Morgunblaðið - 29.08.2013, Blaðsíða 12
BAKSVIÐ
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Skráning á umferðarslysum og um-
ferðaróhöppum er ófullnægjandi
hérlendis og mikilvægt er að bæta
slysaskráningu.
Með bættri
skráningu yrðu
forvarnir gegn
slysum markviss-
ari.
Til mikils er að
vinna því sam-
kvæmt nýlegri og
ítarlegri rann-
sókn var kostnað-
ur samfélagsins
vegna umferðar-
slysa að lágmarki 22-23 milljarðar
króna á árinu 2009 eingöngu. Þá eru
ótalin önnur slys, s.s. heima- og frí-
tímaslys sem eru tæplega helmingur
allra slysa samkvæmt Slysaskrá Ís-
lands.
Slysaskrá Íslands var sett á lagg-
irnar árið 2001 og markaði á ýmsan
hátt þáttaskil, einkum vegna þess að
þá var í fyrsta skipti hægt að nálgast
skráningar á slysum frá lögreglu,
Vinnueftirliti, Landspítalanum, heil-
brigðisstofnunum á landsbyggðinni
og fleirum á einum og sama staðn-
um. Slysaskráin hefur ekki verið
uppfærð tæknilega síðan og upp-
færsla, bæði efnisleg og tæknileg, er
orðin löngu tímabær.
Meðal þess sem talin er þörf á að
bæta eru skráningar á áverkum og
mögulegar orsakir slysa.
Landlæknir heldur utan um
Slysaskrána og embættið hefur um
nokkurn tíma unnið að tillögum um
að bæta hana. Þá hefur verið fjallað
um Slysaskrána í starfshópi um ára-
tug aðgerða til fækkunar á umferð-
arslysum sem er átak á vegum Sam-
einuðu þjóðanna.
Bætt slysaskráning er eitt af því
sem hópurinn telur brýnt að ráðast í
en hópurinn mun fljótlega skila til-
lögum sínum til innanríkisráðherra.
Edda Björk Þórðardóttir, verk-
efnisstjóri hjá landlæknisembætt-
inu, tekur fram að Slysaskrá Íslands
sé um flest sambærileg við slysa-
skrár í nágrannalöndunum. Ísland
eigi á hinn bóginn að geta nýtt sér
smæð sína og útbúið betri slysaskrá
heldur en stærri ríki.
Lítið um orsakir
Í dag er staðan sú að aðeins lág-
marksupplýsingar um slys eru
skráðar í Slysaskrá Íslands og frem-
ur litlar upplýsingar um alvarleika
meiðsla og mögulegar orsakir slysa.
Upplýsingar um alvarleika slysa og
orsakir berast ekki frá sjúkrahúsum
landsins, en Edda Björk segir að
hægt sé að kalla eftir þeim úr kerf-
um þessara stofnana.
Einn gallinn við skrána er að
hætta er á að slys og óhöpp séu tví-
skráð en Edda Björk segir að við úr-
vinnslu úr skránni sé tekið tillit til
þess og tvískráningarnar síaðar út.
Þó sé alltaf hætta ónákvæmni.
Þá er vilji til að fjölga þeim aðilum
sem skrá upplýsingar í Slysaskrána
en aðeins tvær einkareknar heilsu-
gæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu
senda inn skráningar, þær ríkis-
reknu gera það ekki.
Rétt er að taka fram að ýmsir að-
ilar halda utan um upplýsingar um
umferðarslys, s.s. lögreglan og Sam-
göngustofa tekur saman skrá yfir al-
varleg umferðarslys. Þá skráir heil-
brigðisþjónustan upplýsingar um öll
slys en aðeins hluti af upplýsingun-
um berst í Slysakrána.
Edda Björk segir að með því að
efla Slysaskrána væri hægt að fá
áreiðanlegri og nákvæmari upplýs-
ingar um slys en möguleiki er á nú.
Hægt yrði að stórefla forvarnir. „Ef
við fáum alla aðila sem skrá slys til
að skrá þau í Slysaskrána værum við
komin með mjög ítarlega skrá sem
yrði á heimsmælikvarða,“ segir hún.
Brýnt að bæta úr
slysaskráningu
Slysaskrá Íslands ekki verið uppfærð frá árinu 2001
Morgunblaðið/Ómar
Slys Þetta atvik er ekki að finna á Slysaskránni. Ástæðan er ekki sú að skráin
sé gölluð heldur er myndin tekin á flugslysaæfingu á Reykjavíkurflugvelli.
Edda Björk
Þórðardóttir
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2013
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi · Sími 535 4300 · axis.is
Opnunartími: mán. - fös. 9:00 - 18:00
Lauf
Fjölnota skeljastóll
Sturla Már Jónsson
Húsgagna- og
innanhússarkitekt
hannaði LAUF
Hraðahindrun 017
122x30x5cm 7.960 + vsk
Aflvélar ehf, Vesturhrauni 3, 210 Garðabæ. Sími 480-0000, Fax 480-0001
Tölvupóstur: sala@aflvelar.is Vefsíða: www.aflvelar.is
UMFERÐARVÖRUR
Hraðahindrun “mjúk” 090
Miðja 50x43x5cm 4.142 + vsk
Endi 22x43x5cm 1.586 + vsk
Hjóla-
stoppari 006
178x14x10cm
6.367 + vsk Hraðahindrun 150 “mjúk”
Miðja 50x90x5cm 9.554 + vsk
Endi 27x90x5cm 3.179 + vsk
Keilur PE og gúmmí 201
h:50 b:30 cm 1.554, h:75 b:38 cm
1.990, h:100 b: 53 cm 2.382 + vsk
Hraðahindrun 022 færanleg
300x22x4cm 44.614 + vsk
Kapalrenna 200 f/3 svera kapla
90x60x6cm 15.777 + vsk (endar og beygjur
fáanlegar)
Umferðarhlið 011 útdraganlegt
250x96cm (24cm saman) 7.960 + vsk
Umferðarhlið 012 (hvítt)
200x100cm 9.554 + vsk
Skiltakerra með sólarsellu og
fjarstýringu 659.338 + vsk
Ljós f/2 rafhl. 2.382, f/1 1.586 + vsk
Blikkljós 2.382 + vsk
með segulstáli 7.163 + vsk
Led ljósabar með stjórnkerfi og
kösturum 127.094 + vsk
Hætta er á að slys
sem ekki koma til
kasta lögreglu
séu illa eða alls
ekki skráð í
Slysaskrána.
Þetta á t.d. við
um slys á gang-
andi vegfar-
endum og hjól-
reiðamönnum
þar sem ökutæki koma ekki við sögu
en lögregla er sjaldnast kölluð til í
slíkum tilfellum, nema ef slysið er
þeim mun alvarlegra.
Ef viðkomandi leitar aðeins á
heilsugæslustöð á höfuðborg-
arsvæðinu er slysið ekki skráð í
Slysaskrá Íslands en fari hann á
slysadeild Landspítalans eða heil-
brigðistofnun á landsbyggðinni rat-
ar það á hinn bóginn á þangað.
Árni Davíðsson, formaður Lands-
samtaka hjólreiðamanna, segir að
samtökin hafi mikinn áhuga á að fá
upplýsingar um óhöpp sem hjól-
reiðamenn lenda í á hjólastígum eða
gangstéttum. Með því móti væri
hægt að safna saman upplýsingum
um sérlega varasama staði og bæta
úr. Nú séu slíkar upplýsingar ekki
tiltækar. Lögregla sé sjaldnast köll-
uð til í slíkum tilfellum og skráningu
á þeim sé mjög ábótavant annars
staðar í kerfinu.
Reyndar þarf ekki endurbætta
Slysaskrá til að hægt sé að ráðast í
úrbætur. Landssamtök hjólreiða-
manna hafa m.a. bent á að við flest
undirgöng á höfuðborgarsvæðinu
séu blindhorn. Meira að segja nýleg-
ar göngubrýr yfir umferðaræðar í
Reykjavík hafi verið þannig úr garði
gerðar að blindhorn myndist.
Þá hafi margir hjólreiðamenn
kvartað undan því að gróður skyggi
á útsýni fram á göngu- og hjólreiða-
stígana. Þetta sé sérlega varasamt í
Elliðaárdalnum þar sem brött
brekka liggur frá stíflunni. „Þarna
freistast sumir hjólreiðamenn til að
fara alltof hratt því þeir vilja ekki
missa af tækifærinu til að nýta fall-
orkuna,“ segir Árni. Þéttur gróður
sem teygi sig inn á stíginn auki enn
á hættuna.
Sum slys falla milli
skips og bryggju
Árni Davíðsson