Morgunblaðið - 26.07.2013, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2013
við elskum skó
VELKOMINN Í BATA SMÁRALIND
Skoðið úrvalið á bata.is
Vertu vinur á
ÚTSALAENN MEIRI AFSLÁTTUR
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
Þetta Mintsnow dæmi byrj-aði sem heimasíða og síðanfór ég að halda viðburðitengda snjóbrettaíþrótt-
inni undir sama nafni. Ég kom síðan
fatalínu með snjó- og hjólabretta
keim á legg í vetur sem er í rauninni
bara áhugamál sem ég ætla að vinna
í betur þegar ég hef meiri tíma, jafn-
vel tengja hana einhvern veginn við
netþættina Og hvað, sem ég hef ver-
ið að vinna með Gauta,“ segir Davíð
Arnar Oddgeirsson sem hefur ásamt
rappanum Emmsjé Gauta og Arnari
Þór Þórssyni staðið á bak við þætt-
ina Og hvað, sem sýndir hafa verið á
veraldarvefnum í samstarfi við
Monitor og Burn.
Vellíðunarþættir
„Mig langaði að gera eitthvað
meira en að snúast bara í kringum
snjóbretti og þá kom Gauti einmitt
inn í spilið. Ég gerði svokallaðan
pilot-þátt í fyrra sem var fínn og við
ákváðum að gera meira út frá hon-
um. Við Gauti lögðumst þá í hug-
myndavinnu og skrifuðum handrit
að tólf þáttum. Við vorum komnir
langleiðina með að sýna þetta í sjón-
varpinu og taka þættina upp í sumar
en það fór því miður ekki í gegn og
það var lítið hægt að gera við því. Við
fórum hinsvegar og töluðum við
Vífilfell og Monitor og þau voru ekki
lengi að segja já við þessu. Þetta var
bara komið af stað viku seinna, net-
þættir í samstarfi við Burn og Moni-
tor. Þættirnir eru frumsýndir á
hverjum fimmtudegi á veraldar-
vefnum en svo er líka hægt að finna
alla þætti inni á youtube.com,“ segir
Davíð Arnar.
„Í þessum þáttum erum við að
framkvæma hugmyndir sem við
fáum og þær eru kannski ef til vill
svolítið óhefðbundnar. Við reynum
að fara út fyrir boxið og fáum mikinn
innblástur frá jaðarsporti og frá
Jackass-þáttunum. Þetta eru í raun-
inni bara svona vellíðunarþættir með
jaðarsportsívafi,“ segir kappinn.
Á snjóbretti í
Smáralindinni
Netþættirnir Og hvað hafa notið talsverðra vinsælda en þar má meðal annars sjá
snjóbrettakappa fara niður rúllustiga í Smáralindinni svo eitthvað sé nefnt. Davíð
Arnar Oddgeirsson, einn forsprakka þáttanna, segir stefnuna vera á sjónvarpið.
Djarfir Félagarnir hafa meðal annars farið í fallhlífastökk með FFF.
Bretti Það er ekki á hverjum degi sem farið er á snjóbretti niður rúllustiga.
Á snjóbretti í Smáralind
„Í þriðja þættinum, sem við
kölluðum Snjólabretti, þá fundum
við í rauninni upp á nýju jaðarsporti
þar sem iðkandinn er bæði á snjó-
brettinu og hjólabrettinu á sama
Tíundi áratugur tuttugustu aldar var
mörgum minnisstæður hvað tónlist
varðar. Sveitir á borð við Nirvana, The
Smashing Pumpkins, Backstreet Bo-
ys og Britney Spears áttu hug og
hjörtu allra auk þess sem evrópoppið
tröllreið öllu. Mörg þeirra laga sem
urðu hvað vinsælust á þessum tíma
voru svokölluð eins smells undur og
því gjarnan strembið að finna lögin á
vefsíðum á borð við youtube þar sem
fáir muna nafnið á flytjandanum.
Vefsíðan the90sbutton.com hefur
auðveldað mörgum þessa leit en þar
má með einföldum hætti hlusta á alla
helstu smelli áratugarins. Meðal
þeirra gimsteina sem þar er að finna
eru smellirnir Rhythm Is a Dancer
með Snap, Truly Madly Deeply með
strákabandinu Savage Garden, sum-
arsmellur ársins 1997, Bailando, með
belgísku evrópoppsveitinni Paradisio
og svona mætti endalaust telja
áfram. Ekki skemmir það fyrir að til
þess að fá næsta lag þá þarftu að
smella á andlitið á David Hasselhoff
en á því dansar sjálfur MC Hammer.
Vefsíðan www.the90sbutton.com
Nostalgía Finna má nokkur lög með meisturunum í Beastie Boys á síðunni.
Tíundi áratugurinn endurvakinn
Margt er um að vera í plötubúðinni
12 Tónum þessa dagana en hljóm-
sveitin Grísalappalísa mun stíga á
svið í verlsuninni í dag klukkan 18.
Fyrirtækið gaf einmitt út plötu
sveitarinnar, Ali, sem kom út fyrir
skömmu en hún hefur fengið ein-
róma lof gagnrýnenda. Tónleikarnir
verða einskonar upphitunarvið-
burður fyrir útgáfutónleika sveit-
arinnar sem verða svo haldnir á
miðvikudaginn í næstu viku á
skemmtistaðnum Faktorý. Aðgangur
í 12 Tóna er ókeypis en búðin er á
Skólavörðustíg í Reykjavík.
Endilega...
… sjáið Grísa-
lappalísu
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Forsprakki Gunnar Ragnarsson.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Hin árlega hjólreiðakeppni Gull-
hringurinn verður haldin 18. ágúst
næstkomandi við Laugarvatn. Í fyrra
tóku margir af bestu hjólreiðamönn-
um landsins þátt en lagt er upp
með að byrjendur jafnt sem reynd-
ari hjólamenn fái að njóta sín enda
eru einkunnarorð keppninnar „Allir
hjóla – allir vinna“.
Titill keppninnar er dreginn af
Gullna hringnum svokallaða, sem
ferðamenn sækja gjarnan, og verður
hjólað um uppsveitir Árnessýslu.
Meðal þess sem hjólreiðakapparnir
munu hjóla fram hjá er Geysir,
Brekkuskógur, Búrfell og Þingvellir.
Keppt verður í tveimur riðlum en
brautarlengdir riðlanna er misjafnar.
Braut fyrra riðilsins er 111 kílómetra
löng og liggur frá Laugarvatni, um
Geysi og Þingvelli og endar síðan
aftur á Laugarvatni. Braut síðari rið-
ilsins er heldur styttri en sú er 66
kílómetrar. Silfurhringurinn er síðan
opinn öllum og er hann 48 kílómetr-
ar.
Brautarveðlaun keppninnar verða
afar vegleg og verður öllum kepp-
endum boðið upp á kjötsúpu á
Laugarvatni að lokinni keppni.
Skráning fer fram á síðunni gull-
hringurinn.is.
Hjólað um uppsveitir Árnessýslu
Hjólreiðar Titill keppninnar er kenndur við Gullna hringinn svokallaða.
Allir hjóla og allir vinna