Morgunblaðið - 25.07.2013, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 25.07.2013, Qupperneq 4
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Hitinn fór í 25,9 stig í Veiðivatnahrauni í gær og er það nýtt met á þeirri veðurstöð. Þá varð hlýjast í byggð á Hjarðarlandi, 25,2 stig, sam- kvæmt óyfirförnum frumniðurstöðum sem birtust á vef Veðurstofunnar í gær. Sjálfvirk veðurathugunarstöð í eigu Landsvirkjunar er í Veiðivatnahrauni. Hún er í 647 metra hæð yfir sjó. Mesti hitinn í fyrradag mældist einnig í Veiðivatnahrauni, 25,3 stig, en mesti hiti í byggð var þá á Þingvöllum, 25,1 stig, eins og Trausti Jónsson veðurfræðingur benti á í bloggi sínu (trj.blog.is). Það birtist eftir mið- nætti í gær og fjallaði um veðrið í fyrradag. „Talan í Veiðivatnahrauni telst til tíðinda, því þar hefur aldrei mælst mælst hærri hiti síðanbyrjað var að mæla 1993,“ skrifaði Trausti um hitann í fyrradag. „Við nánari at- hugun kemur í ljós að þetta er hæsti hiti sem nokkru sinni hefur mælst á hálendi landsins í júlímánuði – ofan við 450 metra hæð yfir sjó. Í ofurhitabylgjunni í ágúst 2004 varð enn hlýrra en nú á fáeinum hálendisstöðvum,“ skrifar Trausti. Það er því ljóst að hitametið Veiði- vötnum í gær bætti enn um betur. Trausti segir einnig í blogginu að hlýtt loft verði yfir landinu næstu daga en öllu kald- ara loft sæki að landinu á laugardag. Kólnar eitthvað um helgina Blíðuna í gær og fyrradag má rekja til hæðar fyrir norðan landið og lægðar fyrir sunnan land sem valda austlægum áttum. „Þetta er í raun og veru mjög hlýtt loft en líka rakt sem kemur frá Evrópu og hér yfir okkur,“ sagði Helga Ívarsdóttir, veðurfræð- ingur á Veðurstofunni, í gær. Þegar raka loftið kemur yfir kalt hafið þéttist rakinn og þoka myndast. Hún hefur einkum látið á sér kræla á Norður- og Austur- landi. Helga sagði að aftur mætti búast við þoku í nótt sem leið. Þegar kaldara loft leitar hingað á laugar- daginn verður loftið óstöðugra og þá má búast við meiri skúraleiðingum, sérstaklega á sunnu- dag og mánudag. Þannig mun þokan víkja fyr- ir skúrunum. Þegar kólnar um helgina er ólík- legt að hitinn fari yfir 20 stig, en hann gæti orðið alveg upp undir það. Hitamet slegið í Veiðivatnahrauni  Hitinn fór þar í 25,9 stig í gær en veðurstöðin er 647 metra yfir sjó  Horfur eru á kólnandi veðri um helgina og að skúraleiðingar komi í stað þokunnar sem víða hefur orðið vart undanfarið Gervihnattamynd/MODIS/NASA Ísland Gervihnöttur NASA tók þessa mynd af landinu klukkan 13.52 í gær. Þokan fyllir firði og dali fyrir norðan. Grímsey hefur áhrif á skýin og áhrif vatnavaxta sjást vel í Öxarfirði. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2013 Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Alicante Netverð frá kr.19.900 Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt verð frá Alicante 8. ágúst. Einnig aðrar dagsetningar í ágúst á hagstæðu verði. Nú er tækifæri til að bregðast skjótt við og næla sér sæti á frábærum kjörum! Flugsæti á mann aðra leiðina með sköttum. Frá kr. 19.900 Ótrúlegt verð Skúli Hansen skulih@mbl.is Landspítalinn er að vinna í út- færslu á neyðaráætlun sem starfað verður eftir ef uppsagnir geisla- fræðinga verða að raunveruleika hinn 1. ágúst næstkomandi. Hins vegar er ekki ennþá tímabært að virkja áætlunina eða kynna hana á öllum einingum spítalans. Þetta segir Jón Hilmar Friðriksson, staðgengill forstjóra Landspítal- ans. Sögðu ekki allir upp „Það eru viðræður í gangi og við stefnum á að leysa málin,“ segir Jón Hilmar sem bendir einnig á að ekki hafi allir geislafræðingar við spítalann sagt upp störfum. „Það sögðu ekki allir upp þannig að við teljum okkur geta sinnt al- varlegustu bráðatilvikum, allavega tímabundið,“ segir Jón Hilmar og bætir við að stjórnendur spítalans séu að kortleggja hvaða starfsemi röntgendeildin getur haldið uppi með þeim starfsmönnum sem hún hefur og síðan þarf að forgangs- raða rannsóknum. Þá segir hann samningaviðræð- ur á milli stjórnenda spítalans og geislafræðinga enn vera í gangi en stefnt sé að því að ná sáttum við geislafræðinga áður en uppsagn- irnar taka gildi. „Ef allt fer á versta veg, þá erum við samhliða þessu að vinna í áætlunum um hvernig við bregðumst við og for- gangsröðum,“ segir Jón Hilmar. Landspítalinn er að útfæra neyðaráætlun  Samningaviðræðum við geislafræðinga haldið áfram Morgunblaðið/Heiddi Yfir hundrað umsóknir um fimm lausar stöð- ur á fréttastofu 365 hafa borist fyrirtækinu síð- an auglýsing birtist um síðustu helgi. Frá þessu er greint á fréttavefnum vis- ir.is. Um er að ræða sameinaða frétta- stofu Stöðvar 2, Bylgunnar, Vísis og Fréttablaðsins. Yfir hundrað hafa sótt um hjá 365 Miðlar Margir vilja vinnu hjá 365. Borgarráð Reykjavíkur mun á fundi sínum sem hefst kl. 9 í dag fjalla um umdeilda deiliskipulag- stillögu um Landsíma- reitinn. Bin-hópurinn, sem berst fyrir því að fallið verði frá breytingum á svæðinu, mun þar afhenda Degi B. Eggertssyni, formanni borg- arráðs, áskorun hópsins. Tæplega 18.000 manns hafa skrifað undir mótmæli gegn hótelrekstri á Landsímareitnum. Afhenda áskorun vegna Landsímareits Mótmæli Gegn hót- eli á Landsímareit. Það er ekki bara í Nauthólsvík sem íslenskir sól- dýrkendur geta komist í tæri við strandstemn- ingu eins og hún gerist best erlendis. Í Sjálands- hverfinu í Garðabæ er ylströnd sem jafnan nýtur mikilla vinsælda á góðviðrisdögum eins og í gær. Unga kynslóðin tók tilboði veðurguðanna fegins hendi og héldu börnin út á strönd með skóflu og fötu. Krakkarnir voru í óðaönn að búa til stíflu þegar ljósmyndara bar að garði. Mögulegt að njóta sólar og sands víðar en í Nauthólsvík Morgunblaðið/Eggert Ungviðið naut sín á ylströndinni í Garðabæ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.