Morgunblaðið - 29.08.2013, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 29.08.2013, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2013 ✝ ÁsvaldurBjarnason fæddist í Kirkju- hvammi í Vestur- Húnavatnssýslu 23. júní 1923. Hann lést á Dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Grund 20. ágúst 2013. Foreldrar hans voru hjónin Bjarni Þorláksson, f. 22. september 1889 á Hvoli í Vest- urhópi, d. 15. júní 1979, og Sig- urbjörg Friðriksdóttir, f. 23. desember 1893 á Tjörn á Vatns- nesi, d. 26. ágúst 1971. Þau bjuggu í Kirkjuhvammi og í Kot- hvammi á Vatnsnesi en síðast á Hann var lengst af verzl- unarmaður við Kaupfélag Vest- ur-Húnvetninga á Hvamms- tanga en síðan starfaði hann við Póst og síma á Hvammstanga og annaðist þar póstafgreiðslu, en eftir að suður kom starfaði hann á skrifstofu Pósts og síma til starfsloka. Hinn 12. ágúst 1950 kvæntist Ásvaldur Debóru Þórðardóttur símstöðvarstjóra á Hvamms- tanga, f. 24. nóvember 1910, d. 13. maí 2011. Foreldrar hennar voru Þórður Sæmundsson skó- smiður og símstjóri þar og kona hans Guðrún K. Sveinsdóttir. Þau Debóra voru barnlaus, en hjá Debóru, og síðar Ásvaldi einnig, ólst upp framan af Þór Magnússon þjóðminjavörður. Minningarathöfn um Ásvald verður í Neskirkju 29. ágúst 2013 kl. 13, en útförin verður gerð frá Hvammstangakirkju 30. ágúst 2013 kl. 15. Hann verð- ur jarðsettur í Kirkjuhvammi. Hvammstanga. Dóttir þeirra, og systir Ásvaldar, var einnig Ingunn Elsa, f. 7. september 1924 í Kirkjuhvammi, d. 1. september 1975 á Hvammstanga, gift Richarði Guðmunds- syni bifreiðarstjóra þar. Börn þeirra eru Gunnar, Birna og Rafn. Einnig átti Bjarni dóttur, Ingibjörgu, f. 14. nóvember 1908, dáin 19. nóv- ember 1984, móðir hennar var Sigurbjörg Pétursdóttir. Ásvaldur nam á Reykjaskóla og síðar við Samvinnuskólann í Reykjavík og lauk þaðan prófi. Ásvaldur Bjarnason andaðist á Hjúkrunarheimilinu Grund þar sem hann dvaldist síðustu árin, eftir að heilsunni tók að hraka, og þar dvaldist Debóra kona hans einnig sín síðustu æviár. Ásvaldur var lengst af andlega hress og hélt vel minni sínu, en líkamsþróttur þvarr smám sam- an og síðustu misserin var hann þrotinn að kröftum og þurfti dag- lega umönnun, sem starfsfólk Grundar annaðist af stakri prýði og því var Ásvaldur innilega þakklátur. Þau Debóra Þórðardóttir gengu í hjónaband árið 1950. Aldursmunur var nokkur en hjónaband þeirra og lífsferill ein- kenndist af miklu ástríki og hlýju og tillitssemi beggja. Ég óst upp framan af á heimili Debóru og foreldra hennar, ömmu minnar og afa, og þótt ég flyttist til móður minnar og stjúpföður var ég lengi nyrðra á sumrum. Þá kom Ásvaldur á heimilið og þar varð þá mikil breyting. Hann hófst brátt handa við miklar lagfæringar og gagn- gerða viðgerð gamla hússins, sem hann vann sjálfur að veru- legu leyti. Þá gerbreyttist aðbún- aður allur og allt vildi hann til betri vegar færa, enda var hann bráðlaginn í höndum. Þau Debóra fluttust til Reykjavíkur árið 1970, bjuggu fyrst á Reynimel 84, innréttaði hann sjálfur íbúð þeirra þar og eins síðari íbúð þeirra á Ála- granda 27. Þau hjónin voru sam- hent um alla hluti. Þau ferðuðust allvíða meðan heilsa leyfði, bæði innan lands og utan, og höfðu af því mikla ánægju. Er heilsu De- bóru tók að hraka annaðist Ás- valdur heimilishald allt og fórst það vel. Ásvaldur sat í hreppsnefnd Hvammstangahrepps um árabil, og var oddviti hreppsnefndar um tíma, sat einnig í sóknarnefnd. Hann sóttist ekki eftir mannvirð- ingum, en vann allt sem honum var falið af nákvæmni og sam- vizkusemi. Hann var mannblend- inn og blandaði auðveldlega geði við fólk, var léttur í lund og hafi oft gamanyrði á vörum. Helzta tómstundaiðja hans var málanám, lagði einkum stund á frönsku. Þetta var sjálfsnám af bókum og löngum sat hann og las og glósaði frönsku og hafði mikla ánægju af. Ég var að taka út þroskaárin er Ásvaldur kom á bernskuheim- ili mitt. Hann átti því þátt í, ásamt mörgum fleirum, uppeldi mínu. Mér er þakklæti í huga til hans fyrir hlýju og góðvild í minn garð og bið honum blessunar er farinn er nú til annarra heim- kynna, sem hann vissi sig hafa fyrirheit um. Þór Magnússon. Elsku Ásvaldur frændi. Síð- ustu daga hafa margar góðar minningar komið upp í hugann þegar við hugsum til þín og Díu sem lést fyrir ekki svo löngu. Heimsóknirnar til ykkar á Afla- grandann voru oft skemmtilegar og ávallt voru þar veglegar veit- ingar á borðum. Það var gaman að heyra þig hlæja og segja skemmtisögur og áhugi þinn á útlöndum og ferðum okkar systr- anna á framandi slóðir var ávallt mikill. Þú talaðir við okkur Helgu spænsku og varst nokkuð laginn við það en þó varstu dug- legri við frönskuna en í henni kunnum við ekkert. Þú spáðir mikið í hina og þessa málfræði sem við höfðum litla hugmynd um en áhugi þinn á tungumálum var aðdáunarverður og það að þú varst að búa til þína eigin orða- bók segir ýmislegt um það. Eftir að þú fluttir á Grund sá maður hvernig heilsu þinni hrakaði smátt og smátt en samt varstu alltaf svo ákveðinn í að ná upp fyrri orku, fannst gott að fara í sundleikfimi sem og aðra sjúkra- þjálfun. En nú er sá tími kominn að þú hefur kvatt þennan heim fyrir fullt og allt og ert nú kom- inn aftur til hennar Díu sem var þinn sálufélagi og lífsförunautur. Við kveðjum þig, elsku Ásvaldur frændi, með söknuði og munum minnast þeirra góðu stunda sem við áttum saman. Hvíl í friði. Þínar frænkur, Elfa, Elsa, Hallbera og Helga Gunnarsdætur. Ásvaldur Bjarnason ✝ Stefán Valdi-marsson fædd- ist í Reykjavík 5. september 1929. Hann andaðist á Hjúkrunarheim- ilinu Skjóli 15. ágúst 2013. Foreldrar hans voru Hólmfríður Helgadóttir, f. í Hvítanesi í Kjós 28. júlí 1904, d. 11. október 1995, og Valdimar Stef- ánsson stýrimaður, f. á Álft- ártungu á Mýrum 5. apríl 1896, d. 22. mars 1967. Systkini hans eru Pétur, f. 1926, Fríða, f. 1936, og Guðfinna Ebba, f. 1945. Stefán kvæntist 25. febrúar 1955 Hafþóru Bergsteinsdóttur, f. 28. október 1932, þau slitu sam- vistir. Hennar foreldrar voru Sesselía Sigurðardóttir og Berg- steinn Á. Bergsteinsson. Börn þeirra eru: 1) Kolbrún, f. 15. mars 1958, hún á fjórar dætur; Bryn- dísi, f. 1975, Huldu Sif, f. 1981, Þórhildi, f. 1986, og Ásu Kol- brúnu, f. 1995, Ásmundsdætur og fimm barnabörn. 2) Valdís, f. 18. maí 1960, hún á eina dóttur, Ið- unni Guðjónsdóttur, f. 1981. 3) Valdimar, f. 18. maí 1967, hann á fjögur börn, Jónas Bjart, f. 1991, Heið- ar Loga, f. 1991, Maríu Veroniku, f. 2002, og Daníel Stefán, f. 2004. Stefán fæddist og ólst upp í Vest- urbænum og bjó þar hálfa ævina. Eftir hefðbundna skólagöngu fór hann að vinna ýmis störf sem til féllu. Hann eign- aðist vörubíl og rak hann í nokk- ur ár, því næst fór hann til sjós og sigldi sem háseti á skipum Eimskips, fyrst á Reykjafossi og seinna á Fjallfossi. 1957 fór hann til náms í Þýskalandi hjá Baa- derverksmiðjunni og eftir heim- komu fór hann að vinna og gera við fiskvinnsluvélar frá Baader, fyrst í Reykjavík og svo vítt og breitt um landið. Hann bjó um tíma vegna vinnu sinnar á Ísa- firði frá1974 til 1987 og seinna einnig á Stokkseyri, ennfremur vann hann fyrir mörg fyrirtæki á Reykjanesinu meðan heilsa leyfði. Útför Stefáns fer fram frá Fossvogskapellu í dag, 29. ágúst 2013, og hefst kl. 13. Ég sá Stefán fyrst á „rekstr- arsjón“ í Tjarnarcafé einhvern tímann á árunum 1952-3. Þá vor- um við táningarnir að byrja að fara út á kvöldin til að dansa. Hann kom í salinn í hópi félaga sinna, og var auðséð að þar voru Farmenn á ferð, glæsilegir og flott klæddir strákar. Á þessum tíma voru farmennirnir aðal- kappar landsins. Stebbi var þá að byrja að draga sig eftir Hafþóru Berg- steinsdóttur, sem síðar varð eig- inkona hans. Þau voru glæsipar, sem tekið var eftir alls staðar. Næst liggja leiðir saman á árinu 1958, þá er Stefán hættur til sjós, giftur Hafþóru og búinn að ráða sig í vinnu sem gæslu- maður flökunarvéla hjá Bæjarút- gerð Reykjavíkur. Ég hafði byrj- að árið áður hjá Baaderþjónustunni hf. Þá hófst mjög náið samstarf á milli okkar, sem þróaðist með ár- unum yfir í mjög styrkan vin- skap. Ég leitaði mikið til Stefáns eftir ráðleggingum o.fl., þar sem ég var algjör græningi í fisk- vinnslumálum, vissi ekkert hvað sneri upp eða niður þar. Á þessum árum var vélvæðing- in almennt að byrja í frystihús- unum. Smátt og smátt urðu fyr- irtækin meira og meira háð vélunum, flakarar og flatnings- menn týndu tölunni, ungir menn leituðu ekki mikið í „fiskinn“. Góðir vélgæslumenn voru eftir- sóttir. Stefán hættir svo hjá BÚR 1966 og setur á stofn lítið þjón- ustuverkstæði á Nýlendugöt- unni, ásamt Steingrími Gunnars- syni rennismið, og fara þeir að vinna fyrir fiskvinnslufyrirtækin víðsvegar um landið. Eitthvað held ég að tekjur hafi verið gloppóttar, allavega ræður hann sig til frystihúsanna á Ísa- firði árið 1973. Þá var hjónabandi hans og Hafþóru lokið, en þau áttu þrjú börn saman, Kolbrúnu, Valdísi og Valdimar, öll glæsileg og mannvænleg börn. Á þessum tíma var erfitt að þjóna Vestfjörðunum, aðallega vegna erfiðra samgangna. Ef flökunarvél bilaði varð viðgerð eða varahlutir að koma strax til, annars voru mikil verðmæti í hættu. Í samráði við frystihúsin á Ísafjarðarsvæðinu flutti Stefán þangað, aðallega til að geta þjón- að þeim, óháð samgönguerfið- leikum. Hann varð líka afgerandi í því að kenna þeirra eigin starfs- mönnum að viðhalda sínum vél- um sjálfir. Þetta varð nokkurra ára þró- un, og aldrei metið sem skyldi. En Stebba þótti gott að búa með- al Vestfirðinga. Samt flutti hann til baka til Reykjavíkur 1990, enda ekki sama þörf fyrir hann og áður. Síðustu starfsárin þjónustaði hann aðallega saltfiskverkendur á Suðurlandi, við takmarkaða af- komu. Ýmislegt var brallað á þessum langa tíma, bæði í vinnu og utan. Við höfðum báðir gaman af að veiða lax. Slarkið þá varð oft skrautlegt, en aldrei nein vand- ræði. Alltaf gaman og útiverunn- ar notið við fallega á. Þetta voru dásamlegir dagar. Stebbi var einfari seinnipart lífs síns, en var þó alltaf til í að gleðjast og taka þátt í glaumi og gleði, ef slíkt rak á fjörur. Svolítið sveiflugjarn í skapi, en í eðli sínu góðmenni, og vildi engum illt. Ég heyrði hann aldrei tala illa um nokkurn mann, en hann átti það til að gera góðlátlegt grín að sam- ferðamönnum sínum. Sögumaður góður. Oft lyftum við glösum í tíma og ótíma. Aldrei ræddum við heimilislíf okkar, en ég held að hann hafi saknað mikið fjölskyldu sinnar. Ég er þakklátur fyrir góð áhrif frá mínum vini, samúðarkveðjur til Hafþóru og barnanna. Ásgeir Hjörleifsson. Stefán Valdimarsson ✝ Jóhannes Pét-ur fæddist í Reykjavík 11. júlí 1971. Hann lést á sjúkrahúsi í Óðins- véum eftir erfið veikindi 13. ágúst 2013. Foreldrar hans voru Davíð Jóhann- esson gullsmiður og Sigríður Sig- urjónsdóttir. Fyrstu árin bjuggu þau í Reykja- vík en síðar fluttist Jóhannes ásamt móður sinni til Húsavíkur þar sem hann ólst upp ásamt móður, stjúpföður, hálfsystur sinni Mörtu og þremur stjúp- systkinum, þeim Dröfn, Bjarna og Sigurði. Samfeðra systkin Jó- hannesar eru Karl Gústaf, María Guðfinna og Aldís Gyða. Jóhannes gekk í skóla á Húsa- vík en síðar fór hann til náms í Iðnskólanum í Reykjavík en Jó- hannes hafði ákveðið að læra gullsmíði hjá afa sínum, Jóhann- esi Leifssyni. Á þeim tíma kynntist hann Geirþrúði Þórð- ardóttur, sem síðar varð eiginkona hans, og eignuðust þau tvo syni, þá Davíð, sonur hans er Léo og Þórð. Jóhannes varð fljótt góður gull- smiður og bauðst honum starf í Dan- mörku og ákváðu þau hjónin að fyt- jast til Danmerkur ásamt sonum sínum og starfaði hann við gullsmíði í nokkur ár. Geirþrúður og Jóhannes slitu samvistir. Síðar kynntist Jó- hannes danskri stúlku, Heidi, og eignuðust þau eina dóttur, So- fíu. Jóhannes var mikill tónlistar- unnandi og starfaði heima við upptökur og tónlist með nokkuð vel þekktum einstaklingum í greininni, enn fremur samdi hann tónlist sjálfur. Síðustu ár bjó Jóhannes í Danmörku. Útför Jóhannesar fer fram frá Digraneskirkju í dag, 29. ágúst 2013, kl. 15. Elsku Jói bróðir, mig langaði svo að minnast þín og senda þér fallega bæn. Takk fyrir allar stundirnar sem við áttum saman, takk fyrir að vera stóri bróðir minn og megi Guð og allir hans englar vaka yfir þér. Í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð, leiddu mig, og lýstu mér um ævistig. Ég reika oft á rangri leið, sú rétta virðist aldrei greið. Ég geri margt sem miður fer, og man svo sjaldan eftir þér. Sú ein er bæn í brjósti mér, ég betur kunni þjóna þér. Því veit mér feta veginn þinn og verðir þú æ Drottinn minn. (Pétur Þórarinsson) Þín systir, María. Við andlátsfregn þína, allt stöðvast í tímans ranni. Og sorgin mig grípur, en segja ég vil með sanni, að ósk mín um bata þinn, tjáð var í bænunum mínum, en Guð vildi fá þig, og hafa með englunum sínum. Við getum ei breytt því sem frelsarinn hefur að segja. Um hver fær að lifa, og hver á svo næstur að deyja. Þau örlög sem við höfum hlotið, það verður að skilja. Svo auðmjúk og hljóð, við lútum að frelsarans vilja. Þó sorgin sé sár, og erfitt er við hana að una. Við verðum að skilja, og alltaf við verðum að muna, að Guð hann er góður, og veit hvað er best fyrir sína. Því treysti ég nú, að hann geymi vel sálina þína. Þótt farin þú sért, og horfin ert burt þessum heimi. Ég minningu þína, þá ávallt í hjarta mér geymi. Ástvini þína, ég bið síðan Guð minn að styðja, og þerra burt tárin, ég ætíð skal fyrir þeim biðja. (Bryndís Halldóra Jónsdóttir) Elsku Jói minn, ég þakka þér fyrir þau þrettán ár sem ég fékk að eiga þig að vini. Ég mun ég sakna hlátursins, hjartahlýju og glaðværðar þinnar um ókomin ár. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Guðlaug Bjarnþórsdóttir (Gulla). Jóhannes Pétur Davíðsson ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, BORGHILDUR SVANLAUG ÞORLÁKSDÓTTIR frá Veiðileysu, sem lést á deild 3B, Hrafnistu, Hafnarfirði, föstudaginn 23. ágúst, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 30. ágúst kl. 13.00. María Sveinbjörnsdóttir, Steen Jörgensen, Trausti Sveinbjörnsson, Margrét Ólöf Sveinbjörnsdóttir, Þórir Steingrímsson, Ásta Sveinbjörnsdóttir, Ólöf Þóra Sveinbjörnsdóttir, Erla Sveinbjörnsdóttir, Grétar Páll Stefánsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUÐRÚN ALDA HELGADÓTTIR, verður jarðsungin frá Eyrarbakkakirkju föstudaginn 30. ágúst kl. 14.00. Helgi Ívarsson, Ingibjörg H.W. Guðmundsdóttir, Kjartan Þór Helgason, Gunnar Örn Helgason, Ómar Vignir Helgason, Edda Linn Rise, Guðrún Alda Helgadóttir, Lúðvík Kristjánsson, langömmubörn og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar systur okkar, mágkonu og frænku, GERÐAR ANTONSDÓTTUR, Hlíf 2, Ísafirði. Guðný Antonsdóttir, Vilhjálmur Antonsson, Elísabet Pálsdóttir, Erla Pálsdóttir og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.