Morgunblaðið - 29.08.2013, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 29.08.2013, Blaðsíða 40
40 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2013 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú ert á báðum áttum um það hvort þú eigir að bjóða í ákveðinn hlut. Dá- læti þitt á fallegum stöðum og hlutum vex til muna. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ert að springa úr krafti og bjart- sýni á framtíðina og ekkert fær stöðvað þig. Reyndu að líta sem best út og láttu ekkert verða til að skyggja á gleði þína. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Ögrun af þinni hálfu gæti komið þér í klandur. Sestu nú niður og farðu vandlega í gegnum málin og þá mun renna upp fyrir þér ljós sem bendir þér á lausn- ina. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Oft leitum við sannleikans langt yf- ir skammt. Farðu á staði sem þú hefur ekki áhuga á. Og mundu að oft er í holti heyr- andi nær. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það skiptir engu hvort þú hefur rétt eða rangt fyrir þér – bara að þú trúir. Allt í einu er umburðarlyndi og samúð ofarlega á listanum hjá þér. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þér er mikið niðri fyrir og þarft nauðsynlega að fá útrás fyrir tilfinningar þínar. Sýndu þolinmæði og fylgdu þeim eft- ir í rólegheitunum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú getur búist við miklu álagi í starfi í dag. Hvernig væri að blanda geði, fara í partí, daðra og njóta þess að vera sam- vistum við aðra. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú ert meistari dægrastytting- arinnar sem er frábært þegar þér leiðist (þótt sjaldan sé). Ef þér finnst gengið á hlut þinn þá er það örugglega rétt hjá þér. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert ekki eins og þú átt að þér og ættir að vera heiðarlegur við sjálfa/n þig og aðra. Reyndu að koma eigin málum í lag. 22. des. - 19. janúar Steingeit Ást og leikur eru þér efst í huga í dag. Gefðu þér því tíma til að kryfja málin til mergjar. Einhver gerir þér greiða sem þú kannt mjög vel að meta. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Allar aðstæður hafa sínar slæm- ur hliðar. Vinnufélagarnir velta því fyrir sér hvort til sé nokkuð sem þeir geta ekki. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú átt það til að greina hlutina í öreindir. Þú hefur átt erfitt með að einbeita þér í vinnunni að undanförnu og þarft að beita þig meiri aga. Illu er best af lokið. Það er illt að varast ritvillur,þegar maður kann vísur utan að. Þannig misritaðist í Vísnahorni á þriðjudag „hestur“ fyrir „hund- ur“ í einu tilbrigðanna við ljósmynd Rax af Landmannaafrétti, en auð- velt er að lesa í málið. Rétt er erind- ið svona: Þar sem þjóðin í þúsund ár reyndi að þrauka og gætti síns fjár engin svöng sést þar kind á svarthvítri mynd aðeins sandauðnir, hundur og klár. Ólafur Stefánsson skrifar á Leir- inn 25. ágúst, morguninn eftir Menningarnótt: Nú rís af beði rósafingruð Gyðja og réttir hönd að þreyttu jarðarbarni sem í alla nótt var úti á lífsins hjarni og enginn til að leiða það né styðja. Horfinn er úr lofti glasaglaumur, gamlir dansar hættir eru að óma. Augað fangar flösku græna, tóma, freklega er hausinn sár og aumur. Því sver við allt að sækja ei slíka gleði, (sílikon fer illa í hröðum dansi). Af ósiðum er alþýðunni vansi, við enda dags er sálarheill að veði. (end of the day) Ármann Þorgrímsson skrifar: Svona er að eldast: Truflast geð og tapast aur treysta varla nokkrum má mér líður eins og ljósastaur sem löngu er búið að slökkva á. Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir tilbrigði við sama stef: Ég var áður glæstur gaur en glöp og ellin seig á: ég líkist gömlum ljósastaur sem loðinn hundur meig á. Þessi vísa kallast á við limru Kristjáns Karlssonar: Ég festi ekki blíðan blund fyrir bölvaðri rökfestu um stund. Loks tókst mér að sofna, fann samhengi rofna og símastaur pissaði á hund. Sem aftur rifjar upp fyrir mér þessa vísu eftir Jóhann Magnús Bjarnason (vona að ég muni hana rétt!): Úti við gangstétt reifst hundur við hund með helvítis óskapar læti. Og þar kom Jón Bjarnason þéttur í lund og þokaði ei hendi eða fæti. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af þreyttu jarðarbarni, símastaur og hundi Í klípu „ÉG HEF VERIÐ LÁTINN HANGA ÁN ÞESS AÐ FÁ BORGAÐ Í ÞRJÁ DAGA.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „TÖLURNAR SÝNA AÐ ÞAÐ ERU 68% MINNI LÍKUR Á AÐ STÆRRI LÖMPUNUM VERÐI STOLIÐ.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vilja byrja alveg upp á nýtt. ÁRA BRÚÐKAUPS- AFMÆLI ÞAÐ GETUR VERIÐ MJÖG HÆTTULEGT AÐ KLIFRA UPP ÞENNAN STIGA! ERTU MEÐ STIGA INNI SEM VIÐ GETUM NOTAÐ? AHH! ÞETTA TRÉ FÉLLNÆSTUM ÞVÍ Á MIG! ÉG ER EKKERT SMÁHEPPINN KÖTTUR, HA, JÓN? JÓN? Víkverji tók sig til um daginn ogbauð fjölskyldunni upp á gamla kvikmynd eftir Alfred Hitchcock í heimabíóinu. Myndin heitir Vertigo eða Svimi og er með James Stew- art og Kim Novak í aðalhlut- verkum. Stewart er lögreglumaður, sem neyðst hefur til að setjast í helgan stein vegna þess að loft- hræðsla hefur gert honum ókleift að sinna skyldustörfum. Gamall kunningi skýtur upp kollinum og fær hann til að taka að sér að fylgj- ast með konu sinni, sem virðist ekki ganga heil til skógar. Víkverja fannst myndin hin mesta skemmt- un. Hitchcock var hugmyndaríkur leikstjóri og í þessari mynd beitir hann ýmsum brögðum til þess að hafa áhrif á áhorfandann. Vitaskuld ber myndin, sem er frá sjötta ára- tug liðinnar aldar, því vitni að þá var tími tölvubrellnanna ekki runn- inn upp. Víkverja fannst það frekar kostur en galli. Það vakti hins veg- ar athygli Víkverja að ungviðinu í fjölskyldunni fannst myndin hæg, jafnvel langdregin. x x x Á tölvuöld duga engin vettlinga-tök, hlutirnir verða að ganga hratt fyrir sig. Mótsögnin er þó sú að á tímum hraðans verða kvik- myndir alltaf lengri og lengri og teygja sig margar hátt á þriðja tímann. Hringadróttinssaga var sögð í þremur myndum sem voru vel rúmir tveir tímar hver og þurfti þó ýmsu að sleppa. Hobbitinn er smásaga í samanburði, en þó dugir ekki minna en þrjár myndir til að afgreiða þá bók og sú fyrsta var í það minnsta engin stuttmynd. En þar eru brellurnar við völd. x x x Hitchcock kom oftast fram ímyndum sínum, stuttlega þó. Þegar á leið ferilinn voru áhorf- endur farnir að bíða þess í eft- irvæntingu að hann skyti upp koll- inum. Fannst honum þetta draga athygli frá söguþræðinum og var því farinn að koma fram snemma til að áhorfendur gætu einbeitt sér að því sem máli skipti. Ingrid Bergman lék í nokkrum Hitchcock- myndum. Hún lýsti honum vel þeg- ar hún sagði að hann væri sóma- bóndi, sem framleiddi gæsahúð. víkverji@mbl.is Víkverji Hallelúja. Lofa þú Drottin, sála mín. (Sálmarnir 146:1)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.