Morgunblaðið - 25.07.2013, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2013
Hertogahjónin af Cambridge, Vil-
hjálmur og Katrín, nefndu ný-
fæddan son sinn Georg Alexander
Loðvík í gær. Þar með halda þau í
heiðri aldagamlar konunglegar
hefðir, en verði sá nýfæddi kon-
ungur, verður hann Georg VII.
Tilkynnt var um nafngiftina
skömmu eftir að Elísabet II Eng-
landsdrottning hitti barna-
barnabarn sitt í fyrsta skipti og
leiddu breskir fjölmiðlar að því
líkur að þar hafi drottningin lagt
blessun sína yfir nafnið.
Tilkynnt var um nafn drengsins
óvenju fljótt miðað við kon-
unglegar venjur. T.d. var Vil-
hjálmur ekki nefndur fyrr en hann
var vikugamall en Georg litli
fæddist 22. júlí.
Georg Alexander Loðvík
skal sá konunglegi heita
AFP
Foreldrar Vilhjálmur og Katrín full af stolti, dást að nýfæddum syni.
Að minnsta kosti tuttugu meðlimir
vopnaðs glæpagengis féllu í bardög-
um við lögreglu í Michoacán-ríki í
vesturhluta Mexíkó á þriðjudag.
Tveir lögreglumenn biðu einnig
bana í skotbardaganum sem braust
út eftir að gengið lokaði vegi og
veitti lögreglumönnum fyrirsát.
Ofbeldisverk hafa færst mjög í
aukana í Michoacán undanfarna
mánuði. Þannig skutu meðlimir
glæpagengisins Musterisriddaranna
fimm mótmælendur til bana á mánu-
dag. Þeir voru að mótmæla ofbeldis-
herferð gengisins.
Talið er að rekja megi blóðbað síð-
ustu mánaða til átaka Musterisridd-
aranna við annað gengi í nágranna-
ríkinu Jalisco sem kallar sig Nýju
kynslóðina.
Glæpagengin víla ekki fyrir sér að
beita ofbeldi, mannránum og fjár-
kúgunum til að ná sínu fram í Mich-
oacán og víðar í Mexíkó. Tugir þús-
unda manna hafa fallið í landinu frá
því að stjórnvöld ákváðu að beita
hernum í baráttunni gegn skipu-
lagðri glæpastarfsemi.
Forseti landsins, Enrique Peña
Nieto, sendi herforingja til ríkisins í
maí til þess að stjórna lögreglu- og
hernaðaraðgerðum í ríkinu. Þá hafa
íbúar þar stofnað sínar eigin vopn-
uðu sveitir til þess að veita glæpa-
gengjunum mótspyrnu.
Ofbeldisalda rís í
vesturhluta Mexíkó
AFP
Vörn Vopnaður maður sem tilheyrir
sjálfsvarnarsveit í bæ í Michoacán.
Blóðugur
bardagi við
lögreglu
Bandaríska geimvísindastofnunin NASA birti í
vikunni mynd sem könnunarfarið Cassini tók á
föstudag og sýnir í fyrsta skipti jörðina og hringi
Satúrnusar á sömu myndinni. Geimfarið var í um
það bil 1,4 milljarða kílómetra fjarlægð frá jörðu
þegar myndin var tekin og virðast heimkynni
mannkynsins ekki meira en bláleit ljóstíra.
Cassini var í um það bil 1,2 milljóna kílómetra
fjarlægð frá gasrisanum þegar myndin var tekin
en hann er önnur stærsta reikistjarnan í sólkerfi
okkar á eftir Júpíter. Venjulega beina geimför á
ytri mörkum sólkerfisins myndavélum sínum
ekki til baka til að skemma ekki tæki með beinu
sólarljósi. Satúrnus skyggði hins vegar á sólina
nógu lengi til að hægt væri að smella af mynd.
Blái hnötturinn í
skugga gasrisans
AFP
Jose Americo Bubo Na Tchuto, fyrr-
verandi flotaforingi og stríðshetja í
heimalandinu Gíneu-Bissá, situr nú í
fangelsi í New York og bíður ákæru
vegna glæpsamlegs samsæris um að
smygla kókaíni til Bandaríkjanna.
Hann var fórnarlamb umfangs-
mikillar leyniaðgerðar bandarísku
fíkniefnalögreglunnar undan strönd-
um Vestur-Afríkuríkisins. Aðgerðin
átti sér stað í apríl og var sú fyrsta
sem bandarísk yfirvöld standa fyrir í
Afríku sem beinist að svo hátt-
settum einstaklingi.
Að því er kemur fram í frásögn
Reuters-fréttastofunnar af málinu
var Na Tchuto ginntur út á lúxus-
snekkju þar sem hann taldi sig vera
að fara að ganga frá milljóna dollara
samningi um fleiri tonn af kókaíni.
Þegar þangað var komið biðu hans
hins vegar tugir bandarískra fíkni-
efnalögreglumanna. Tilgangurinn
hafði verið að ná Na Tchuto út á al-
þjóðlegt hafsvæði þar sem hægt
væri að handtaka hann.
„Þegar við komum um borð var
okkur boðið kampavín. Í staðinn fyr-
ir kampavínið fengum við fimmtíu
þungvopnaða menn sem hlupu að
okkur kallandi: „Lögregla! Lög-
regla!“,“ sagði Vasco Antonio Na
Sia, sem sigldi hraðbátnum sem
flutti Na Tchuto út á snekkjuna, við
fjölmiðla í Gíneu-Bissá eftir að hon-
um hafði verið sleppt.
Handtakan á Na Tchto var liður í
átaki bandarísku fíkniefnalögregl-
unnar gegn fíkniefnasmyglhringjum
sem nota veikburða afrísk ríki sem
milliliði í smyglinu. Bandarískir
embættismenn segja að handtakan
hafi hjálpað til við að brjóta upp al-
þjóðlegan smyglhring. Na Tchuto
neitar hins vegar öllum sökum.
Embættismenn í Gíneu-Bissá
hafa brugðist ókvæða við og segja
Na Tchuto hafa verið veiddan í
gildru. Þeir kalla handtökuna mann-
rán. Bandarísk yfirvöld tjá sig ekki
um málið sjálft á meðan það er fyrir
dómstólum.
„Gínea-Bissá er fíkniefnaríki.
Þessir fíkniefnahringir eru ógn við
öryggi, stöðugleika og góða stjórn-
arhætti í Vestur-Afríku og eru bein
ógn við öryggi Vestur-Afríkubúa en
einnig bandarískra borgara,“ segir
Lawrence R. Payne, talsmaður
bandarísku fíkniefnalögreglunnar.
Lögreglumenn í stað kampavíns
Bandaríska fíkniefnalögreglan beit-
ir sér gegn glæpahringjum í V-Afríku
AFP
Eiturlyf Staflar af kókaíni. Myndin
tengist efni fréttarinnar ekki beint.
- örugg bifreiðaskoðun um allt land
Vertu ferðafær í fríinu!
JÚLÍ
SKOÐUN
ARMÁN
7 Höfum áreiðanleikann að leiðarljósi í sumarog látum skoða bílinn á réttum tíma.
Veist þú hvar myndin er tekin?
Myndin hér að ofan er samsett og tekin á tvemur stöðum.
Veist þú hvaða staðir það eru? Reyndu á kunnáttu þína og berðu
saman við rétt svar sem þú finnur á www. frumherji.is