Morgunblaðið - 25.07.2013, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 25.07.2013, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2013 STÓRÚTSALA!Allar vörur á útsölu Allt að 50% afsláttur Ármúla 5 • 108 Reykjavík • Sími 544 8181 www.innlit.is Þekking Þjónusta Olíumálverk 40% afsláttur Skápar 10-40% afsláttur Sófar 15-30% afsláttur Lampar og kertastjakar 20% afsláttur Jantzen hægindastólar 20% afsláttur Rubelli tungusófar 168.300,- Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Þetta lagast núna þegar sólin kem- ur og sjórinn hlýnar,“ sagði Magnús Guðni Emanúelsson, skipstjóri á Manga á Búðum SH frá Ólafsvík. Í gær var hann að makrílveiðum und- an Malarrifi. Þá voru 30-40 króka- bátar á makrílveiðum frá Öndverð- arnesi að Arnarstapa. Í gær höfðu 58 færabátar landað makríl frá því að krókaveiðar hófust 1. júlí og var heildaraflinn kominn í 252 tonn eða rúm fjögur tonn á bát að meðaltali. Sá aflahæsti var kom- inn með um 22 tonn. „Makríllinn er að byrja að gefa sig núna. Ég heyrði í nokkrum í morgun og það var komið upp í tvö tonn hjá sumum. Þetta er allt að bresta á. Það hefur vantað sólina í allt vor og sumar,“ sagði Magnús. Eftir hádegi í gær var hann kominn með um 600 kíló frá því klukkan átta í gærmorgun. Hann er einn á bátnum sem er útbúinn með fimm rúllur og eru 45 krókar á hverri. Þegar makríllinn gefur sig geta aflabrögðin verið ótrúleg. Magnús lenti í því í fyrrasumar að draga 3,5 tonn af makríl á aðeins 20 mínútum. Hann sagði að það gætu komið allt að 100 kíló á hverja rúllu á mínútu! Magnús sagði að þetta væri skemmtilegur veiðiskapur, en hann reyndi á hugann. „Maður er ekki líkamlega þreytt- ur en hausinn á manni er steiktur þegar maður kemur heim. Maður er með athyglina í botni allan tímann á dýptarmælinum og rúllunum. Þeg- ar kemur fiskur þá spennist maður allur upp og fær „adrenalínkikk“ hundrað sinnum á dag!“ Aflinn er snöggkældur Makríllinn er ekki með sundmaga og sést því ekki í öllum fiskileit- artækjum. Magnús getur stillt dýptarmælinn sinn þannig að hann sér makrílinn vel. Makríllinn fer ekki niður fyrir 30 faðma (55 metra). Magnús er með rúllurnar stilltar á 20 metra dýpi, þær hífa og slaka sjálfkrafa. Hann lætur bátinn reka á meðan hann veiðir. Aflinn losnar sjálfkrafa af krókunum og fer eftir rennum í ker með krapa- blöndu, það er blöndu af salti, sjó og ís. Hitinn í blöndunni er við frost- mark og aflinn snöggkólnar við að lenda í kerunum. Kaupandi aflans af Manga á Búð- um SH er Stormur Seafood í Hafn- arfirði. Þar er aflinn unninn til manneldis. Aflinn er sendur suður í Hafnarfjörð á hverjum degi enda mega ekki líða meira en 36 klukku- stundir frá því að hann veiðist þar til hann er kominn í vinnslu. Magnús kvaðst vera þokkalega ánægður með verðið sem hann fær en sagði að það mætti alveg vera hærra. „Það verða víst allir að lifa á þessu,“ sagði Magnús. „Þetta lagast þegar sólin kemur“  30-40 krókabátar á makrílveiðum við utanvert Snæfellsnes  Vonast til að veiðin glæðist með hlýind- unum  Aflinn getur verið ævintýralegur þegar makríllinn gefur sig  Fékk 3,5 tonn á 20 mínútum Morgunblaðið/Alfons Finnsson Mangi á Búðum SH Á bátnum eru fimm sjálfvirkar rúllur og 45 krókar á hverjum slóða. „Almennt hefur makrílveiðin gengið mjög illa, mikið um keyrslur og olíukostnaður hár. Veiðarnar eru langt í frá að standa undir sér eins og staðan er núna, en þetta getur breyst hratt,“ sagði Örn Pálsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, um makríl- veiðar krókabátanna. Örn sagði það vera áhyggju- efni hve miklu minna sé borgað fyrir makrílinn hér en í Noregi. „Við fáum þær upplýsingar að lágmarksverð á færaveidd- um makríl þar sé 12 norskar krónur fyrir kílóið eða 240 ís- lenskar krónur. Hérna hefur verðið verið 80-90 krónur á kíló. Þetta er eitthvað sem verð- ur að skoða,“ sagði Örn. Hann sagði að bolfiskverð hefði verið mjög sambærilegt hér og í Nor- egi og stundum jafnvel hærra hér en þar. Örn taldi að ástæðan fyrir lágu makrílverði geti verið sú að Íslendingar séu nýbyrjaðir að bjóða færaveiddan makríl til sölu og þurfi að vinna betur í markaðsmálunum. Mun hærra verð í Noregi MAKRÍLVEIÐIN HEFUR GENGIÐ TREGLEGA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.