Morgunblaðið

Dagsetning
  • fyrri mánuðurágúst 2013næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    28293031123
    45678910
    11121314151617
    18192021222324
    25262728293031
    1234567

Morgunblaðið - 29.08.2013, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 29.08.2013, Blaðsíða 23
Blómlegt atvinnu- og menningarlíf Snæfellsbær er á utanverðu Snæfellsnesi. Þar búa rúm- lega 1.700 manns, flestir eru búsettir í þéttbýliskjörnun- um Ólafsvík, Hellissandi og Rifi, aðrir íbúar dreifast um sveitir og minni þéttbýliskjarna á Hellnum og Arnar- stapa. Bæjarmörk Snæfellsbæjar eru annars vegar að norðan í Búlandshöfða og hins vegar í Staðarsveit. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2013 Við bjóðum frábæra þjónustu í KASSINN, NORÐURTANGA 1, 355 ÓLAFSVÍK, Sími 436 1376 Snæfellsbæ Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Á góðum dögum í sumar hafa um 100 bátar, litlir sem stærri, landað afla sínum í höfnum Snæfellsbæjar. „Því er oft mjög líflegt á bryggjunum hér,“ segir Björn Arnaldsson hafnarstjóri. Mikill afli berst á land þegar best lætur og sjómennirnir sem róa eru í við- skiptum við vinnslur sem kaupa aflann í bein- um viðskiptum eða selja hann á fiskmarkaði. „Þegar best veiðist lækkar verð stundum á fiskmarkaði og því halda karlar á kvótabát- um sig svolítið til hlés þegar strandveiðin stendur sem hæst.“ Stutt á góð fiskimið Í sumar hafa um 40 bátar verið gerðir út frá Ólafsvík og frá Rifi og Arnarstapa um 35 bátar frá hvorum stað. Úr þessum höfnum er stutt á góð fiskimið, stundum þarf ekki að fara nema rétt út fyrir hafnirnar til þess að komast í vænan fisk. Skv. aflatölum Fiskistofu lönduðu bátar á strandveiðum nærri 800 tonnum í höfnum Snæfellsbæjar á síðasta ári. Tölur fyrir þetta ár liggja ekki fyrir, en ljóst er að heildarafl- inn verður svipaður. „Við höfum lagt okkur eftir því að fá strandveiðimenn vestur með góðri þjónustu í höfnunum. Okkur munar líka um tekjurnar sem þetta skilar,“ segir Björn. Hafnarstjóri í nítján ár Nítján ár eru síðan Björn Arnaldsson tók við starfi hafnarstjóra í Snæfellsbæ. Á þeim tíma hefur margt verið framkvæmt við hafn- irnar og er samanlagður kostnaður eftir síð- ustu tólf ár – sem ríkið og hafnarsjóður greiða – um 1,2 milljarðar. Má þar nefna m.a. að Rifshöfn var dýpkuð, grjótgarður lengdur, trébryggja byggð og stálþil slegið niður. Þá var nýtt hafnarhús byggt í Rifi. Í Ólafsvík og Rifi hefur einnig margt verið framkvæmt. Morgunblaðið/Styrmir Kári Sigling Hafnaraðstaðan er góð svo sem á Rifi. Smærri skip og bátar eru áberandi í flotanum. Fiskur vænn og líf á bryggjum  Hundrað bátar á góðum degi  Margt fram- kvæmt í höfnum  1,2 milljarðar kr. á tíu árum Morgunblaðið/Alfons Finnsson Hafnarstjóri Höfum lagt okkur eftir því að fá strandveiðimenn,“ segir Björn Arnaldsson.

x

Morgunblaðið

Gerð af titli:
Flokkur:
Gegnir:
ISSN:
1021-7266
Tungumál:
Árgangar:
111
Fjöldi tölublaða/hefta:
55869
Skráðar greinar:
3
Gefið út:
1913-í dag
Myndað til:
31.12.2024
Skv. samningi við Árvakur útgáfufélag Morgunblaðsins er ekki hægt að sýna efni frá síðustu þremur árum Morgunblaðsins í almennum aðgangi á Tímarit.is.
Útgáfustaðir:
Ritstjóri:
Vilhjálmur Finsen (1913-1921)
Þorsteinn Gíslason (1921-1924)
Jón Kjartansson (1924-1947)
Valtýr Stefánsson (1924-1963)
Sigurður Bjarnason frá Vigur (1963-1970)
Matthías Johannessen (1959-2000)
Eyjólfur Konráð Jónsson (1960-1974)
Styrmir Gunnarsson (1972-2008)
Ólafur Þ. Stephensen (2008-2009)
Davíð Oddsson (2009-í dag)
Haraldur Johannessen (2009-í dag)
Útgefandi:
Félag í Reykjavík (1924-1947)
Árvakur (1947-í dag)
Efnisorð:
Lýsing:
Dagblað. Fréttir og greinar um innlend sem erlend málefni.
Styrktaraðili:
Fylgirit:

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað: 201. tölublað (29.08.2013)
https://timarit.is/issue/371952

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

201. tölublað (29.08.2013)

Aðgerðir: