Morgunblaðið - 25.07.2013, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 25.07.2013, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2013 Skúli Hansen skulih@mbl.is Álagningarskrár einstaklinga verða lagðar fram til sýnis á skattstofum landsins í dag. Samkvæmt upplýs- ingum frá fjármálaráðuneytinu nemur tekjuskatts- og útsvarsstofn landsmanna árið 2013 vegna tekna á síðasta ári 932 milljörðum króna og hefur hann því aukist um 6,4% frá því árið 2012. Þá fjölgar framteljendum um 0,9% á milli ára, en í ár eru þeir 264.193 tals- ins. Samtals fengu 158.455 einstaklingar álagð- an almennan tekjuskatt en 253.606 fengu álagt útsvar. Framteljendur eru þó ennþá færri en árið 2009 þegar þeir voru flestir, það ár voru þeir 3.300 fleiri en núna. 12 þúsund gleymdu framtali „Þetta er í fjórða skiptið sem ríkisskattstjóri gerir þetta. Áður var þetta lagt fram hjá skatt- stjórum, en þá voru skattstjórar staðbundin stjórnvöld,“ segir Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri. Að sögn hans vantar framtöl frá um 12 þúsund einstaklingum og bendir hann á að það sé lægri tala en undanfarin ár. „Það var áætlað á þann hóp en áætlanir eru miklu ná- kvæmari nú en áður vegna þess að það eru afritaðar allar upplýsingar frá fjármálastofnunum og upplýs- ingar um launatekjur inn á fram- töl,“ segir Skúli sem bætir við að almennt séu áætlanir nákvæmari í dag en áður nema hjá þeim sem stunda atvinnurekstur. Þá bendir Skúli á að álagningar- skrárnar verði lagðar fram til sýnis klukkan níu í dag en hinsvegar hafi verið opnað fyrir álagningarseðla á netinu síðastliðið þriðjudagskvöld. Rétt er að taka fram að á netinu getur fólk einungis séð eigin álagn- ingarseðla. „Til þess þurfa menn að nota rafræn skilríki eða veflykil ríkisskattstjóra,“ segir Skúli. Hann bendir á að álagningar- skrárnar muni liggja frammi á öll- um starfsstöðvum ríkisskattstjóra til 8. ágúst næstkomandi. „Síðan rennur kærufresturinn út 26. ágúst og það má segja síðan um þetta að skilin á framtölum eru mun betri en síðustu ár og aldrei hafa jafn- margir framteljendur getað lokið framtalsgerðinni með því einu að yfirfara upplýsingarnar og stað- festa að þær séu réttar,“ segir Skúli. Skuldir heimila hafa aukist Skuldir heimilanna hafa aukist á milli ára, en samkvæmt upplýs- ingum frá fjármálaráðuneytinu námu þær 1.785 milljörðum króna í árslok 2012 og jukust þær um 1,5% á því ári. Til samanburðar má nefna að árið 2011 drógust skuldir heimilanna saman um rúmlega 6%. Endurgreiða 18,3 milljarða Hinn 1. ágúst næstkomandi verða 18,3 milljarðar endurgreiddir úr ríkissjóði til heimila vegna of- greiddra skatta, barnabóta og vaxtabóta. Alls er inneign framtelj- enda að lokinni álagningu 21,9 milljarðar króna en 3,6 milljarðar af upphæðinni verða nýttir upp í kröfur ríkissjóðs vegna vangold- inna gjalda. Endurgreiðslur vegna ofgreiddra staðgreiðslna tekju- skatts og útvars nema rétt rúmum 7 milljörðum króna en endur- greiðslur vegna ofgreiddra stað- greiðslna fjármagnstekjuskatts nema hinsvegar 729 milljónum króna. Þá nema vaxtabætur rúmum 7,4 milljörðum króna, barnabætur tæpum 2,7 milljörðum en aðrar endurgreiðslur nema samtals 398 milljónum króna. Álagningarskrárnar lagðar fram í dag Morgunblaðið/Arnaldur Skattur Álagningarskrár verða lagðar fram almenningi til sýnis í dag.  Framteljendum fjölgar um 0,9% frá síðasta ári Skúli Eggert Þórðarson Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Bæjarhátíðin Kátir dagar á Þórs- höfn hófust í blíðu veðri um síðustu helgi en síðustu árin hefur hún verið árviss viðburður. Frumkvæðið að Kátum dögum í þetta sinn áttu nokkur ungmenni á Þórshöfn en um tíma leit út fyrir að engin hátíð yrði haldin í ár. Þessu kraftmikla unga fólki þótti súrt í broti að engin hátíð yrði í sumar og hófust handa við að skipuleggja dag- skrá í júní. Allt gekk þetta upp þó fyrirvarinn væri stuttur og góða veðrið hafði mikið að segja þessa helgina. Margt var í boði á hátíðinni. Á hafnarsvæðinu var lífleg markaðs- stemning þar sem sölufólk var með ýmsan varning á boðstólum, hand- verk, fatnað og allt sem nöfnum tjáir að nefna. Kokkarnir Kjartan Kjart- ansson og Anna Soffía komu frá Reykjavík og stóðu fyrir girnilegu fiskihlaðborði. Í hoppkastalanum var hoppandi kæti börnunum í en þeim bauðst líka að fara á rúntinn í opinberum bílum bæjarins, s.s. lögreglu-, slökkviliðs-, björgunarsveitar- og sjúkrabíl. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Kátir dagar Sjávarréttaborðið var vinsælt á útimarkaðinum á Þórshöfn. Ungmennin tryggðu tilveru Kátra daga GLER OG SPEGLAR 54 54 300 • smiðjuvegi7 • kópavogi handrið • skjólveggir einangrunargler • milliveggir • og margT Fleira sólvarnargler SÍðAN 19 69 allT í gleri alhliða lausnir í einangrunargleri haFðu samband sendum um allT land allT að 80% minna gegnumFlæði hiTa og óþægilegra ljósgeisla vo TTu ðF ra ml eið sl a Þegar þú kaupir þér BOBS skó gefur Skechers annað skópar til nauðstaddra barna Guatemala Uganda Haiti Meira en 4 milj. skóparahefur verið dreift Fæst á souk.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.