Morgunblaðið - 29.08.2013, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 29.08.2013, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2013 Ísfélagið í Vestmannaeyjum hefur undirritað samn- ing um kaup á uppsjávarskipi sem er í smíðum í Ce- liktrans-skipasmíðastöðinni í Istanbúl í Tyrklandi og á að fær það afhent í byrjun næsta árs. Skipið mun leysa tvö eldri skip félagsins af hólmi en félagið ger- ir nú út fimm uppsjávarveiðiskip. Kaupverðið er trúnaðarmál. Nýja skipið verður afar vel búið til veiða á upp- sjávarfiski s.s. loðnu, síld, makríl og kolmunna. Kæli- tankar skipsins eru 2.970 rúmmetrar. Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélagsins, segir að hið öfluga kælikerfi og mikla burðargeta skipsins muni styðja vel við landvinnslu félagsins í Vestmannaeyjum og á Þórshöfn. Störfum á sjó fækk- ar enn. „Ný skip þýða að færri hendur vinna sömu verkin og afköstin eru meiri. Þar af leiðandi fækkar þeim sem veiða fiskinn. En á móti kemur að við get- um unnið meira til manneldis,“ segir Stefán. Þar með verði meiri verðmæti sköpuð við landvinnslu og störfum við hana muni fjölga. Ekki er ljóst hvaða skip félagsins verða seld. Á sínum tíma samdi Ísfélagið við skipasmíðastöð í Síle um smíði tveggja nýrra uppsjávarskipa. Skemmdir á skipasmíðastöðinni í jarðskjálfta og flóði sem fylgdi í kjölfarið urðu til þess að Sílemenn- irnir treystu sér ekki til að standa við samninginn og afhentu aðeins annað skipið – Heimaey VE-1 sem kom til Vestmannaeyja í maí í fyrra. Ísfélagið leitaði því annað og gekk inn í pöntun norska útgerð- arfélagsins Magnarson á skipinu. Stefán segir að systurskip þess sé í notkun í Noregi og hafi reynst vel. Í fréttatilkynningu frá Ísfélaginu í gær segir að kaupin á skipinu séu liður í endurnýjun á skipaflota félagsins og liður í hagræðingaraðgerðum þess, ekki síst í kjölfar aukinnar skattlagningar stjórnvalda. Félaginu sé ætlað að greiða um tvo milljarða í veiði- gjöld og tekjuskatt á þessu ári. Því sé nauðsynlegt að fækka skipum og auka hagræði á öllum sviðum. Stef- án segir aðspurður að núverandi stjórnvöld hafi í kosningabaráttunni rætt um að þau væru á móti of- urskattlagningu í sjávarútvegi og vildu að skatt- heimta væri hófleg. Þær yfirlýsingar væru enn í orði en ekki á borði. runarp@mbl.is Stærra Nýja skipið er 80 metra langt og 17 metra breitt og er því bæði lengra og breiðara en Heimaey, sem fé- lagið tók í notkun í fyrra. Heimaey er 71 metri að lengd, og 14,4 metrar að breidd. Nýtt skip til Eyja  Leysir tvö skip af hólmi  Sjómönnum fækkar  Landvinnsla styrkist  Gengu inn í norska pöntun Björn Már Ólafsson bmo@mbl.is „Þessar upplýsingar eru ekki til þess ætlaðar að birta opinberlega,“ segir Svanhildur María Ólafsdóttir, formaður Skólastjórafélags Ís- lands, um niðurstöður lesskimun- arkönnunar sem framkvæmd var á nemendum í 2. bekk í grunnskólum í Reykjavík. „Þessar upplýsingar eru aðgengilegar með þeim hætti að hver skóli kynnir niðurstöðurn- ar fyrir foreldrum barnanna, ann- aðhvort í námsmatsviðtölum eða skólar senda út tölvupóst þar sem niðurstöður viðkomandi skóla eru kynntar. Síðan eru niðurstöðurnar alltaf kynntar í skólaráði skólanna þar sem fulltrúar foreldra eiga sæti og svo eru þær kynntar foreldrum í árganginum. Svo eru auðvitað þeir nemendur skoðaðir sérstaklega sem ekki ná þeim árangri sem mið- að er við,“ segir hún. Aðspurð hvort opinber birting á sundurliðuðum niðurstöðum skól- anna myndi ekki veita aukið aðhald segir Svanhildur slíkt ekki vera raunina. „Við erum fagmenn“ „Skólarnir taka þessar niður- stöður alvarlega, hvernig sem þær kunna að vera. Mér finnst þetta vera vantraust á skólana, ef fólk telur að við séum ekki að vinna úr þeirri skimun sem við setjum börn- in okkar í. Við erum fagmenn, með þessi verkfæri og tökum að sjálf- sögðu þessa skimun alvarlega. Til- gangur þeirra er hins vegar ekki að birta þær í einhverjum röðum.“ Svanhildur segir skólana vera of mismunandi til þess að það þjóni tilgangi að bera þá saman. „Það er margt sem spilar inn í, sumir skól- ar eru stórir, aðrir litlir. Við viljum helst að skólarnir geti skoðað sjálf- ir hvar þeir eru staddir. Einnig eru árgangarnir mismunandi og árang- urinn getur því verið mismunandi frá ári til árs.“ Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í skóla- og frístundaráði Reykjavík- ur, segir það ekki endilega ákjós- anlegt að birta árlega niðurstöður úr slíkum könnunum vegna sveiflna sem kunna að vera á milli árganga. „Hins vegar er ég tals- maður þess að birta fimm ára með- altöl í slíkum könnunum. Það er mun eðlilegra að þegar veitt er aukafé í skóla þar sem eru til stað- ar erfiðar samfélagsaðstæður, eða til þeirra hverfa sem eru að koma verr út, að það sé hægt að sýna fram á að þess sé raunverulega þörf.“ Þorbjörg segir Íslendinga almennt oft vera hrædda við það að skoða tölfræðiupplýsingar. „Ég hef enga trúa á því að við birtingu slíkra gagna muni verða einhvers konar uppþot eða bak- slag. Ég held frekar að foreldr- arnir muni leggjast á eitt við að styðja við skólana, frekar en að líta á þetta sem einhverja ástæðu til að skipta um skóla. Ég held að for- eldrar átti sig á því að það er miklu meira en bara niðurstöður í prófum sem segja til um gæði skól- ans.“ Ekki rýnt vel í gögnin „Við erum með mjög margar mælingar um alls konar hluti í menntakerfinu en við erum ekki að rýna nægilega vel í gögnin. Skóla- stjórarnir sjálfir hafa til dæmis verið að vinna úr niðurstöðum samræmdu prófana, en við í borg- arstjórn höfum ekki notað þessar upplýsingar til setja okkur heild- armarkmið um aukinn árangur,“ segir Þorbjörg. Birting væri vantraust á skólana  Ósammála um birtingu niðurstaðna úr lesskimun  Þarf að vinna betur úr tölfræðiupplýsingum  Skólarnir sjálfir eiga að sjá um að vinna úr niðurstöðunum  Skólarnir of mismunandi Morgunblaðið/Rósa Braga Birting gagna „Þessar upplýsingar eru aðgengilegar með þeim hætti að hver skóli kynnir niðurstöðurnar fyrir foreldrum barnanna.“ Hjartað í Vatnsmýri hafði í gær- kvöldi safnað rúmlega 58.400 und- irskriftum á heimasíðunni Lend- ing.is þar sem skorað er á borgar- stjórn og Alþingi að tryggja óskerta flugstarfsemi í Vatnsmýri til framtíðar. Fjöldi undirskrifta er því kominn yfir það sem safnaðist í Icesave-málinu í byrjun árs 2010 en þar námu undirskriftir 56.089. Aðstandendur söfnunarinnar segja það vera ljóst að krafa um óskerta flugstarfsemi í Vatnsmýri sé fjöl- mennasta krafa sem sett hefur verið fram hérlendis. Ekkert eitt mál hefur áður notið jafn víðtæks stuðnings. Undirskriftasöfnuninni verður haldið áfram næstu þrjár vikur. Í gær fór fram hópmynda- taka á Akureyrarflugvelli sem sýna átti með táknrænum hætti þann fjölda sem þarf á sjúkraflugi að halda á hverju ári. mariamargret@mbl.is Fleiri undirskriftir en vegna Icesave  Krafa um óskerta starfsemi í Vatnsmýri Ljósmynd/Karl Eskil Pálsson Flug Hópmyndatakan sem fór fram á Akureyrarflugvelli í gær. Eigendur fjögurra lóða fyrir sunnan Smáralind eiga nú í viðræðum við skipulagsyfirvöld í Kópavogi varð- andi breytingu á aðalskipulagi á reitnum. Á skipulagi í dag er reit- urinn ætlaður undir atvinnu- húsnæði, en í skoðun er að á nýju skipulagi verði gert ráð fyrir bland- aðri byggð. Þetta gæti leitt til þétt- ingar byggðar á svæðinu, en með breytingunum er horft til þess að reisa nokkuð á annað hundrað íbúð- ir. Lóðirnar sem um ræðir eru Haga- smári 2 og 4 og Hæðarsmári 1-5 og 7-13. Þær eru fyrir sunnan Smára- lind, ofan við bílastæðin í suðvest- urenda verslunarmiðstöðvarinnar. Samkvæmt heimildum verður farið í að kynna breytinguna á næstunni og er gert ráð fyrir að nýtt aðalskipulag verði tilbúið öðrum hvorum megin við áramótin. thorsteinn@mbl.is Vilja byggja íbúðir við Smáralind  Viðræður við yfirvöld í Kópavogi Morgunblaðið/Kristinn Skipulag Svo gæti farið að íbúðir risu sunnan við Smáralind.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.