Morgunblaðið - 29.08.2013, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 29.08.2013, Blaðsíða 10
Heyrst hefur að mikil eftirvænting ríki meðal heklara vegna útkomu nýrrar heklbókar eftir Tinnu Þórudóttur Þor- valdar, sem Salka gefur út. Fyrri bók hennar, Þóra heklbók, hefur verið mjög vinsæl, en nýja bókin heitir María heklbók, og þar hannar Tinna allar uppskriftirnar sjálf. Í dag kl. 17- 19 ætlar hún að fagna útgáfu nýju bókarinnar í bókabúð Máls og menn- ingar og ætlar tónlistarkonan Mr. Silla að leika nokkur lög. Tinna mun setja upp innsetningu í loft verslunarinnar sem hún býr til úr um 100 kríu-sjölum (sú uppskrift var í fyrri bókinni), en sjölin hafa heklarar víða af landinu lánað henni til verksins. Í bókinni eru 25 uppskriftir af öllu mögulegu, húfum, jólaskrauti, sokkum, teppum, slaufum, dúkum, svuntum, háls- menum, armbönd- um og sjölum. Í bók- inni er afar gagnlegur tæknikafli og einni er kafli um uppskriftalæsi. Tinna segir í hannyrðahugvekju bókarinnar að heklið komi nú hvell- sterkt inn, og hefur þar nokkuð til síns máls, ef marka má vinsældirnar. Heklarar víða af landinu lána sjöl í innsetningu útgáfuhófs Tinna fagnar með kríu-sjölum Flottir Synir Tinnu með heklaðar Dósóteus-drengjaslaufur úr bókinni. 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2013 Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is Leikarinn og gullsmiðurinngæti vissulega verið titillá leikverki en svo erekki. Þetta eru starfs- titlar Erlings Jóhannessonar sem þessa dagana sinnir báðum list- greinum af kappi. Erling frum- sýndi nýja skartgripalínu sína á Hönnunarmars og hefur verið að fylgja henni eftir, nú síðast á kaupstefnu í Kaupmannahöfn um síðustu helgi. Vörulínu hans má finna í helstu hönnunarbúðum landsins eins og til dæmis Mýr- inni, Kraumi og Aurum. Fyrir nokkrum vikum var Er- ling á leiðinni á gullsmíðaverk- stæðið á hjólinu þegar síminn hringdi. Í símanum var Bergur Þór Ingólfsson leikstjóri og var hann að falast eftir leikara til að fara með hlutverk höfundarins í fyrsta leikriti Guðbergs Bergs- sonar, Eiðurinn og eitthvað. „Ég var staddur fyrir utan Suðurver þegar hringt var og leikhópurinn var við æfingar í Borgarleikhús- inu. Ég var grunsamlega fljótur á staðinn og nánast hjólaði á þau.“ Erling fór því ekki á verkstæðið þann daginn og var mættur á æf- ingu sjö mínútum eftir að honum var boðið hlutverkið. Hefur aðeins leikið í nýjum íslenskum verkum síðustu ár Eins og margir vita var Er- ling stór hluti af Hafnarfjarð- arleikhúsinu í mörg ár þar sem hann var einn af stofnendunum, listrænn stjórnandi, leikari, leik- stjóri og starfsmaður á plani. Hann hefur ekki leikið á sviði und- anfarin þrjú ár en fengist við leik- list engu síður þar sem hann hefur bæði leikstýrt og kennt. En hvað var það sem heillaði hann við þetta leikrit og fékk hann til að slá til með nánast engum fyr- irvara? Var það leikhópurinn GRAL, hlutverkið eða höfund- urinn? „Auðvitað er það þetta allt. Það er stórkostlegt að fá að vera partur af því að vinna með fyrsta sviðstexta Guðbergs. Svo var það náttúrlega mjög gaman að þetta skyldi vera leikhópurinn GRAL því þessi leikhúshugmynd um fólk sem tekur sig saman og rekur leikhús á sínum forsendum til þess að gera það sem því brennur á hjarta stendur mér nærri. Ég fór að rifja það upp að eiginlega frá því að við stofnuðum Hafnarfjarð- arleikhúsið hef ég ekki leikið í neinu öðru en nýjum íslenskum verkum. Ég kann ekki þessa Sýnir skartgripalínu og frumsýnir leikrit Erling Jóhannesson var á kaupstefnu í Danmörku um síðustu helgi þar sem hann sýndi skartgripahönnun sína. Í gær steig hann á svið í Tjarnarbíói í hlutverki höfundarins í nýju verki eftir Guðberg Bergsson, Eiðurinn og eitthvað. Morgunblaðið/Ómar Leikarinn og gullsmiðurinn Erling Jóhannesson segir grasrótar listastarf vera það sem standi hjarta hans næst í íslensku menningarlífi. Hönnun Skart úr nýjustu skart- gripalínu Erlings Jóhannessonar. Á vefsíðunni soundcloud.com/ brothergrass er hægt að hlusta á tóndæmi með hljómsveitinni Brother Grass. Á fésbókarsíðu hljómsveitar- innar kemur fram að Brother Grass hafi orðið til síðla sumars 2010 þegar þær Hildur Halldórsdóttir, Sandra Dögg Þorsteinsdóttir, Soffía Björg Óðinsdóttir og Ösp Eldjárn ákváðu að halda saman bluegrass-tónleika. Þær fengu til liðs við sig gítarleikarann Örn Eldjárn, bróður Aspar, til að spila með sér á litlum tónleikum í ágúst það sumar, og þá varð ekki aftur snú- ið. Hafa þau tínt til ýmis bluegrass- og suðurríkjalög og útsett í eigin stíl, þar sem þvottabali, gyðingaharpa og víbraslappi koma m.a. við sögu. Lokatónleikar sumarsins hjá þessu hæfileikaríka unga fólki í Brother Grass, eru í kvöld kl. 21 á Kaffi Rósen- berg, Klapparstíg. Þau ætla sér svo að sameinast á ný um jólin. Vefsíðan www.soundcloud.com/brothergrass Brother Grass Ungir og hæfileikaríkir krakkar sem spila í kvöld. Syngja svo fallega um Blakk Viðburðurinn Rhythm Box Social, verður haldinn með pomp og prakt í kvöld á skemmtistaðnum Harlem við Tryggvagötu. Um er að ræða tónleikaröð sem upphaflega er frá New York í Bandaríkjunum. Að- standendur viðburðarins hafa ferðast með hann og hefur hann meðal annars verið settur upp í Montréal í Kanada. Elektrónískri tónlist verður gert hátt undir höfði á Harlem í kvöld en meðal þeirra sem koma fram eru Captain Fufanu, Two Step Horror, AMFJ og pál vetika. Tónleikarnir hefjast klukkan 21. Endilega … … skellið ykkur á Harlem Morgunblaðið/Eggert Harlem Captain Fufanu kemur fram. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.