Morgunblaðið - 29.08.2013, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 29.08.2013, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2013 Hamraborg 9 | sími 564 1451 | www.modurast.is | opið 10-18 virka daga og 12-16 laugardaga VELKOMIN Á HAMRABORGARHÁTÍÐ 2013 Laugardaginn 31. ágúst kl 11-16 Léttar veitingar og útsölulok Vertu velkomin! Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is Opið virka daga kl. 10-18 laugard. 11-16 Sófinn þinn útfærður eftir þínum óskum • Gerð - fleiri en 900 mismunandi útfærslur • Stærð - engin takmörk • Áklæði - yfir 3000 tegundir VIÐ ERUM FLUTT Á BÍLDSHÖFÐA 18 Torino Milano Mósel Landsins mesta úrval af sófum og sófasettum Endalausir möguleikar í stærðum og áklæðum Rín Lux Valencia RomaRín 20-4 0% AFSL ÁTTU R AF VÖL DUM SÝN INGA REIN TÖK UMSteinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Rekast má á Íslendinga við ýmsar aðstæður víða um Kanada. Krist- inn Vilhjálmur Traustason býr til dæmis á Gimli í Manitoba en er flutningabílstjóri hjá fyrirtæki sem er með höfuðstöðvar í Saskatoon í Saskatchewan, og ekur með vörur fyrir stórverslun Costco á milli Winnipeg og Maple Creek í Sas- katchewan. Ýmist tvær eða þrjár ferðir vikulega. „Ég hef unnið við þetta í um tuttugu mánuði,“ segir Kristinn og bætir við að hann hafi viljað reyna eitthvað nýtt eftir að hafa verið bílstjóri hjá Vörumiðlun ehf. á Sauðárkróki í um áratug. Kristinn segir að Gerður Gylfa- dóttir, eiginkona hans, hafi valið að flytja til Gimli eftir að hafa lesið viðtal við Helga Unnar Val- geirsson í Morgunblaðinu fyrir tæplega tveimur árum, en Helgi flutti með fjölskyldu sinni til Gimli skömmu áður. Hún hafi haft sam- band við Helga og Sigríði Elínu Guðjónsdóttur, eiginkonu hans, á fésbókinni og í kjölfarið hafi heimamennirnir Grétar Axelsson og Sveinn Arnbjörnsson liðsinnt þeim. „Ég var búinn að vera hérna úti í þrjá til fjóra mánuði og aldrei komið til Gimli þegar við ákváðum að flytja hingað,“ segir hann. Erfitt fyrst Það eru yfirleitt viðbrigði að flytja í ókunnugt umhverfi. „Þetta var erfitt fyrst og ekki það sem við bjuggumst við,“ rifjar Kristinn upp en leggur áherslu á að þau hafi ekki verið með neinar sér- stakar væntingar. „Við vorum alveg við það að bugast fyrstu mánuðina. Það var mikið mál að komast inn í kerfið og það tók um sex til átta mánuði að koma okkur almennilega fyrir, að ná áttum. Það tók Gerði til dæmis átta mánuði að fá atvinnu- leyfi. Ég var mjög heppinn með at- vinnurekanda og fyrirtækið hefur hugsað mjög vel um mig frá byrj- un, sá um alla pappíra og borgaði fyrir mig flugið út. Kostnaðurinn var meiri en við áttum von á í byrj- un en nú er þetta allt annað og betra.“ Kristinn segir að gott sé að búa á Gimli, ekki síst vegna allra Ís- lendinganna sem þar búi. „Maður þarf ekki að finna upp hjólið hérna, aðrir hafa verið í því. Við kunnum ekki við okkur í stórborg en finnum okkur vel í svona litlum bæ. Það er líka gaman að upplifa fjórar árstíðir; sumar, vetur vor og haust. Þegar maður er orðinn þreyttur á sólinni veit maður að haustið kemur. Þótt veturinn sé harður víkur hann fyrir vorinu.“ Flutningabílstjóri ekur um á sléttunni  Fjölskyldan býr á Gimli en flytur vörur á milli fylkja Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Við smábátahöfnina Kristinn Vilhjálmur Traustason með börnum sínum. Rebekka Ásta, níu ára, býr með for- eldrum sínum á Gimli en Samúel, sonur Kristins, býr með móður sinni í Reykjavík. Biskup Íslands, Agnes M. Sigurð- ardóttir, ætlar að ávarpa samkomuna á trúarhátíðinni Hátíð vonar í sept- ember. Hátíðin hefur verið umdeild vegna aðalfyrirlesara hennar, Frankl- ins Grahams, sem er yfirlýstur and- stæðingur réttindabaráttu samkyn- hneigðra. Agnes var í viðtali hjá morg- unútvarpi Rásar 2 í gær. Hún sagði forsvarsmenn hátíðarinnar hafa kom- ið til hennar fyrir löngu með þessa bón. „Aðkoma mín að hátíðinni er sú að ég hef ákveðið að standa við loforðið sem ég gaf fyrir mörgum mánuðum og ávarpa samkomuna. Ég ætla að leggja áherslu á það sem sameinar okkur,“ sagði Agnes í viðtalinu. Hún lagði áherslu á það að þjóðkirkjan sem stofnun stæði ekki að þessari há- tíð, þótt einstaklingar innan hennar, bæði leikir og lærðir, tækju þátt. Að- spurð hvort þjóðkirkjan ætti eitthvað sameiginlegt með manni sem lítur á samkynhneigð sem synd sagði biskup m.a. að það væri mikilsvert að kristnir söfnuðir af öllu landinu gætu unnið saman þótt skoðanir væru skiptar. Biskup Íslands mun ávarpa Hátíð vonar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.