Morgunblaðið - 29.08.2013, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 29.08.2013, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2013 Byltingarkenndar rannsóknir sýna að lífvirka efnið í brokkolí, sulforaphane, hindrar hrörnun fruma og stuðlar að endurnýjun þeirra - bæði í heilanum og öllum líkamanum Getur haft frábær áhrif á heilsu og útlit • Hjálpar líkamanum að halda heilbrigði Stuðlar bæði að fyrirbyggjandi heilsuvernd og uppbyggjandi áhrifum til bættrar heilsu • Spornar gegn ótímabærri öldrun – á líkama og sál Getur hægt á öldrunarferlinu og dregið úr sýnIlegum áhrifum öldrunar á útlitið Einföld leið til að njóta þess áhrifaríkasta úr brokkolí - sulforaphane ... náttúrulega yngri ! Verndaðu frumurnar þínar ! Brokkolítöflurnar - Cognicore® Daily Cognicore byggir á sulforaphane úr lífrænt ræktuðum brokkolí-spírum að viðbættu túrmeric og selenium Fást í heilsubúðum og apótekum brokkoli.is Tvær á d ag! Humarhúsið 101 Reykjavík · humarhusid@humarhusid.is Amtmannsstíg 1 sími: 561·3303 Þegar njóta á kvöldsins... Bónus reyndist vera með lægsta verðið á matarkörfunni þegar verð- lagseftirlit Alþýðusambands Íslands kannaði verð í lágvöruverðsverslun- um og stórmörkuðum á höfuðborg- arsvæðinu á mánudaginn. Matarkarfan kostaði 13.376 krón- ur hjá Bónus en rúmar 16.400 krón- ur hjá Samkaupum-Úrvali og Nóa- túni. Það er 23% munur. Krónan var með næstódýrustu matarkörfuna á 14.700 krónur, sem er 10% hærra verð en hjá Bónus. Á eftir Krónunni kom Iceland með matarkörfu sem kostaði 14.785 krón- ur, 11% meira en hjá Bónus. Hjá Nettó kostaði karfan 14.837 krónur, sem er einnig 11% hærra verð en hjá Bónus. Matarkarfan hjá Hagkaupum var 21% dýrari en ódýrasta karfan og matarkarfan hjá Víði 20% dýrari en hjá Bónus. Verðmunur á soðningu Af einstaka vörum í matarkörf- unni var mestur verðmunur á ódýr- ustu rauðu eplunum sem kostuðu 489 krónur kílóið hjá Víði en 186 krónur kílóið hjá Nettó. Verðmun- urinn er 303 krónur eða 163%. ASÍ segir að ekki sé víst að verið sé að bera saman epli af sama gæðaflokki, enda merki verslanirnar það ekki all- ar sérstaklega. Mikill verðmunur var einnig á ferskum ýsuflökum, sem kostuðu 1.978 krónur kílóið hjá Nóatúni en 1.298 krónur hjá Bónus. Verðmun- urinn var 680 krónur eða 52%. Nýmjólk kostaði það sama hjá öll- um verslunum eða 120 krónur lítr- inn. Af öðrum vörum í könnuninni má nefna Lambhagasalat í potti, sem var dýrast 329 krónur stykkið hjá Hagkaupum en ódýrast 275 krónur hjá Bónus, verðmunurinn var 54 krónur eða 20%. Í matarkörfu ASÍ voru 34 almenn- ar neysluvörur til heimilisins, t.d. mjólkurvörur, morgunkorn, græn- meti, kjöt, drykkjarvörur, ásamt ýmsum pakkavörum, dósamat og fleiru. Í könnuninni var skráð niður hillu- verð vöru eða það verð sem neytand- inn hefur upplýsingar um inni í búð- inni að hann eigi að greiða fyrir vöruna. Könnunin var gerð á sama tíma í Bónus, Krónunni, Nettó, Fjarðar- kaupum, Iceland, Nóatúni, Víði, Samkaupum-Úrvali og Hagkaupum. Lægsta verðið í Bónus í könnun ASÍ  23% munur á verði á dýrustu og ódýrustu matarkörfunni  163% munur á verði milli verslana á rauðum eplum Morgunblaðið/Kristinn Mikill verðmunur Mikill munur getur verið á vöruverði milli verslana. Matarkarfa ASÍ Heimild: ASÍ 18.000 16.000 14.000 12.000 10.000 8.000 6.000 4.000 2.000 0 Verð á matarkörfu í könnun sem gerð var mánudaginn 26. ágúst 13.376 14.700 14.785 14.837 15.552 16.089 16.134 16.431 16.460 Rauði krossinn á Íslandi hefur haf- ið söfnun fyrir neyðaraðstoð í Sýr- landi og fyrir sýrlenska flótta- menn. Alþjóða Rauði krossinn vinnur nú að því að setja upp full- komið tjaldsjúkrahús í flótta- mannabúðum við landamæri Sýr- lands í norðurhluta Jórdaníu en talið er að um 130.000 flóttamenn séu á svæðinu. Rauði krossinn á Ís- landi styður verkefnið og mun að öllum líkindum senda sérfræðinga til starfa við sjúkrahúsið á næstu mánuðum. Hægt er að styrkja hjálparstarfið með því að hringja í söfnunarsíma Rauða krossins 904-1500 og þá bæt- ast 1.500 kr. við næsta símreikning eða greiða með kreditkorti á vef- síðunni raudikrossinn.is. Rauði krossinn á Íslandi hefur á liðnu ári varið tæpum 60 milljónum króna til hjálparstarfs í Sýrlandi og vegna flóttamanna þaðan. Á flótta Milljónir manna hafa flúið stríðs- átökin í Sýrlandi undanfarin misseri. Safnar fyrir sýr- lenska flóttamenn Guðmundur Arn- laugsson, fyrsti rektor Mennta- skólans við Hamrahlíð, fæddist í Reykja- vík hinn 1. sept- ember 1913. Í til- efni aldar- afmælisins verður efnt til hátíðar í skóla- húsi MH um helgina, hraðskákmóts á laugardegi og málþings á sunnu- degi. Báðir atburðir hefjast kl. 14. Minningarskákmótið er öllum op- ið og gert er ráð fyrir að flestir sterkustu skákmenn landsins taki þátt í því. Á málþinginu verður í stuttum erindum fjallað um framlag Guð- mundar. Málþing og hrað- skákmót í MH Guðmundur Arn- laugsson Sjötti kröfufundur samstöðuhóps öryrkja og aldraðra verður í dag klukkan 13-14 við Tryggingastofn- un ríkisins, Laugavegi 114. Fram kemur í tilkynningu að fluttar verði framsöguræður og Grátkórinn taki lagið. Lögð er áhersla á kröfu um milliliðalaus samskipti við stjórnvöld um taf- arlausar úrbætur í málefnum líf- eyrisþega. Krefjast úrbóta í málum lífeyrisþega STUTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.