Morgunblaðið - 26.07.2013, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2013
BÆJARLIND 16 KÓPAVOGUR SÍMI 553 7100 WWW.LINAN.IS
OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 12 - 18
ORIGINALS
Sika . Design
Ársalir ehf fasteignamiðlun
533 4200 og 892 0667
arsalir@arsalir.is
Engjateigi 5, 105 Rvk
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
ÁRSALIR
FASTEIGNAMIÐLUN
533 4200
FASTEIGNASALA
FYRIRTÆKJASALA - LEIGUMIÐLUN
Vantar allar stærðir og gerðir eigna á skrá
.... Hafðu samband
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Enn er ekki vitað hvort tæknibilun
eða mistök lestarstjóra hafi valdið
því að lestin sem fór út af sporinu
með þeim afleiðingum að 80 manns
létust við borgina Santiago de
Compostela á norðvesturhluta Spán-
ar á miðvikudagskvöld var á rúm-
lega tvöföldum leyfilegum hámarks-
hraða þegar slysið varð. Hraðinn er
talin líklegasta orsök slyssins.
Annar stjórnenda lestarinnar hef-
ur viðurkennt að hafa verið á 190
km/klst. hraða og jafnvel meira. Há-
markshraðinn þar sem slysið átti sér
stað er 80 km/klst. Lestarstjórinn,
sem komst lífs af, var yfirheyrður af
lögreglu í gær. Sýnataka bendir ekki
til þess að hann hafi verið undir
áhrifum áfengis.
Dómari sem fer með rannsókn
slyssins vinnur nú að því að skoða
svarta kassa lestarinnar. Slysið er
versta lestarslys á Spáni frá árinu
1944. Fulltrúar ríkislestarfélagsins
RENFE fullyrtu að lestin hafi verið
yfirfarin morguninn fyrir slysið og
engin tæknileg bilun hafi orðið.
Auk hinna látnu eru tæplega 140
manns slasaðir, þar af 35 alvarlega.
Spænsk stjórnvöld lýstu í gær yfir
þriggja daga þjóðarsorg vegna
slyssins en í Galisíuhéraði, þar sem
slysið átti sér stað, stendur hún yfir í
sjö daga. Hátíðarhöld til heiðurs
heilögum Jakobi, verndardýrlingi
Spánar og lærisveininum sem San-
tiago-borg er nefnd eftir, áttu að
hefjast í gær en öllum hátíðar-
höldum var frestað.
„Tundurskeyti
ryks og hávaða“
Lestin var á leið frá höfuðborginni
Madrid til hafnarborgarinnar Ferrol
og voru 218 farþegar um borð auk
fjögurra starfsmanna. Hún er af
gerð lesta sem bæði geta gengið á
hraðlestarsporum og venjulegum.
Klukkuna vantaði um tuttugu mín-
útur í níu að staðartíma í fyrrakvöld
þegar hörmungarnar dundu yfir.
Lestin, sem var með átta farþega-
vagna, fór út af sporinu í krappri
beygju þegar hún var um 3-4 kíló-
metra frá aðallestarstöðinni í San-
tiago. Vagnarnir skullu á vegg af
miklu afli og hlóðust hver upp á ann-
an. Eldur kviknaði í nokkrum þeirra
í kjölfarið.
„Ég sá ógurlegt tundurskeyti
ryks og hávaða. Ég hugsaði að lestin
stefndi á mig og tók til fótanna,“ hef-
ur spænska blaðið El País eftir Mari,
sjónarvotti sem býr skammt frá
slysstaðnum. Fólk sem býr í ná-
grenninu flýtti sér margt á vettvang
með vatn, teppi og kodda til að reyna
að hlúa að fórnarlömbum slyssins og
draga þá sem voru fastir í flakinu út.
Líkin lágu eins og hráviði
Aðkoman á slysstað var hræðileg
að sögn vitna. Lík farþeganna lágu
eins og hráviði um brautarteinana
innan um flak lestarvagnanna.
Isidoro Castaño var einn nágrann-
anna sem kom fyrstur á vettvang.
Hann segir þá hafa reynt að draga
fólk út um gluggana og notað járn-
plötur úr lestinni sem sjúkrabörur
undir það. Þeir hafi haldið áfram að
aðstoða eftir að hjálparlið kom á
staðinn.
„Þeir báðu okkur um að halda
uppi dropateljurum og stundum
báðu þeir okkur [um að halda fólki
vakandi]. Ég talaði við það svo það
sofnaði ekki. Svo það dæi ekki,“ seg-
ir Castaño.
Aðstandendur farþeganna þurftu
sumir að bíða á milli vonar og ótta
allt til klukkan 22 á staðartíma í gær
eftir að yfirvöld staðfestu nöfn allra
þeirra sem létust.
Stærði sig af hraðakstri í fyrra
Lestarstjórinn, sem er 52 ára og
hefur starfað í 30 ár í faginu, var í
vörslu lögreglu í gær en hafði þó
ekki verið handtekinn. Samkvæmt
heimildum hafði hann um ársreynslu
af því að aka þessa sömu leið.
El País sagði frá því að upptaka
væri til af samskiptum lestarstjór-
ans við lestarstöðina áður og eftir að
slysið átti sér stað.
„Við erum mannleg! Við erum
mannleg!“ endurtók hann í sífellu
eftir að lestin fór út af sporinu. „Ég
vona að enginn hafi dáið því að það
mun vega á samvisku minni,“ á hann
að hafa sagt.
Þá viðurkenndi hann á upptökunni
að lestin væri á 190 km/klst. hraða
þegar hún fór inn í krappa beygjuna.
Hann sagði þó ekki hvers vegna lest-
in væri á svo miklum hraða. Spænsk-
ir fjölmiðlar birtu í gær skjáskot af
mynd sem lestarstjórinn birti á
Facebook-síðu sinni í mars í fyrra.
Hún sýnir hraðamæli lestar sem
bendir til að hún hafi verið á 200 km/
klst. Í ummælum við myndina virðist
AFP
Stórslys Allir átta vagnar lestarinnar fóru út af sporinu í slysinu og rákust utan í vegg. Eins og sjá má á myndinni
var áreksturinn svo harkalegur að einn vagnanna kastaðist yfir öryggisgirðingu sem girðir af járnbrautarsporin.
Þeyttist af
sporinu á
ofsahraða
Minnst 80 manns létu lífið í versta
lestarslysi í áratugi á Spáni Lestin
var á tvöföldum leyfilegum hámarks-
hraða í krappri beygju þegar slysið varð
hann stæra sig af því að aka lestinni
svo hratt. Facebook-síðunni var lok-
að síðar um daginn í gær.
Standi aldrei einir
Mariano Rajoy, forsætisráðherra
Spánar, fór í vettvangsferð um slys-
staðinn í gærdag, en hann er fæddur
í borginni. „Dagurinn í dag [í gær] er
mjög erfiður. Fyrir Santiago-búa
eins og sjálfan mig er þetta sorg-
mæddasti dagur postulans í lífi
mínu,“ sagði Rajoy við fjölmiðla í
gær. Hann lofaði íbúum Galisíu að
þeir stæðu aldrei einir.
Lestarslysið á Spáni
Heimildir: AFP/spænskir fjölmiðlar
Lest sem var í þann veginn að koma til Santiago de Compostela
fór út af sporinu á miðvikudag og fjöldi manns lést
Av. de Lugo
Farþegar: 218
Starfsmenn: 4
Lestarstöðin í
Santiago de
Compostela
Av. de
Santiago
de Cuba
Autoestrada do Atlantico
1 km
MADRID
SPÁNN
Ferrol
250 km
FRAKKLAND
Santiago de Compostela
Til
Ferrol
Frá
Madrid
Sjúkrahús
Slysstaðurinn
20:40 á staðartíma
miðvikudag
Leið lestarinnar
Skannaðu kóðann
til að sjá nýjustu
fréttir um slysið