Morgunblaðið - 25.07.2013, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2013
AGA GAS
ER ÖRUGGT
VAL HEIMA
OG Í FRÍINU
Þú getur verið afslappaður og öruggur
við grillið með AGA gas. Öruggur um
að þú ert að nota gæðavöru og að
þú fáir góða þjónustu þegar þú þarft
áfyllingu á gashylkið, hvort sem þú
nýtir þér heimsendingarþjónustu á
höfuðborgarsvæðinu eða þegar þú
heimsækir söluaðila AGA.
Farðu á www.gas.is og finndu
nálægan sölustað eða sæktu
öryggisleiðbeiningar og fáðu
upplýsingar um AGA gas.
www.GAS.is
SVIÐSLJÓS
Björn Már Ólafsson
bmo@mbl.is
Hinir árlegu Mærudagar á Húsavík
fara fram um helgina. Á þessari hús-
vísku menningarhátíð er boðið upp á
stútfulla dagskrá frá fimmtudegi
fram á sunnudag. Andri Birgisson,
einn verkefnastjóri daganna, segir
undirbúninginn ganga vel. „Við er-
um bara að bíða eftir fólkinu og veðr-
inu, það á að vera fínt veður á föstu-
daginn og hlýtt á laugardag og við
vonumst til að sleppa við alla rign-
ingu,“ segir Andri. Meðal þess sem
er á dagskrá á Húsavík er hið árlega
Botnsvatnshlaup fyrir eldri hlaupara
og krakkahlaup Íslandsbanka fyrir
hina yngri. Síðan er litboltamót, las-
ertagmót, brenna og síðan auðvitað
dansleikur og stór hafnarmarkaður.
Tónleikaflóð Borgarfirði eystra
Frá árinu 2005 hefur tónlistarhá-
tíðin Bræðslan verið haldin á Borg-
arfirði eystra og hefur hún farið
stækkandi með hverju árinu.
Bræðslan sjálf eru einir tónleikar
sem haldnir eru á laugardags-
kvöldið. Þar munu, ásamt fleiri góð-
um gestum, Ásgeir Trausti og John
Grant stíga á svið. Að sögn Áskels
Heiðars Ásgeirssonar, eins bræðslu-
stjóranna, seldist upp á tónleikana á
einungis tveimur sólarhringum.
Hins vegar er á svæðinu ógrynni
annarra tónleika. Meðal annars
munu Gissur Páll og Garðar Thor
syngja á Álfakaffi á fimmtudeginum.
„Annars er þetta bara stór og
skemmtileg útihátíð. Það koma um
tvö þúsund manns hingað til þess að
drekka í sig stemninguna og upplifa
fjörið.“
Frökkum fagnað
á Fáskrúðsfirði
Árlega frá árinu 1996 hafa svokall-
aðir Franskir dagar verið haldnir á
Fáskrúðsfirði til þess að halda á lofti
minningunni um veru Frakka á Fá-
skrúðsfirði. Meðal þess sem er á
dagskrá á dögunum er Fáskrúðs-
fjarðarhlaupið, dorgveiðikeppni og
skoðunarferðir um franska spítalann
á svæðinu. Setningarhátíð daganna
er á föstudagskvöldinu þar sem Árni
Johnsen stjórnar brekkusöng og
Friðrik Dór mætir á svæðið og tekur
lagið. Á laugardag er dansleikur á
dagskrá í Skrúði fyrir alla aldurs-
hópa áður en við tekur alvöru sveita-
ball þegar líða fer á kvöldið. Á
sunnudag verða tónleikar í frönskum
stíl í skólamiðstöðinni á svæðinu.
Örvar Ingi Jóhannesson píanóleikari
og Berta Dröfn Ómarsdóttir leika
lög Edith Piaf í bland við íslensk
dægurlög.
Iðandi mannlíf á Vestfjörðum
Nóg verður um að vera á Vest-
fjörðum um helgina. Metnaðarfullar
dagskrár verða bæði á Tálknafirði og
í Reykhólahreppi. Á Tálknafirði er
hátíðin Tálknafjör haldin. Hefst hún
með fjölskylduratleik á föstudeg-
inum klukkan 17. Sirkus Íslands
mætir svo á svæðið á laugardaginn,
kvenfélagið stendur fyrir veit-
ingasölu og björgunarsveitin Tálkni
verður með kassaklifur og happ-
drætti fyrir börnin.
Héraðshátíðin Reykhóladagar
hefst í dag á báta- og hlunnindasýn-
ingu líkt og undanfarin tvö ár. Í
kvöld verður svo kaffihúsakvöld þar
sem heimildarmyndin Súðbyrðing-
urinn verður sýnd, en hún var að
mestu leyti tekin upp í bátahluta
sýningarinnar. Á morgun verður svo
fjölbreytt dagskrá fyrir alla aldurs-
hópa. Yngstu kynslóðinni verður
boðið á hestbak, keppt verður í
kassabílaakstri og hverfi Reykhóla-
hrepps keppa sín á milli í ýmsum
þrautum sem reyna jafnt á líkamlegt
atgervi og gáfur. Á laugardeginum
verður skemmtun í íþróttahúsinu
sem endar svo með dansleik sem
hefst klukkan 23.
Mærudagar og menningarhátíðir
Mikil eftirspurn eftir miðum á Bræðsluna Árni Johnsen stjórnar brekkusöng á Fáskrúðsfirði
Lög eftir Edith Piaf leikin á frönskum dögum Báta- og hlunnindasýning í Reykhólahreppi
Ljósmynd/Ingibjörg Torfadóttir
Bræðslan Ásgeir Trausti og John Grant eru meðal þeirra tónlistarmanna sem munu stíga á svið á Bræðslunni á
Borgarfirði eystri á laugardag. Fjöldi annarra tónleika verður einnig á svæðinu fyrir sérhvern tónlistarsmekk.
Mærudagar Á Húsavík er hægt að taka þátt í Botnsvatnshlaupinu áður en
Emmsé Gauti treður upp á gamla Bauknum um kvöldið.
Sjötta ráðstefna PLANNORD verð-
ur haldin í Hörpu dagana 18.-21.
ágúst. Yfirskrift ráðstefnunnar er
„Sjálfbærni og skipulag“ og tilgang-
urinn er að ræða áhrif sjálfbærrar
þróunar á skipulagsfræði og vinnu við
skipulagsmál á Norðurlöndum.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, er sérlegur verndari ráð-
stefnunnar.
Meistaranámsbraut í skipulags-
fræðum við Landbúnaðarháskóla Ís-
lands var falið að halda ráðstefnuna
og gerir það í samvinnu við Skipu-
lagsfræðingafélag Íslands.
PLANNORD er samstarfsvett-
vangur þeirra sem stunda rannsóknir
í skipulagsmálum og starfa á þeim
vettvangi á Norðurlöndum.
Aðalfyrirlesarnir eru heimsþekktir
fyrir fræðastörf á sviði skipulags-
mála. Þeir eru Hugh Barton, prófess-
or við University of the West of Eng-
land, og Tore Sager, prófessor við
Norges teknisk-naturvitenskapelige
universitet.
Hugh Barton hefur rannsakað
tengsl milli skipulags, heilsu og sjálf-
bærni. Tore Sager fæst við rannsókn-
ir á skipulagskenningum, hagfræði og
ákvörðunarferli í samgönguskipulagi.
Á ráðstefnunni verða tvær stórar
málstofur í Kaldalóni. Fyrir hádegi
19. ágúst verður málstofa um skipu-
lagsmál á Norðurlöndum þar sem
fyrirlesarar verða þekktir fræðimenn
alls staðar af Norðurlöndum. Eftir
hádegi 20. ágúst verður málstofa með
áherslu á nýjungar í skipulagsmálum
í Reykjavík.
Að auki verða haldnar 10 málstofur
í minni sölum Hörpu þar sem þátttak-
endur geta valið úr yfir 40 erindum til
að hlusta á og tekið virkan þátt í um-
ræðum.
Undirbúningsnefnd PLANNORD-
ráðstefnunnar á Íslandi 2013 hefur
opnað heimasíðu þar sem nálgast má
frekari upplýsingar um ráðstefnuna,
http://www.yourhost.is/nord-
plan-2013/home.html.
Morgunblaðið/Kristinn
Ræða skipulagsmál
á Norðurlöndum
Þekktir fræðimenn á ráðstefnu
Á föstudaginn verður fínt veð-
ur um allt land. Hálfskýjað á
Suður- og Vesturlandi en heið-
skírt á Norður- og Austurlandi.
Hitinn verður á bilinu 14 til 21
stig. Á laugardag og sunnudag
verður skýjað og smávegis
rigning inn á milli víðast hvar
á landinu en lítill vindur og
víðast hvar mjög hlýtt. Hitinn
fer mest í 18 stig á Akureyri á
laugardaginn og 16 stig á Eg-
ilsstöðum á sunnudaginn.
Hvergi fer hitinn þó niður fyrir
10 stig.
Það er því útlit fyrir að það
viðri vel til útihátíða á landinu
en þurrast verður sennilega á
Vestfjörðum.
Nokkuð skýj-
að en hlýtt
VEÐRIÐ UM HELGINA