Morgunblaðið - 25.07.2013, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 25.07.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2013 Vertu vinur okkar á facebook www.facebook.com/weledaísland Eitt best geymda leyndarmálið á markaðnum Weleda Skin Food er í miklu uppáhaldi hjá þekktum tísku- fyrirsætum og förðunarfræðingum um allan heim. Skin Food er 100% lífrænt árangursríkt alhliða krem sem nærir þurra og viðkvæma húð og kemur jafnvægi á húðina. Skin Food kom fyrst á markað fyrir meira en 80 árum síðan og hefur uppskriftin verið óbreytt síðan. Kremið er unnið úr lífrænt ræktuðum Stjúpum, Baldursbrá, Morgunfrú og Rósmarín, gott krem fyrir alla fjölskylduna – Í samhljómi við mann og náttúru. www.weleda.is Þú kaupir Weleda vörur í heilsuverslunum og apótekum um allt land Tímabundnir skattar eru meðalþess sem lífseigast er í veröld- inni. Í framhaldi af því að Múrinn í Berlín var brotinn niður fyrir rúm- um tveimur áratugum var gripið til ýmissa efnahags- ráðstafana til að lyfta Austur- Þýskalandi. Meðal þess var að leggja á tímabundinn skatt til uppbyggingar eystra.    Þessi tímabundniskattur átti eins og aðrir slíkir að leggjast á skatt- greiðendur um skamma hríð en hef- ur síðan ítrekað ver- ið framlengdur.    Síðasta framlenging skattsinsvar til ársins 2019 (Þjóðverjar gera áætlanir lengra fram í tímann en ýmsir aðrir) og nú hefur Merkel sagst vilja framlengja hann enn einu sinni.    Þetta hefur gefið Frjálsum demó-krötum, litla samstarfsflokki hennar, óvænt sóknarfæri vegna kosninganna í haust og gæti tryggt þeim áframhaldandi setu á þýska þinginu. Þeir vilja losna við þennan tímabundna viðbótarskatt, sem er óvinsæll meðal landsmanna.    Þjóðverjar eru ekki einir um aðglíma við háa og tímabundna skatta. Íslendingar voru minntir á það í gær þegar fjármálaráðherra kynnti álagningu á einstaklinga að hér þarf að taka til hendinni í skatt- heimtunni.    Fjögurra ára vinstri stjórn skilureftir sig mikið af tímabundn- um sköttum og nýlegum hækk- unum sem nauðsynlegt er að létta hið allra fyrsta af almenningi. Angela Merkel Lífseigir tíma- bundnir skattar STAKSTEINAR Bjarni Benediktsson Veður víða um heim 24.7., kl. 18.00 Reykjavík 15 skýjað Bolungarvík 17 heiðskírt Akureyri 12 alskýjað Nuuk 8 skýjað Þórshöfn 16 léttskýjað Ósló 26 heiðskírt Kaupmannahöfn 23 heiðskírt Stokkhólmur 26 léttskýjað Helsinki 18 skýjað Lúxemborg 25 skúrir Brussel 25 heiðskírt Dublin 21 skýjað Glasgow 22 léttskýjað London 26 heiðskírt París 27 skýjað Amsterdam 21 skúrir Hamborg 30 heiðskírt Berlín 28 heiðskírt Vín 29 skýjað Moskva 17 þrumuveður Algarve 27 heiðskírt Madríd 33 heiðskírt Barcelona 28 léttskýjað Mallorca 30 léttskýjað Róm 32 léttskýjað Aþena 32 heiðskírt Winnipeg 17 léttskýjað Montreal 13 skýjað New York 26 heiðskírt Chicago 18 léttskýjað Orlando 28 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 25. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4:14 22:56 ÍSAFJÖRÐUR 3:52 23:28 SIGLUFJÖRÐUR 3:33 23:12 DJÚPIVOGUR 3:37 22:32 Árni Grétar Finnsson agf@mbl.is „Mörg smáforrit sem fólk setur inn á símana sína eru ókeypis fyrir not- andann en fjármagna sig með því að safna upplýsingum um hann og selja áfram,“ sagði Ýmir Vigfússon, lektor í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík og yfirmaður rannsókna hjá Syndis í grein Morgunblaðsins í gær um rafræn fótspor á Internet- inu. Þar sagði Ýmir að einkalíf á Int- ernetinu væri svipað og í almenn- ingsgarði fullum af myndavélum. Snjallsímarnir varasamir Ýmir segir að með tilkomu snjallsímans hafi orðið auðveldara að fylgjast með einstaklingum. „Síminn er í stöðugu sambandi við umheiminn sem þýðir að hvert sem þú ferðast þá er síminn að senda upplýsingar um hvar hann er, til dæmis þegar hann athugar hvort að nýr póstur bíði í pósthólfi þínu. Langstærstum hluta þessara upp- lýsinga er hent nema það sé einhver sem hefur sérstakan áhuga á þeim.“ Símstöðvar safna gögnum um notkun farsíma (e. call data records), m.a. til þess að rukka notendur. Þessum gögnum ber að eyða þegar þeirra er ekki lengur þörf skv. fjar- skiptalögum, en í lögunum segir að þau skuli þó vera geymd að lágmarki í 6 mánuði vegna almannaöryggis. „Snjallsíminn á allar upplýsingar um þig“  Smáforrit geta virst saklaus en safna miklum gögnum um notandann Morgunblaðið/Ernir Sími Stöðugt samband við heiminn. Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá 19. þessa mánaðar þar sem karlmaður var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 16. ágúst. Honum er gefið að sök að hafa tekið matvæli ófrjálsri hendi úr verslun Bónuss við Laugaveg hinn 18. júlí fyrir samtals 9.501 krónu. Grunsemdir vöknuðu hjá verslun- arstjóra búðarinnar, sem veitti manninum eftirför og var á meðan í stöðugu símasambandi við lögreglu. Lyktir yrðu þær að lögregla hand- samaði manninn, sem hafði á flótt- anum hent frá sér poka með fatnaði sem hann hafði tekið ófrjálsri hendi úr annarri verslun. Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 1988. Morgunblaðið/Sverrir Sagður hafa stolið úr Bónus

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.