Morgunblaðið - 25.07.2013, Side 21

Morgunblaðið - 25.07.2013, Side 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2013 Rækta líkama og sál Mennirnir eru blessunarlega misjafnir og meðan sumir nýta góðviðrið til að hreyfa sig eða æfa íþróttir á Klambratúninu kjósa aðrir að slaka á og lesa í rjómablíðunni. Kristinn Alþingi gegnir fjöl- þættu hlutverki. Þar liggur löggjafarvaldið og fjárveitingarvaldið. Á síðari árum hefur markvisst verið unnið að því að efla eftirlits- og aðhaldshlutverk þingsins. Í kjölfar efnahagshrunsins hafa menn í auknum mæli beint sjónum að þess- um þætti í starfi Alþingis og eru flestir sammála um að hann beri að efla. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Með breytingu á lögum um þing- sköp Alþingis 2011 var sett á lagg- irnar stjórnskipunar- og eftirlits- nefnd Alþingis. Í 13. gr. þingskapa segir að nefndin skuli „hafa frum- kvæði að því að kanna ákvarðanir einstakra ráðherra eða verklag þeirra sem ástæða þykir til að at- huga á grundvelli þess eftirlits- hlutverks sem Alþingi hefur gagn- vart framkvæmdarvaldinu“. Þá segir einnig í greininni að stjórn- skipunar- og eftirlitsnefnd leggi mat á og geri „tillögu til Alþingis um hve- nær rétt er að skipa rannsókn- arnefnd, sbr. lög um rannsókn- arnefndir. Nefndin tekur skýrslur slíkrar nefndar til umfjöllunar og gefur þinginu álit sitt um þær og gerir tillögur um frekari aðgerðir þingsins.“ Í greinargerð er þetta áréttað: „Nefndin skal í senn fjalla um þing- mál sem falla undir málefnasvið hennar og hafa ríka frumkvæð- isskyldu um eftirlit Alþingis með framkvæmdarvaldinu.“ Réttur minnihluta nefndarinnar til að taka upp mál er tryggður. Þá er þess að geta að skýrslur undirstofnana Al- þingis, Ríkisend- urskoðunar og emb- ættis umboðsmanns, koma til kasta stjórn- skipunar- og eftirlits- nefndar, aðrar en skýrslur Ríkisend- urskoðunar um fram- kvæmd fjárlaga sem verða til umfjöllunar í fjárlaganefnd. Tilkynn- ingar umboðsmanns um hugsanlega mein- bugi á lögum skulu ber- ast nefndinni til um- fjöllunar og tillögur um skipun rannsóknarnefndar þingsins koma þar til umfjöllunar. „Enn fremur má búast við því að frumkvæðisathugun nefndarinnar sjálfrar geti leitt til þess að hún geri tillögu um að skipa rannsóknarnefnd í máli sem hún hefur haft til umfjöllunar.“ Þessar breytingar á þingsköpum Alþingis komu í kjölfar skýrslu rannsókn- arnefndar Alþingis um fall bank- anna og voru þær tíundaðar í áliti þingmannanefndarinnar, sem fór yf- ir skýrsluna. Þar var lögð áhersla á að efla eftirlitshlutverk Alþingis. Það segir sína sögu um skilning manna á hlutverki þessarar nefndar að eðlilegt þykir að þingmaður úr stjórnarandstöðu skuli gegna for- mennsku í henni. Það er í anda hlut- verks nefndarinnar um aðhald. Lög um rannsóknarnefndir Alþingis Um sama leyti og þessar breyt- ingar voru gerðar á þingsköpum samþykkti Alþingi lög um rannsókn- arnefndir í júní 2011. Í 1. gr. þeirra laga segir að forseti Alþingis skipi rannsóknarnefnd „ef Alþingi sam- þykkir ályktun þar um til þess að rannsaka mikilvæg mál sem almenn- ing varða. Í tillögu til ályktunar skal kveðið á um hvað rannsaka á, hvern- ig haga skal rannsókninni og um fjölda nefndarmanna. Ef tillaga um skipan rannsóknarnefndar kemur ekki frá þeirri þingnefnd sem fer með eftirlit Alþingis gagnvart fram- kvæmdarvaldinu skal vísa henni til þeirrar nefndar til athugunar og skal nefndin gefa þinginu álit sitt um hana áður en greidd eru atkvæði um tillöguna við síðari umræðu.“ Og í 5. gr. segir að meginhlutverk hennar sé „að afla upplýsinga og gera grein fyrir málsatvikum í tilteknu máli … en einnig getur nefndin í skýrslu sinni gert tillögu um breytingu á lög- um, reglugerðum eða stjórnsýslu- framkvæmd eftir því sem rann- sóknin gefur tilefni til“. Lagaramminn um eftirlitshlutverkið Loks má geta þess að í þeim víð- tæku breytingum á þingsköpum sem voru gerðar vorið 2011 var settur inn sérstakur kafli í þingsköpin um eft- irlitsstörf Alþingis. Þar var safnað saman þeim ákvæðum sem fyrir voru í þingsköpum en jafnframt settar inn fjórar nýjar greinar (49.- 52. gr.) þar sem eftirlitshlutverkið er áréttað og skilgreint, fjallað um hvað sé „opinbert málefni“, um upp- lýsingaskyldu ráðherra, aðgang að gögnum og meðferð trúnaðarmála. Þannig er ramminn sem nú hefur verið settur í lögum um eftirlits- hlutverk Alþingis. Allt byggist þetta á þeirri meginhugmynd sem fram kemur í stjórnarskránni og flest lýð- ræðisríki byggja á, þ.e. að það sé eitt af helstu verkefnum þjóðþingsins að hafa eftirlits- og aðhaldshlutverk gagnvart stjórnvöldum, hinni póli- tísku forustu í landinu. Fyrsta skýrslan Nú er fram komin fyrsta skýrslan sem gerð hefur verið eftir þessar breytingar og byggist á lögunum um rannsóknarnefndir. Hún er um Íbúðalánasjóð. Miklu skiptir því að menn vandi sig við meðferð hennar, sýni gát og fylgi þeim lagaramma sem búinn var til. Daginn sem skýrslan var afhent í Alþingishúsinu tilkynnti forseti þingsins á þingfundi að skýrslan væri komin og henni væri hér með vísað til stjórnskip- unar- og eftirlitsnefndar eins og lög segðu til um. Að beiðni forseta hélt nefndin þegar í stað fund og ákvað að hefja meðferð á skýrslunni þegar almenn umræða um hana hefði farið fram á Alþingi. Þær umræður fóru fram daginn eftir, miðvikudaginn 3. júlí, og þeim lauk síðdegis þann dag. Það sem fyrir liggur er því að stjórn- skipunar- og eftirlistnefnd Alþingis taki skýrsluna til efnislegrar með- ferðar, ræði þau efnisatriði sem þar koma fram og leggi að því búnu álit sitt fyrir Alþingi. Ég vil sérstaklega árétta að það er þessi nefnd Alþingis sem fer með skýrsluna en ekki aðrar nefndir, nema þá að beiðni stjórn- skipunar- og eftirlitsnefndar. Ljóst er að nefndin mun fá á sinn fund að- ila sem málinu tengjst og að öllum líkindum efna til opinna nefnda- funda. Viðbrögðin – réttur farvegur Viðbrögð við skýrslunni um Íbúðalánasjóð hafa orðið misjöfn. Þeir sem gagnrýni hefur beinst að hafa stigið fram og fundið að ýmsu í skýrslunni, talið að rangt væri farið með bæði staðreyndir og atvik mála, ályktanir séu rangar og útreikn- ingar o.s.frv. Talað hefur verið um að setja á fót „leiðréttingarnefnd“. Ég er á meðal þeirra sem hafa gagn- rýnt ýmislegt í skýrslu nefnd- arinnar. Gerði ég það í þingræðu um málið og einnig í opinberum skrifum. Ég tel að það hafi verið skynsamlegt að fá umræðu um skýrsluna á frum- stigi þótt eðli máls samkvæmt sé ekki hægt að búast við öðru en að umræðan yrði nokkuð yfirborðs- kennd á því stigi enda lítið ráðrúm til að skoða skýrsluna ofan í kjölinn. Hvað er framundan? Framundan er þetta: Stjórnskip- unar- og eftirlitsnefnd mun þegar að loknu sumarhléi nefnda Alþingis hefja umræður og athugun á skýrsl- unni. Nefndin mun fara yfir alla þætti skýrslunnar og kalla á þá sem henni þykir gagn í að tala við og fá skýringar. Til nefndarinnar eiga þeir að beina erindum sínum sem vilja finna að eða telja á sig hallað í skýrslunni. Þeim verður ýmist boðið að senda inn skrifleg erindi eða koma fyrir nefndina. Að sjálfsögðu verður þeim sem sæta gagnrýni í skýrslunni boðið að koma á fund nefndarinnar þar sem þeir gætu svarað gagnrýni og eftir atvikum teflt fram upplýsingum og mótrök- um. Ekki væri óeðlilegt að slíkir fundir væru opnir. Hér ríður á að vandað sé til verka og fylgt þeim lagafyrirmælum sem að framan eru rakin og þeirri meginhugsun sem stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hvílir á. Gera þarf skýran grein- armun á því hlutverki sem stjórn- skipunar- og eftitlitsnefnd hefur annars vegar lögum samkvæmt og hins vegar þeim póltíska lærdómi sem meirihluti Alþingis vill draga af málalyktum hverju sinni, í þessu til- viki aðkomu Íbúðalánasjóðs – og rík- isins almennt – að húsnæðismálum. Annars vegar er um að ræða rann- sókn á tilteknu máli, hins vegar stefnumótun af pólitískum toga. Eftir Ögmund Jónasson »Hér ríður á að vand- að sé til verka og fylgt þeim lagafyrir- mælum sem að framan eru rakin og þeirri meginhugsun sem stjórnskipunar- og eftir- litsnefnd hvílir á. Ögmundur Jónasson Höfundur er formaður stjórnskip- unar- og eftirlitsnefndar Alþingis. Alþingi í aðhalds- og eftirlitshlutverki – skýrslan um Íbúðalánasjóð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.