Morgunblaðið - 29.08.2013, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 2 9. Á G Ú S T 2 0 1 3
200. tölublað 101. árgangur
–– Meira fyrir lesendur
FYLGIR MEÐ
MORGUNBLAÐINU
Í DAG
FÓTBOLTINN
SAMEINAR
FÓLKIÐ
HVERS VIRÐI
ER GÓÐUR
STARFSANDI?
SÝNIR SKARTGRIPA-
LÍNU OG LEIKUR Í
VERKI GUÐBERGS
VIÐSKIPTABLAÐ ERLING JÓHANNESSON 10SNÆFELLSBÆR 22
ÁRA
STOFNAÐ
1913
Landsbankinn hefur fengið til sín
alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækið
FTI Consulting til að aðstoða
bankann í að endursemja um 300
milljarða erlendar skuldir við
kröfuhafa gamla Landsbankans
(LBI).
Hreiðar Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Fjármála hjá Lands-
bankanum, staðfestir þetta í sam-
tali við Morgunblaðið. Samkvæmt
heimildum munu slitastjórn LBI
og Landsbankinn halda fund í
næsta mánuði þar sem stjórn-
endur Landsbankans gera nánar
grein fyrir því af hverju bankinn
telur nauðsynlegt að lengja í er-
lendum skuldum bankans. Að
sögn þeirra sem þekkja vel til
stöðu mála eru væntingar um að í
kjölfar þess fundar verði hægt að
hefja undirbúning að formlegum
samningaviðræðum. hordur@mbl.is
»Viðskipti
Landsbankinn ræður erlendan ráðgjafa
til að aðstoða við að semja um skuldir
Morgunblaðið/Kristinn
Skuldir Að óbreyttu þarf bankinn að
greiða 340 milljarða 2014-2018.
Stjarnan tryggði sér í gærkvöldi Íslandsmeistaratit-
ilinn í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu með stórsigri á
Val, 4:0, á heimavelli sínum í Garðabæ. Enn eru fjórar
umferðir eftir af Íslandsmótinu en Stjarnan hefur borið
höfuð og herðar yfir önnur lið í deildinni og er með 14
stiga forskot. Á myndinni fagna Stjörnustúlkur öðrum
Íslandsmeistaratitli félagsins í gær en bikarinn fá þær
afhentan síðar. » Íþróttir
Stjörnustúlkur langbestar í sumar
Morgunblaðið/Golli
Stjarnan Íslandsmeistari kvenna í knattspyrnu í ár eftir leikina í gærkvöldi
Stefnt að því að hefja fram-
kvæmdir við uppbyggingu nýs
hverfis við Vesturbugt í Reykjavík á
næsta ári samkvæmt deiliskipulagi.
Ljúka á framkvæmdum á árunum
2016-2017. Þetta staðfestir Dagur B.
Eggertsson, formaður borgarráðs.
Við gamla slippsvæðið mun rísa
bæði íbúðar- og atvinnuhúsnæði, og
er gert ráð fyrir einu bílastæði á
hverja 100 fermetra í atvinnu-
húsnæði og 0,8 stæði á hverja íbúð.
Stæðin eru öll neðanjarðar. »16
Hundruð íbúða rísa
við gamla Slippinn
Hverfi Mikil uppbygging er á slippsvæðinu.
Tölvumynd/Alark arkitektar
Samherji á Akureyri hagnaðist
um 15,7 milljarða króna á árinu
2012. Árið áður nam hagnaðurinn
8,8 milljörðum króna. Þá nema
greiðslur fyrirtækja Samherja til
ríkissjóðs 3,3 milljörðum króna.
„Afkomutölur Samherja og er-
lendra dótturfélaga fyrir árið 2012
eru góðar og betri en ég gerði mér
vonir um,“ segir Þorsteinn Már
Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Ríflega helmingur tekna Samherja
kemur erlendis frá. »Viðskipti
Ljósmynd/Karl Eskil Pálsson
Samherji Nýja skipið, Anna EA, í höfn.
Hagnaðist um 15,7
milljarða króna
Samtök atvinnulífsins (SA) og ASÍ
líta verðbólguþróunina hér á landi
ólíkum augum. SA segja verðbólg-
una vera á niðurleið en ASÍ telur
hana hafa aukist. „Sex mánaða takt-
ur hennar er mun minni en verið hef-
ur og forsendur þess að svo geti
áfram verið er skynsamleg lending í
kjaraviðræðum,“ segir Þorsteinn
Víglundsson, framkvæmdastjóri SA,
en hann segir sex mánaða verð-
bólguhraða vera hinn minnsta frá í
desember 2012.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir að meiri verðbólga hafi áhrif á
kjarabaráttu í haust. „Þetta eru
mjög alvarleg tíðindi en verðbólgan
verður ekki skýrð með launahækk-
unum heldur t.d. með veikri stöðu
krónunnar,“ segir Gylfi. Spurður um
mismunandi túlkun ASÍ og SA segist
hann fagna nýjum tón hjá SA. „Fyr-
irtæki hugsa sig kannski tvisvar um
áður en þau velta öllum sköpuðum
hlutum yfir á launafólk.“
mariamargret@mbl.is »9
Ólík sýn ASÍ og SA
á þróun verðbólgu
Sögð hafa áhrif á kjarabaráttu
Björn Már Ólafsson
bmo@mbl.is
„Þessar upplýsingar eru ekki til
þess ætlaðar að birta opinberlega,“
segir Svanhildur María Ólafsdóttir,
formaður Skólastjórafélags Íslands
um niðurstöður lesskimunarkönn-
unar sem
framkvæmd
var á nem-
endum í
grunnskólum
í Reykjavík.
„Skólarnir
taka þessar
niðurstöður
alvarlega,
hvernig sem
þær kunna
að vera. Mér
finnst þetta
vera van-
traust á
skólana, ef
fólk telur að
við séum
ekki að vinna úr þeirri skimun sem
við setjum börnin okkar í,“ segir
Svanhildur.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir,
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í skóla-
og frístundaráði Reykjavíkur, segir
það ekki endilega ákjósanlegt að
birta árlega niðurstöður úr slíkum
könnunum vegna sveiflna sem
kunna að vera milli árganga. „Hins
vegar er ég talsmaður þess að birta
fimm ára meðaltöl í slíkum könn-
unum,“ segir hún.
Þorbjörg segir Íslendinga al-
mennt oft vera hrædda við það að
skoða tölfræðiupplýsingar. „Ég hef
enga trú á því að við birtingu slíkra
gagna muni verða einhvers konar
uppþot eða bakslag. Ég held frekar
að foreldrarnir muni leggjast á eitt
við að styðja við skólana.“
Birting
verði ekki
opinber
Borgarfulltrúi vill
fimm ára meðaltal
Lesskimun
» Þarf að vinna
betur úr töl-
fræðiupplýs-
ingum.
» Skólarnir
eiga sjálfir að
vinna úr nið-
urstöðum.
» Skólar sagðir
vera of mis-
munandi.
MBirting væri vantraust »4