam-
dráttur og innan við tíu ferðamenn
komu hingað í vetur. Þá erum við
fyrsta skipið sem kemur hingað í níu
mánuði en von er á birgðaskipi á
næstu dögum. Heimamenn eru því
skiljanlega orðnir langeygir eftir
birgðum og það er lítið til í búð-
unum,“ segir Heimir.
Ísbirnir, einangrun
og hrikalegir firðir
Skonnortan Ópal siglir um Skoresbysund
Stór Þessi ísbjörn varð á vegi áhafnar Ópals í fyrradag en fyrirtækið Norð-
ursigling stendur nú fyrir vikulegum siglingum um Skoresbysund.
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Mál Sigurðar Kristjáns Hjaltested
og Karls Lárusar Hjaltested gegn
Sýslumanninum í Kópavogi var tekið
fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í
gær.
Að sögn Sigmundar Hannessonar,
hæstaréttarlögmanns og lögmanns
sóknaraðila, varðar málið höfnun
þinglýsingarstjóra á kröfu skipta-
stjóra dánarbús Sigurðar Kristjáns
Lárussonar Hjaltested heitins þess
efnis að jörðinni Vatnsenda verði
þinglýst á dánarbúið í samræmi við
dóm Hæstaréttar frá 3. maí síðast-
liðnum. Þar var staðfestur dómur
Héraðsdóms Reykjaness um að við
opinber skipti á dánarbúi Sigurðar
Kristjáns, sem lést árið 1966, teldist
beinn eignarréttur að jörðinni
Vatnsenda enn liggja hjá dánar-
búinu.
Í marga áratugi hefur staðið yfir
deila um eignarhald á jörðinni en
Magnús Sigurðsson Hjaltested tók
við umráðum hennar við andlát föður
síns. Núverandi ábúandi jarðarinnar
er Þorsteinn Hjaltested, sonur
Magnúsar. Umtalsverðir hagsmunir
eru í húfi, en árið 2007 tók Kópa-
vogsbær 864 hektara af jörðinni
eignarnámi og greiddi fyrir það 2,5
milljarða króna.
„Óskað er úrlausnar Héraðsdóms
Reykjaness og gerð krafa um að
Þorsteinn Hjaltested, núverandi um-
sjónarmaður jarðarinnar, verði af-
máður úr þinglýsingarskrá sem ábú-
andi og dánarbúið sett þar í staðinn,“
segir Sigmundur.
Takast á um þinglýsingu
Mál Sigurðar Kristjáns Hjaltested og Karls Lárusar Hjaltested gegn Sýslu-
manninum í Kópavogi tekið fyrir í héraðsdómi Vilja taka Þorstein af skrá
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vatnsendi Árið 2007 tók Kópavogsbær 864 hektara af jörðinni eignarnámi
og greiddi fyrir það 2,5 milljarða króna. Því eru miklir hagsmunir í húfi.
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Starfsgreinafélagið AFL telur að
brotið sé á verkamönnum sem vinna
við byggingu nýrrar hafnar á Djúpa-
vogi. „Við teljum að það sé verið að
hlunnfara starfsmennina þar,“ segir
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, for-
maður AFL. „Við funduðum með
starfsmönnunum og í ljós kom að
ýmislegt mætti betur fara eins og til
dæmis vangreiddir yfirvinnutímar
auk þess sem orlof er ekki greitt. Við
buðum fram aðstoð okkar en starfs-
mennirnir voru ekki tilbúnir til þess
að þiggja hana en þeir hafa frest til
morguns.“ Aðspurð hvort starfs-
mennirnir hafi lýst óánægju með
kjör sín svarar Hjördís bæði já og
nei. „Það voru ekki þeir sem leituðu
til okkar heldur fengum við ábend-
ingu frá öðrum. Mennirnir eru flest-
ir frá Slóvakíu og þeir þekkja ekki
umhverfið hér. Það sem er mest
ámælisvert er að þetta skuli þrífast í
skjóli opinberra framkvæmda.“
Engum er frjálst að hlunnfara
Gauti Jóhannesson, sveitarstjóri
Djúpavogs, fagnar aðkomu félagsins
að málinu. „Framkvæmdir hófust í
maí og í júní frétti ég að launa-
greiðslur til mannanna væru ef til
vill ekki sem skyldi. Í framhaldi af
því hafði ég samband við Siglinga-
stofnun sem er aðaleftirlitsaðilinn
með verkinu auk þess sem ég hafði
samband við heilbrigðiseftirlitið og
AFL en það er fyrst núna, mánuði
síðar, sem AFL lætur sig málið
varða,“ segir Gauti. „Þá hefur sveit-
arfélagið dregið greiðslur til verk-
takans til þess að knýja á um að kjör
mannanna verði bætt en engum er
frjálst að hlunnfara einn né neinn.“
Ekki farið illa með neinn
Hólmar Guðmundsson verktaki
segir það rangt að verið sé að brjóta
á mönnunum. „Nei, það er langt frá
því að verið sé að fara illa með þá.
Þeir eru búnir að vinna fyrir mig í
sjö ár. Þeir eru hjá mér í vinnu í níu
mánuði á ári, fara svo heim í frí og
koma aftur að vori til. Það segir sig
sjálft að þeir kæmu ekki aftur ef ver-
ið væri að svíkja þá. Ég skal við-
urkenna það að það hefur vantað
upp á yfirvinnutíma en annars er
þetta það sem um var samið og ég
greiði annað fyrir þá í staðinn eins
og til dæmis flugfargjöld og gistingu
í bænum.“
Telja að brotið
sé á mönnum
Verkamenn vildu ekki þiggja aðstoð
Umferð gekk vel víðast hvar á land-
inu í gær. Morgunblaðið hafði sam-
band við lögregluumdæmi víða um
land í gærkvöldi og var það sam-
dóma álit viðmælenda að ökulag
ferðalanga hefði verið til fyrir-
myndar. Lítið var um hraðakstur og
háttalag ökumanna var almennt
gott.
Frekar lítil umferð var í gegnum
þéttbýliskjarna eins og Akureyri,
Borgarnes, Blönduós og Selfoss að
sögn lögreglumanna. Búast má við
því að umferð fari að þyngjast í dag
og á morgun enda landsmenn marg-
ir í sumarfríi og þar af leiðandi á far-
aldsfæti um helgina. heimirs@mbl.is
Umferð á
þjóðvegum
gekk vel
Ökulag ferðalanga
var til fyrirmyndar