Morgunblaðið - 29.08.2013, Page 2
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Smali Sigurður Páll Tryggvason
með sumrunginn á bakinu í gær.
Sigurður Páll Tryggvason, bóndi á
Þverá í Reykjahverfi, bar sumrung
á baki sér til Skógaréttar í gær-
kvöldi, en hann var í göngum á
Reykjaheiði.
Sumrungurinn fannst í göng-
unum, en hann hefur að öllum lík-
indum fæðst í byrjun ágúst. Hann
gat ekki fylgt safninu svo að Sig-
urður Páll brá á það ráð að bera
hann til réttar dágóðan spöl. Sumr-
ungur er lamb sem fæðist um sum-
artímann og fer lambið því ómerkt
til réttar.
Sumrungur
fannst í
göngunum
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2013
Rafknúnar hurðapumpur fyrir úti-
og innihurðir. Sterkar og öruggar.
TM
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
leggur mikla áherslu á að borgin
tryggi þeim foreldrum sem voru
með börn á leikskólanum 101 sam-
bærileg vistunarúrræði.
„Ég hef heyrt í mörgum for-
eldrum og þetta hefur tekið veru-
lega á þau. Það er skiljanlegt að
einhverjir foreldrar vilji skipta um
leikskóla og í svona sérstöku máli
þarf borgin að hjálpa þeim,“ segir
Þorbjörg. „Ef um væri að ræða
uppákomu í borgarreknum skóla
væri það gert og sama á um alla
að gilda. Það gengur ekki að for-
eldrar séu allir á hlaupum um
borgina hver um sig að reyna að
tryggja sér pláss hjá hinum og
þessum. Það er ljóst að margir
aðrir sjálfstætt starfandi leikskól-
ar geta bætt við sig plássum auk
þess sem það að taka inn elstu
börnin í 2012 árgangi í borgar-
skólana losar um fleiri pláss í öðr-
um ungbarnaleikskólum. Loks
verður að ræða það hvernig betur
megi brúa þetta bil á milli fæðing-
arorlofs og leikskóla,“ segir Þor-
björg. Samkvæmt upplýsingum frá
Reykjavíkurborg er búið að til-
kynna leikskólastjórum og dagfor-
eldrum borgarinnar að byrja megi
að innrita í leikskóla þau börn sem
fædd eru árið 2012, þar sem pláss
eru laus og sé röðin komin að þeim
á biðlistum.
Borgin þarf að hjálpa
Taka þarf tillit til aðstæðna barna
leikskólans 101 Innrita 2012 árgang
Fjármál Leikskólans 101 eru
komin inn á borð hjá skattrann-
sóknarstjóra eftir því sem fram
kom í fréttum RÚV í gærkvöldi.
Ábendingar bárust frá for-
eldrum barna á leikskólanum
um að þeir hefðu, í einhverjum
tilfellum, greitt leikskólagjöld
inn á einkareikninga eiganda
leikskólans. Haft var eftir lög-
manni eigandans að engin til-
kynning hefði borist um að
skattrannsókn væri hafin á
skólanum.
Fjármálin til
rannsóknar
LEIKSKÓLINN 101
SVIÐSLJÓS
Árni Grétar Finnsson
agf@mbl.is
„Þetta gekk mjög erfiðlega vegna
þess að engin skepna vildi fara
heim. Það er svo gott veður hérna
svona um mitt sumar,“ segir Ómar
Sigtryggsson, fjallskilastjóri í
Reykjahverfi, kíminn en heitt var í
veðri í Suður-Þingeyjarsýslu í gær.
Gangnamenn þar lögðu af stað
klukkan níu í gærmorgun.
„Safnið er rétt að koma til
byggða,“ sagði Ómar en smölun
sem átti að ljúka um miðjan dag
lauk um kvöldmatarleytið í gær-
kvöldi.
Ómar sagði erfiðlega hafa gengið
að smala vegna hitans og að féð
hefði ekki verið tilbúið í að kveðja
afréttina svo snemma árs. Stefnt er
að því að rétta í Skógarétt í Reykja-
hverfi í dag og hefur um 2.000 kind-
um verið smalað þangað.
Hitinn hafði áhrif í Staðarrétt
Hitinn hafði einnig áhrif í Staðar-
rétt í Skagafirði. Þar er stefnt að
því að rétta í kvöld, en smölun hófst
klukkan sex í gærmorgun.
„Það var rekið frá Skarðsá og út
Sæmundarhlíð og þaðan í Staðar-
rétt og tók um fjóra til fimm tíma
að reka vegna þess að þetta er svo
stórt svæði,“ segir Jónína Stefáns-
dóttir, bóndi á Stóru-Gröf ytri, en
smalað var um 4.000 fjár. Hún bæt-
ir við: „Við erum að vona að veðrið
verði ekki orðið svo agalegt að við
getum ekki réttað, en við stefnum
að því að rétta á föstudagsmorgun.“
Jónína sagði veðrið í Skagafirði
gott í gær, búið að vera logn og
hlýtt í veðri. „Maður á erfitt með að
trúa því að það sé að koma svona
vont veður vegna þess að það er svo
æðislegt núna,“ sagði Jónína, en
um 80 manns smöluðu í Staðarrétt.
Undir þetta tók Ari Jóhann Sig-
urðsson, fyrrverandi bóndi og
hreppstjóri í Staðarhreppi, en
bætti við að erfiðleikar hefðu fylgt
hitanum. „Féð var hátt uppi og
smölun var erfið. Þeir voru þremur
tímum lengur heldur en áætlað var
enda vildi féð ekkert fara í þessum
hita,“ sagði Ari, en 12 stiga hiti og
logn var í Skagafirði þegar blaða-
maður talaði við Ara í gærkvöldi.
„Ég er búinn að heyra í fleirum hér
í Skagafirði sem hafa verið í göng-
um á öðrum svæðum og allir segja
þeir að erfiðlega gangi að ná fénu
niður,“ bætti Ari við. Hann sagði að
venjulega væri hitinn lægri þegar
smalað væri og féð því lægra í fjöll-
unum og farið að leita heim á leið.
Veðurspáin er ennþá vond
Teitur Arason, veðurfræðingur
hjá Veðurstofu Íslands, segir að
enn sé útlit fyrir óveður á Norður-
landi og ekki sé mikil breyting á
spánni.
„Í stuttu máli sagt er spáin
ennþá ljót. Það er gert ráð fyrir því
síðdegis á föstudaginn að hann
gangi í norðvestan storm og það
verði kalt í veðri og snjór fyrir ofan
einhverja tiltekna hæð, hugsanlega
um 200-300 metra,“ segir Teitur, en
sauðfé er víða í þeirri hæð. Á laug-
ardag verður mikil úrkoma og
stormur framan af degi, mest á
miðju Norðurlandi frá Húnaflóa og
yfir í Eyjafjörð.
Teitur segir þó að úrkoman komi
þvert yfir Norðurland og að menn
þurfi að vera tilbúnir að grípa til að-
gerða ef til þess kemur.
Ljósmynd/Ari Jóhann Sigurðsson
Smalamennska Réttað í Staðarrétt í Skagafirði í gær. Mikill hiti var í Skagafirði og hafði hann þau áhrif að erfiðlega gekk að koma fé niður af fjöllum.
Hitinn hægði á smölun
Heitt í veðri á Norðurlandi í gær þó að miklu óveðri sé spáð fyrir helgi
Slátrun hafin á Húsavík og Hvammstanga en beðið á Sauðárkróki í viku
Sala á mjólkuraf-
urðum hefur
aukist á þessu ári
og horfur á að
greiðslumark á
næsta ári aukist
um 1-2 milljónir
lítra, samkvæmt
upplýsingum frá
Landssambandi
kúabænda. Greiðslumark yf-
irstandandi árs er 116 milljónir
lítra.
Samtök afurðastöðva í mjólk-
uriðnaði hafa birt yfirlit yfir sölu
mjólkurafurða í júlímánuði. Í því
kemur fram að sala á fitugrunni sl.
12 mánuði er komin í 117,5 millj-
ónir lítra, aukning frá fyrra ári er
4,5%. Á sama tímabili var sala á
próteingrunni 116,4 milljónir lítra,
aukning frá fyrra ári er 1,6%.
Innvigtun mjólkur síðustu 12
mánuði er 123,1 milljón lítra og hef-
ur dregist saman um 3,3% frá fyrra
ári.
Aukin mjólk-
ursala kallar
á meiri kvóta
Slátrun hófst hjá Norðlenska í
gær og einnig hefur verið slátrað
í Sláturhúsi KVH á Hvamms-
tanga, þó að starfsemi þar sé
ekki hafin að fullu.
„Við erum ekki byrjaðir og
munum ekki byrja fyrr en 4. sept-
ember,“ segir Sigurður Bjarni
Rafnsson, framleiðslustjóri hjá
kjötafurðastöð Kaupfélags Skag-
firðinga. Hann segist ekki finna
fyrir þrýstingi frá bændum um að
hraða slátrun vegna yfirvofandi
óveðurs en bætir við að stöðin
hafi nú þegar fyllt fyrstu vikuna.
„Það er mikið af fé sem kemur
þá, um 6.000 kindur. Allt fer á
fullt í næstu viku. Við byrjum á
miðvikudag og svo keyrist þetta
smám saman upp,“ segir Sig-
urður en um 3.000 fjár er slátrað
á dag í stöðinni að öllu jöfnu. Um
80 erlendir verkamenn eru vænt-
anlegir í flugi hingað til lands í
næstu viku, til þess að vinna við
slátrun hjá KS.
Ekki þrýst á að hraða slátrun
SLÁTRUN AÐ HEFJAST VÍÐA Á NORÐURLANDI
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Slátur Á Norðurlandi munu sláturhús
hefja starfsemi sína á næstu dögum.